Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 6
efnisyfirlit
ANNAÐ
56 Andlit Heimsmyndar
64 Svipmót ástarinnar
Lesið úr svipmóti kærustapara af götum Reykjavíkur.
74 Reykjavíkin mín
Jóna Fanney Friðriksdóttir slæst í för með sex Reykvíkingum
út á lífið og kynnist Reykjavíkunum þeirra.
FASTIR PÆTTIR
8 Frá ritstjóra
1 1 Innskot
Stefán Jón Hafstein hugsanlegt borgarstjóraefni Allaballa.
Friðrik Þór lamdi Jón Ólafsson vegna skuldar. Eiður vildi fá
stól útvarpsstjóra. Kratarsnúa á Framsókn í Seðlabankanum.
Fyrsta verk Sighvatar að fá sér greiðslukort út á viðskipta-
ráðuneytið og fleira.
24 Líkami og sál
Ari Singh hefur sig til flugs á löngum leggjum. Egill Ólafsson
leikur íslenskan graðnagla í þýskri bíómynd. Hrafn
Gunnlaugsson gerir mynd í samvinnu við kvikmyndafyrirtæki
víetnamska ríksins. Hilmar Örn Hilmarsson og Einar Örn
Benediktsson gefa út disk með danstónlist og annan með
rokki. Fólk sem lítur út eins og matur. Töff strákar dansa víst.
82 Freistingar
Sumarskórnir. Tískuhönnuðirnir Dolce & Gabbana. Daglegt
Næturlíf. Grillveisla í garðinum. Hártíska sumarsins.
framlag
Ingólfur Margeirsson, blaðamaður og rithöfundur,
skrifar grein um Vilmund Gylfason í þetta hefti
HEIMSMYNDAR. Ingólfur á að baki langan feril sem
blaðamaður. Hann var umsjónarmaður sunnudags-
blaðs Þjóðviljans, ritstjóri Helgarpóstsins og ritstjóri
Alþýðublaðsins. Ingólfur hefur sent frá sér sex bækur.
Þar af hafa tvær orðið metsölubækur: Lífsjátning Guð-
mundu Elíasdótturog LífróðurÁrna Tryggvasonar. Ingólfur er vel kunnur við-
fangsefni sínu. Hann og Vilmundur voru bekkjarbræður frá því i barna-
skóla og þar til þeir útskrifuðust sem stúdentar frá Menntaskólanum í
Reykjavík. Ingólfur er einnig þaulkunnugur innviðum Alþýðuflokksins
sem var lengst af vettvangur stjórnmálabaráttu Vilmundar.
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur sendir kynslóð
stóra bróðurs síns kveðju í blaðinu. Það er hvorki meira
né minna en sjálf '68 kynslóðin. Guðmundur Andri er
einn efnilegasti rithöfundur íslendinga. Síðasta bók
hans, íslenskl draumurlnn, fékk góða dóma hjá gagn-
rýnendum og ekki síður góðar viðtökur hjá lesendum.
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson myndlistarmaður
vinnur myndskreytingar við nokkrar greinar í þessu
hefti. Steingrímur er líklega sá myndlistarmaður
íslenskur sem hefur náð hvað bestum árangri á þessu
sviði. Teiknistíll hans hæfir sérstaklega vel slíkum
myndskreytingum. Steingrímur er það sem kalla má
fyndinn penni.
Egill Helgason blaðamaður skrifar grein um '68 kynslóðina sem átti 25
ára afmæli í maí síðastliðnum. Egill er ekki af þeirri kynslóð, enda kemst
hann að þeirri niðurstöðu að hún hafi hlaðið á sig fullmiklu lofi. Egill
hefur starfað sem blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum og unnið að
þáttagerð fyrir sjónvarp.
Bonni tekur myndir við fjölda greina í þessari HEIMS-
MYND, en hann hefur verið aðalljósmyndari blaðsins
undanfarin tvö ár. Bonni hefur starfað á íslandi undan-
farin misseri, en vann áður í New York með japanska
Ijósmyndaranum Hiro sem er einn af bestu Ijósmyndur-
um heims. Myndir Bonna í þessu blaði sýna helstu kosti
hans, góða tækni og næmt auga.
Mörður Árnason íslenskufræðingur skrifar grein um verkalýðshreyfing-
una á þessum síðustu og verstu þjóðarsáttartímum. Mörður er marg-
reyndur blaðamaður. Hann var umtíma ritstjóri Þjóðviljans. Mörður hefur
ritað margt um vanda vinstri manna eftirfall múrsins, uppgjör þeirra og
sátt við fortíðina.
Kristján E. Karlsson er útlitshönnuður HEIMSMYNDAR.
Kristján hefur starfað við grafíska hönnun hér heima og
í Berlín. Kristján hefur hannað margt í gegnum tíðina;
meðal annnars Stuðmannabókina og merki Stöðvar2.
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur skrifar grein um
Landsbankann og kemst að þeirri niðurstöðu að bankinn hafi alla tíð
verið það sem honum var ætlað, pólitískur fyrirgreiðslubanki. Guðjón er
fyrir löngu landskunnur fyrir skrif sín um sagnfræði. Á skömmum tíma
hafa tvö stórvirki eftir hann komið út: Eitt bindi af Sögu Reykjavíkur og tvö
bindi af ævisögu Jónasar frá Hriflu. Samhliða fræðistörfum hefur Guðjón
stundað blaðamennsku, og skrifað reglulega í HEIMSMYND undanfarin
fimm ár.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar viðtal við Viðar Eggertsson, leikara og
nýráðinn leikhússtjóra á Akureyri. Þóra Kristín hefur skrifað reglulega í
HEIMSMYND undanfarin misseri. Hún sendi frá sér viðtalsbók við Guð-
berg Bergsson fyrir síðustu jól.
6
HEIMSMYND
J Ú L í