Heimsmynd - 01.10.1987, Blaðsíða 78
B/1/?A'/Ð lifir því við stöðugan
ÓTTA, ÍEINMANA VERÖLD, ÞAR SEM
TILFINNINGA TJÁNING OG
TENGSLAMYNDUN GAGNVART
MÓÐUR OG ÖÐRUM AÐILUM ER
ÓGNVEKJANDI. . .
að minni eigin sálarkviku og komst næst
því að fá næmisskyn í líkamann."
Kynferðisafbrot gegn börnum hafa ver-
ið mjög í sviðsljósinu jafnt austan hafs sem
vestan á síðustu tíu árum. Umræðan
komst hins vegar ekki af stað á íslandi að
heitið gæti fyrr en á allra síðustu árum.
Dómur í máli afbrotamanns sem átti að
baki endurtekin kynferðisbrot gegn börn-
um kynti undir umræðunni. Svala Thor-
lacius, hæstaréttarlögmaður, lét þessi mál
til sín taka og vakti krafa hennar um vön-
un afbrotamannsins ákafar deilur. í fyrstu
var meint linkind yfirvalda í sviðsljósinu.
Pegar dómur gekk í málinu birtist viðtal í
DV við ónafngreinda konu sem hvatti til
stofnunar samtaka áhugafólks til að reyna
að stemma stigu við kynferðisofbeldi.
Viðmælandi blaðsins, Díana Sigurðar-
dóttir, lét hendur standa fram úr ermum
og samtökin voru stofnuð skömmu síðar.
Mikil þátttaka í stofnun þessara samtaka
benti óneitanlega til þess að um verulega
vitundarvakningu var að ræða. Viðmæl-
endur HEIMSMYNDAR eru á einu máli
um að fjölmiðlar einkum DV, sjónvarps-
og útvarpsstöðvarnar hafi með áhuga sín-
um hreyft við barnaverndarnefndum, lög-
reglu og ekki síst almenningi. Hins vegar
er deilt um hversu langt umfjöllunin eigi
að ganga í einstökum málum. En áður en
vikið verður að gagnrýni á fjölmiðla er
óhjákvæmilegt að líta á einstök frásagnar-
efni þeirra.
Skrif um sifjaspell og kynferðisofbeldi
eru tiltölulega nýr þáttur í íslenskri fjöl-
miðlun. Engu að síður má segja að þessi
skrif hafi út af fyrir sig orðið til þess að al-
varleg sakamál hafi komið upp á yfirborð-
ið. í fyrra var rösklega þrítugur verslunar-
maður dæmdur í eitt lengsta gæsluvarð-
hald sem um getur vegna gruns um að
hann hafi gerst sekur um sifjaspell. Heim-
ildir HEIMSMYNDAR telja að ólíklegt
sé að það mál hefði verið kært ef fjölmiðl-
ar hefðu ekki verið búnir að beina kast-
ljósinu að þessum málum.
Hér á í hlut þrettán ára gömul stúlka.
Faðir hennar er grunaður um að hafa mis-
notað hana kynferðislega frá því hún var á
unga aldri. Rannsókn málsins leiddi í ljós
að faðirinn gerði það ýmist þegar móðirin
var ekki heima eða sendi dótturina út í
sjoppu og sat svo fyrir henni. Heimildar-
menn HEIMSMYNDAR telja að hann
hafi haft samfarir við dóttur sína um
tveggja ára skeið þegar upp komst um
málið. Athyglisvert er að barnið hafði
kvartað við ömmu sína um eymsli á milli
fótanna. Hún sagði móður barnsins frá
þessu en það varð þó ekki til þess að upp
um málið kæmist. Stúlkan gerði sér ekki
ljóst hversu illa var komið fyrr en hún las
skrif í fjölmiðlum um þessi mál. Pá sagði
hún vinkonu sinni frá málinu og sú sagði
móður sinni. Á þennan hátt varð þetta að
kærumáli. Maðurinn var dæmdur í lengsta
gæsluvarðhald sem um getur hjá embætti
bæjarfógeta Kópavogs og á yfir höfði sér
þunga refsingu ef hann verður fundinn
sekur.
Þáttur fjölmiðla í því að mesta hitamál
þessa sumars komst á kærustig er hins
vegar ekki eins augljós. Hér er átt við
svokallað Svefneyjamál. Par hafa komið
fram ásakanir um að hjón hafi misnotað
börn kynferðislega. Eiginmaðurinn var
hnepptur í gæsluvarðhald um mitt sumar
en sleppt lausum er dró að lokum rann-
sóknar málsins. Svefneyjamálið komst á
kærustig fyrir tilviljun.
Ekki verður hjá því komist að minna á
hvernig það mál kom upp og hverju kær-
endur halda fram enda gefur reynsla
mæðranna nokkuð glögga mynd af því
sem gerist þegar grunur vaknar um kyn-
ferðislega misnotkun.
Móðirin sem mest kemur við sögu hafði
þekkt grunuðu um margra ára skeið.
Dóttir hennar var heimagangur á heimili
þeirra. Móðirin sendir dóttur sína, þá sjö
ára gamla, til sumardvalar hjá hinum
grunuðu á eyju úti fyrir vesturströnd
landsins. Móðirin segir að hana hafi alls
ekki grunað hversu örlagarík þessi sumar-
dvöl ætti eftir að verða en þó hafi hún
furðað sig á hversu róleg og grönn stúlkan
hafi verið þegar hún kom aftur heim eftir
þriggja mánaða dvöl í sumarbúðunum.
Petta var sumarið 1985.
Tveimur árum síðar kemur fulltrúi
barnaverndarnefndar að máli við móður-
ina og segir að framköllunarfyrirtæki á
Reykjavíkursvæðinu hafi afhent nefnd- g
inni myndir af barninu. Hér var um að S
ræða ljósmyndir sem hin grunuðu höfðu x
sett í framköllun og voru þess eðlis að 5
rannsóknarlögreglan hafði tekið málið til o
rannsóknar. Móðirin segir að í fyrstu hafi o
hún ekki trúað orðum fulltrúa barna- E
' 'T
*
78 HEIMSMYND