Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 78
Allt frá því að íslendingar fengu stjórnmálin í sínar hendur, skrifar
Guðjón Friðriksson, hefur myndast sú hefð að Landsbankinn væri eins
konar tæki í höndum stjórnmálaflokka og einstakra stjórnmála-
manna til þess að ná fram pólitískum markmiðum sínum.
Landsbanki Islands er stærsti og öfl-
ugasti banki landsins, eins konar þjóð-
banki. Allt frá því að íslendingar fóru
að fá stjórn mála í sínar hendur upp úr
síðustu aldamótum og innlent fjármagn
tók að myndast í landinu í einhverjum
verulegum mæli hefur hann ásamt öðr-
um bönkum gegnt þýðingarmiklu hlut-
verki og lykilaðstöðu fyrir atvinnulífið.
Frá þeim tíma komst sú hefð á að
Landsbankinn og síðar aðrir ríkisbank-
ar væru eins konar tæki í höndum
stjórnmálaflokka og einstakra stjórn-
málamanna til þess að ná fram pólitísk-
um markmiðum sínum frekar en þeir
væru faglegir viðskiptabankar.
Saga Landsbankans allt frá aldamótum
sýnir að stjórnmálamenn hafa lagt kapp á
að hafa ítök í stjórn hans og hann hefur oft-
ar en ekki verið notaður til framdráttar póli-
tískum hugmyndum, þröngum kjördæma-
sjónarmiðum, atkvæðaveiðum og jafnvel
þegar verst iét til að hygla einkafyrirtækjum
sem valdamönnum voru hugnanleg eða
þeir áttu þar beinlínis persónulegra hags-
muna að gæta. Sá þráður er nánast óslitinn
frá dögum Tryggva Gunnarssonar í byrjun
aldarinnar til þeirra bankastjóra sem nú sitja
þó að krafan um hrein viðskiptaleg sjónar-
mið sé nú hávær innan bankans og utan.
Eitt gleggsta dæmið í sögu hans eru geysi-
sterk ítök Sambands íslenskra samvinnufé-
laga í stjórn Landsbankans allt frá árinu
1917 og þar til þessi stærsta verslunarsam-
steypa landsins gaf endanlega upp öndina
íyrir nokkrum misserum. Nú situr bankinn
uppi með afleiðingarnar. Sterk hagsmuna-
gæsla fyrir SÍS leiddi meðal annars til sam-
tryggingar pólitískra afla innan bankaráðs-
ins. Margt bendir til þess að Kveldúlfsmálið
á kreppuárunum hafi markað upphaf
ákveðins samtryggingakerfis milli Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eða helm-
ingaskiptareglu, sem gilti um árabil og gildir
kannski enn. Hér verður farið nokkuð ofan
í saumana á upphafi Landsbankans sem
pólitísks fyrirgreiðslubanka og þróun hans
fram eftir öldinni.
Arið 1904 fengu Islendingar heimastjórn
og Hannes Hafstein varð ráðherra ís-
lands. Samtímis var stofnaður öflugur einka-
banki með erlendu hlutafé sem varð stærsti
banki landsins. Það var íslandsbanki. Hann
Landsbankahúsið í Reykjavík eins og það leit út árið 1924.
var þó ekki meiri einkabanki en svo að
samkvæmt lögum átti ráðherra íslands að
vera formaður bankaráðs og skipa annan af
tveimur bankastjórum. Fyrir í landinu var
Landsbanki íslands og þar réði ríkjum kraft-
mikill stjórnmálamaður, félagsmálafrömuður
og framkvæmdamaður, Tryggvi Gunnars-
son. Hann var einn af nánustu stuðnings-
mönnum Hannesar Hafsteins og að auki
móðurbróðir hans. Strax í upphafi valdafer-
ils Hannesar Hafsteins virðist bankinn hafa
verið notaður til að klekkja á höfuðand-
stæðingi hans, Birni Jónssyni í ísafold.
78
H E
M S M Y N D
J Ú L í