Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 63
Gísli Snær Erlingsson
hóf feril sinn hjá ríkissjón-
varpinu. Þar var hann til
skamms tíma annar um-
sjónarmanna tónlistar-
þáttarins Poppkorns. Síðan
færði hann sig aftur fyrir
myndavélina, í stöðu upp-
tökustjóra. Stærsta verkefni
Gísla hjá Sjónvarpinu var að
leikstýra áramótaskaupi
1988, þá 23 ára gamall. í dag
er Gísli 28 ára og er í námi í
París í besta kvikmynda-
skóla Frakklands, Femis.
Stuttur Frakki var hans
fyrsta bíómynd í fullri lengd.
Gísli, afhverju eru þessar þrjár
myndir svona svipaðar?
Ég held eiginlega að við sem
stoðum að þessum myndum höfum
allir varað okkur á því að vera ekki
að fótbrotna alveg strax á fyrstu
mynd, heldur reyna að gera eina
mynd til að setja okkur á kortið.
Seinna er svo nægt að snúa sér að
alvarlegri hlutum og dramatískari
myndum. Auðvitað er líka viss
viourkennina í því að fá fólk til að
koma í bíó. Og að heyra 700 manna
sal hlæja að islenskri mynd er
öðruvísi tilfinning en að neyra fólk
hlæja að amerískri mynd.
Hvað sérð þú sameigmlegt með
þessum þremur myndum?
Ég sé eiginlega ekki neitt sam-
eiginlegt með þeim, nema kannski
að þetta eru fyrstu myndir okkar
allra. A sama tíma og allir eru að
segja að þetta séu mjög svipaðar
myndir, þá eru þær í raun og veru
gjörólíkar. Annars má kannski
segja að það sé eittsem sameinar
okkur einna helst. Ofugt við þessa
ungu reiðu menn sem voru
upphafsmenn frönsku nýbylgjunnar
í Kvikmyndagerð, þá eigum við þrír
það sameiginlegt að vera ungir
glaðir menn. Vio lítum allir björtum
augum á þetta líf. Annars er voða-
lega erfitt að bera þessa hluti
saman. Það munar til dæmis helm-
ingi á kostnaði á Veggfóðri og
Stuttum Frakka annars vegar og á
Sódómu hins vegar. Svo eru þær
unnar ólíkan hátt. Við tókum okkar
mynd upp á 24 dögum og Roger
Corman (frægasti b-mynda fram-
leiðandi allra tíma) er örugglega
sá eini í heiminum sem tekur upp
myndir á styttri tíma. En mér finnst
fyrst og fremst sniðugt hvað við
hugsuðum svipað á sama tíma.
Eru þetta ekki alveg óttalega lókal
myndir?
Jú, jú. eins og mín mynd. Þótt
að se töluð enska og franska í
enni er hún rosalega lókal. Ég hef
einmitt fengið Jþá dóma um hana
hérna úti ao hun sé örugglega
mjög fyndin heima á íslandi. Það er
svo margt í henni sem virkar ekki
alveg á utlendinaa.
En var ekki líka löngu kominn tími
til að brjótast burt frá skammdeg-
inu og hátíðleikanum, búa til
skemmtilegar myndir fyrir ungt
fólk á Islandi?
Jú, mikil ósköp, en að sama
skapi verðum við að bíta í það súra
epli að svona myndir ganga ekki í
folk í útlöndum. Það er gaman að
því hvað gencjur vel með Sódómu,
enda hefur hun njargt gott til
brunns að bera. A bak við hana eru
menn sem kunna vel á markaðinn
og vita hvernig á að koma kvik-
myndum á framfæri.
Alvarlegar myndir hafa miklu
meiri möguleika á hinum ýmsu
festivölum og jafnvel líka pegar að
dreifingu kemur. En eins og þú
segir er fínt að brjótast frá
skammdeginu og reyna að lífga
upp geðið hjá landanum.
Hvað ertu að gera þessa dagana?
Ég er að klara handrit að mynd
sem fer í tökur núna í júní og er
lokaverkefni mitt í skolanum. Sú
mynd á að vera tilbúin um næstu
áramót. Eftir það veit ég ekki alveg
hvað tekur við. Ætli maður reyni
ekki bara að skrifa. Ég held að það
sé mjög mikilvægt fyrir unga kvik-
myndagerðarmenn þegar þeir
koma ut úr skóla að gefa sér
kannski tvö til þrjú ár í að skrifa og
skrifa og skrifa oa skrifa og safna
hugmyndum. Maður verður að hafa
eitthvað í farteskinu þeaar maður
fer af stað að tala við fólk. Ef
maður hefur ekki tilbúnar hug-
myndir er maður gleymdur eftir tvo
klukkutíma.
Ætlarðu að revna eitthvað fyrirþér
þarna í Frakklandi?
Ja, maður veit aldrei, með
sameiningu Evrópu er aldrei að
vita hvar maður lendir. En ef maður
lítur raunsæjum augum á málin er
náttúrlega tvöfalt erfiðara fvrir mig
sem útlending að komast ao í
kvikmyndaheiminum hérna úti en
heima. Þó að það séu litlir pen-
jnaartil að búa til myndir heima á
Islandi á maður þó að
minnsta kosti jafnan rétt tiI m '
þeirra og aðrir. % ¥
★ BRIJÐARKJÓLAR
★ BRÚÐARMEYJAKJÓLAR
★ SKÍRNARKJÓLAR
★ SMÓKINGAR
★ KJÓLFÖT
★ SAMKVÆMISKJÓLAR
★ ALLIR FYLGIHLUTIR
BRÚÐARKJÓLALEIGA
KATRÍNAR ÓSKARSDÓTTUR
GRJÓTASELI 16
109 REYKJAVÍK
S í M I : 7 6 9 2 8
HEIMSMYND
J Ú L í
63