Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 76
Fallegum sumardegi
vill Felix helst eyða
með syni sínum Guð-
mundi og fíflast með
honum í garðinum hjá
foreldrum sínum sem
búa á Túnsberginu eða
rölta niður á Skalla á
Lækjartorgi og kaupa ís.
„Á röltinu er gaman að
rekast á systkini mín, Þóri
og Sigurþóru, eða unga
kollega mína eins og Stein-
unni Ólínu, Magnús Jónsson og
Þorstein Bachmann, vin minn
og félaga í andanum,
Steingrím Ólafsson fréttamann á
Stöð 2 og Agga vin minn sem
vinnur á Sólon."
Felix Bergsson (26 ára) steig
með hækkandi sól ofan
af fjölum
Borgarleikhússins og yfir í
sumarþátt Sjónvarpsins. En
hvar slettir Felix úr klaufunum
í sumar án vinar síns Sigga
Zoom? „Á veitingahúsinu 22 á
Laugavegi sem er minn staður
þegar ég fer út á lífið," svarar
hann á augabragði. Sumarið
hefur öðlast nýja merkingu í
huga Felixar við opnun kaffi-
húsanna Sólon íslandus, Café
París og Café List, en hann
dvelur líka mikið við Ægissíð-
una og hellir þar sjálfur upp á
heima. „Ægissíðan ersumarið
mitt og ég er ákaflega ham-
ingjusamur að búa þar." En
leikarinn er félagsvera af lífi og
sál og bregður sér oft á uppá-
haldsmatsölustaðina sína, Litlu
Ítalíu við Laugaveg þar sem
hann gæðir sér á djúpsteiktum
rækjum í hvítlaukssósu, eða á
Pasta Basta við Klapparstíg þar
sem hann rennir spaghettíi
með basilíkum og hnetum nið-
ur með grænum Tuborg. í há-
deginu sækir hann í veröndina
og hlaðborðið á Pasta Basta.
D Felix
Bergsson
Ingibjörg
Reynir
Jónasson
Reynir Jónasson (60 ára)
hefur verið organisti í
Neskirkju síðastliðin
tuttugu ár, jafnframt því sem
hann hefur „hangið á
húninum" í sundlaugum
borgarinnar þessa sömu ára-
tugi. Reynir er landskunnur
fyrir mikil tilþrif í harmónikku-
leik. Hvertfer hann þegar hann
leggur frá sér nikkuna á björtu
sumarkvöldi? „Hótel Borg, Grillið
á Hótel Sögu og Hótel Holt eru
uppáhaldsmatsölustaðirnir
mínir," segir Reynir. En verða
76
HEIMSMYND
J Ú L