Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 37
tíl eilíföar?
Nei, nei. Það eiga allir að vera ungir. Þegar
fólk er orðið gamalt er það ekki sýnt
lengur. Þess vegna er mikið plast í Los
Angeles. Maður sér aldrei hrukkur. Ekki
einu sinni á þeim sem eru orðnir áttræðir.
Getur þú hugsað þér að koma heim og
fara að vinna hér?
Já, auðvitað. Ég held að ég eigi eftir að vera
hér meira eða minna. Ég er bara í smá
víkingaleiðangri núna. Hérna heima er
alvörulífið.
Þú ætlar sem sagt að flytja heim.
Já.
Ertu ekki orðin dálítið rík?
Það eru allir að spyrja mig að því. Nei, ég
er frekar blönk.
Hvernig bíl áttu?
Ég á fjórhjóladrifinn Subaru svo ég komist
upp brekkurnar heima. Hann er '84
módelið og er alveg að detta í sundur.
Ég tók eftir því þegar ég bjó í New York
að þar vann leikari á hverjum bar og á
hverju veitingahúsi. Það er því ekki
auðhfaupið að fá vinnu sem leikari.
Hvað á fólk að gera?
Ég veit það ekki. Þetta er allt sarnan dálítið
dularfullt. Ég þekki fólk sem hefur mikla
hæfileika, en fær ekkert að gera. Og ég
þekki fólk sem hefur enga hæfileika, en
hefur nóg að gera. Það er eitthvað allt
annað sem gildir í kvikmyndaheiminum en
hæfileikar. Það er miklu auðveldara að
skilja hvers vegna sumir fá vinnu í leikhúsi
en sumir ekki. Þar skipta hæfileikar meira
máli en í kvikmyndum.
Gildlr þar að þekkja rétta fólkið? Eða
hafa góðan umboðsmann?
Það er að minnsta kosti betra. Þá getur
maður fengið smátækifæri til að sýna hvað í
manni býr. En fyrst og fremst er þetta
peningamaskína. Ef einhver getur sýnt fram
á að hægt sé að græða á leikara, þá er
hann kominn í höfn.
Fylgistu með því sem gerist í leiklistinni
á íslandi?
Já, ég fæ Moggann alltaf annað veifið og les
um sýningar kollega minna heima. Og
stundum fæ ég hina klassísku
leikaramartröð og þá dreymir mig að ég sé
að mæta á sýningu í Þjóðleikhúsinu á
síðustu stundu og er annað hvort í
vitlausum búningi eða með vitlaust handrit.
Hvað ætlarðu að gera í kvöld?
Ég ætla að lesa fyrir Matta Mána frænda
minn áður en hann fer að sofa. Við ætlum
að lesa dýrabók sem ég keypti handa
honum. Annars er hann með ofboðslega
bíladellu og ég er að freista þess að beina
áhuga hans að einhverju öðm. Þetta er
frumskógarbók með stækkunargleri.
Finnst þér gaman af börnum?
Já.
Ætlarðu að eignast einhver sjálf?
Já, mörg. En maður verður helst að taka
þetta í réttri röð.
HE1MSMVND
J Ú L I
37