Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 70

Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 70
sagði Sigurður ennfremur, „kemur í ljós að flestir sjúklingarnir eru á aldrinum 30 til 35 ára. Ef við gerum ráð fyrir að meðal Nœturlífið í Reykjavík hefur löngum verið rómað og sá orðstír farið af yngri kynslóðinni að fólk í þeim aidurshópi skipti oft um rekkjufélaga eða væri fljótt að efna til skyndikynna. „Það er auðvelt að taka íslenskar stelpur á löpp,“ sagði einhver. meðgöngutími sjúkdómsins sé fimm til átta ár þá kemur í ljós að eyðni er sjúk- dómur ungs fólks, rétt eins og kynsjúk- dómar á borð við sárasótt og lekanda. Af þessum sökum ákváðum við að gera ungl- inga að fyrsta markhópnum fyrir eyðni- fræðsluna.“ í kjölfar þessarar ákvörðunar var út- búinn bæklingur sem fólk á aldrinum 15 til 24 ára fékk sent heim í pósti. Auk þess var á síðasta vetri staðið fyrir fræðslufundum í skólum og reynt að höfða til ungs fólks sérstaklega, til dæmis með frísklegu vegg- spjaldi þar sem hvatt var til notkunar smokka. Nokkrir tónlistarmenn fluttu dægurlag málinu til stuðnings og slagorðin um verslunarmannahelgina eru enn eitt dæmi um þann áróður sem beint er sér- staklega að markhópnum. Þessar aðgerð- ir eru hins vegar umdeildar. „Mér finnst eyðnifræðslan og áróður- inn hér hafa verið ómarkviss. Þetta er sett af stað til að gera eitthvað, af því að það þarf eitthvað að gera. Það vill gleymast æ ofan í æ, hér á landi sem annars staðar, að rannsaka þá hópa sem á að beina fræðsl- unni til, áður en farið er af stað“ sagði Söl- vína Konráðs í samtali við HEIMS- MYND, en hún hefur meðal annars kynnt sér forvarnaraðgerðir í framhaldsnámi sínu í sálfræði í Bandaríkjunum. „Vitn- eskjan sem liggur fyrir um kynhegðun Is- lendinga áður en eyðni kemur til sögunn- ar er í rauninni ómarktæk og því ekki á henni að byggja. Ég tel til dæmis að hóp- urinn 35 til 45 ára sé í nákvæmlega jafn- mikilli hættu og unglingarnir. í þessum aldurshópi eru margir fráskildir og í heild lifa þeir ekki síður óreglulegu kynlífi en 20 árum eldra fólk. Gallinn er sá að meðan þetta er ekki kannað er ekki hægt að segja nokkurn hlut um þetta.“ Þorvaldur Kristinsson, formaður Sam- takanna 78, sem er félag lesbía og homma á íslandi, var ekki síður gagnrýninn á fræðsluherferðina, en þó á öðrum for- sendum. „Það er staðreynd að þeir tveir sem látnir eru úr eyðni voru hommar og þeir tveir sem hafa sjúkdóminn á lokastigi eru hommar. Af þeim rúmlega þrjátíu sém mælst hafa með eyðniveiruna eru um 70 prósent hommar. Það virðist því vera svipuð þróun hér og annars staðar, þar sem það eru fyrst og fremst karlmenn sem Eyðni í pólitískri umræðu Harðar pólitískar deilur hafa orðið um viðbrögð við vágestinum eyðni, en víðast hafa þær þó ekki haft í för með sér alvar- legar pólitískar afleiðingar. Þó má nefna eina undantekningu og það er Frakkland. Umræðan um eyðni hefur orðið til þess að borgaraflokkarnir geta nú illa gert kosningabandalag við Pjóðfylkinguna eða Front National vegna þess hve öfgafull stefna þess flokks hefur fallið í grýttan jarðveg á meðal lýðræðissinnaðra hægri- manna. Jean-Marie Le Pen hinn ofsafengni leiðtogi Þjóðfylkingarinnar sem hingað til hefur einkum þrifist á andstöðu sinni við afríska innflytjendur hefur gengið fram fyrir skjöldu og krafist þess að eyðnisjúkl- ingar, jafnvel þeir sem hafa aðeins for- stigseinkenni, verði lokaðir inni í einangr- unarbúðum. Heilbrigðisráðherra Frakklands, Michelle Barzach, brást harkalega við þessum hugmyndum á þingi. „í gær voru það innflytjendur, í dag eyðnisjúklingar, hverjir verða það á morgun?" hrópaði hún titrandi röddu og beindi orðum sínum til þingmanna Þjóðfylkingarinnar. Sjón- varpsstöðvarnar sýndu glefsur úr ræðu Barzach aftur og aftur og fyrsta hetjan í baráttunni fyrir málstað eyðnisjúklinga var fædd. Óttinn við útbreiðslu eyðni hefur leitt til umræðna víða erlendis, bæði í Banda- ríkjunum og Frakklandi, um hvernig meðhöndla eigi sýkta einstaklinga. Michelle þessi Barzach var algjörlega óþekkt þegar Jacques Chirac, forsætis- ráðherra, skipaði hana heilbrigðisráð- herra í mars 1986. Fyrstu mánuði hennar í embætti vakti hún að vísu athygli en ekki fyrir frumkvæði í stjórnmálum heldur glæsilegan klæðaburð. Vissulega átti hún það skilið enda stórglæsileg og menntuð kona, en hún var læknir þar til kall Chir- acs kom. Barzach vann hug og hjörtu þingmanna jafnt stjórnar sem stjórnar- andstöðu þegar hún skar upp herör gegn öfgakenndum skoðunum Þjóðfylkingar- innar. Ljóst er að hörð andstaða hennar og ýmissa annarra ráðherra borgaraflokk- anna gegn átroðslu hinnar hálf-fasísku þjóðfylkingar á mannréttindi minnihluta- hópa setur Chirac forsætisráðherra þröngar skorður. Hann hefur ekki viljað útiloka annað hvort kosningabandalag við Þjóðfylkinguna eða að minnsta kosti að gengið verði til móts við íhaldssama kjósendur hennar. Hvort Barzach getur sér enn frekar gott orð í baráttu fyrir mannréttindum eða hvort hún verður áfram helst þekkt fyrir að vera eini ráðherra stjórnarinnar sem komst á forsíðu Paris-Match sker framtíð- in úr um. 70 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.