Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 75
verður
að vera böðuð i
hvítlauk sem er ekki bara
góður heldur líka hollur. „Ég er
nú ekki meiri herramaður en
það að vilja sætt hvítvin með
mat," segir Þorsteinn Gauti. En
er kemur að uppáhaldsfordrykk
hans er ekki að annað að sjá en
að þar sé mikill heimsborgari á
ferð; Kir Royal skal það vera,
kokteill sem samanstendur af
hvítvíni, kirsuberjalíkjör og
kampavíni. En pyngjan leyfir
ekki alltaf slíkan munað og
þegar harðnar á dalnum og
ára Sigurjónsdóttir
ngismærin og verslunar-
konan Bára Sigurjónsdóttir
(71 árs) ver stórum hluta
sumarsins í garðinum sínum í
Drápuhlíðinni. Hún leitar þó oft
yfir limgerðið til að gera sér
glaðan dag og fer þá helst á
uppáhaldsveitingastað sinn,
Grillið á Hótel Sögu. Þar vill Bára
helst njóta félagsskapar
Krístínar Ásgeirsdóttur Johansen,
letin leggst yfir bregður hann
sér í hádeginu á veitinga-
staðinn Selið á Laugavegi.
Þorsteinn hefði ekkert á móti
því að aka uppáhalds-
strætóleiðina sína, leið níu,
og spjalla við vofu Þórbergs
Þórðarsonar rithöfundar
meðan á hringnum
stendur.
Ástríðar Andersen sendiherrafrúr
eða annara góðra vinkvenna;
og þá er sumardrykkurinn,
Ijóst og létt kampavín ómiss-
andi. Með sumarmáltíðinni,
soðnum laxi með kartöflum og
smjöri, dreypir Bára á frönsku
bragðmiklu hvítvíni, Gewurzt-
raminer frá Dopf og Irion, og
segir þýsk vín hrein-
lega nátt-
úrulaus! Það sama getur hún
þó ekki sagt um borðfélaga
sinn, sjálfan Snæfellsjökul sem
blasir við henni út um glugg-
ann á Sögu.
„Hádeginu vil ég helst eyða
í garðinum mínum í Drápu-
hlíðinni og býð fjölskyldunni
og vinum gjarnan í létta mál-
tíð. í fallegu veðri ek ég um
borgina og virði fyrir mér hús
og byggingar, rölti upp í Öskju-
hlíð eða skrepp með
barnabörnin niður í Miðbæ
í ísatúr.
Mínir uppáhaldssumar-
staðir í borginni eru Tjörnin,
höfnin, Seltjarnarnesið,
Austurvöllur og Öskjuhlíðin."
En á fögru sumar kvöldi situr
Bára ekki heima og prjónar
eins og aðrar ömmur.
Nei, mín fer að sjálfsögðu á
Bíóbarinn á horninu á Klappar-
stíg og Hverfisgötu.
„Það skemmtilega við
þennan bar er að þar er litríkt
fólk, leikarar, listamenn og fólk
á öllum aldri sem gaman er að
spjalla við," segir Bára og lyftir
glasi í átt að Snæfellsjökli ofan
úr Grillinu á Hótel Sögu.
HEIMSMYND
J Ú L í
75