Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 42
okkrir áhugamenn um fugla-
líf vom að fylgjast með önd-
unum á Tjöminni fyrir nokkr-
um ámm í gegnum sjónauka
og urðu fyrir áfalli. Eins og
svo margir sem fá áhuga á
dýrum töldu þeir að dýrin
væm einhvern veginn hrekk-
lausari en mannskepnan;
væm náttúmlegri, stæðu nær
guði. Það sem blasti við
þeim í gegnum sjónaukann
var hins vegar ekki fögur
sjón. Þeir sáu kynóða steggi
ráðast á nánast hverja önd sem synti fram-
hjá og nauðga henni. Ungu steggimir vom
varla fyrr skriðnir úr eggjunum en þeir tóku
þessa hegðun upp eftir feðrum sínum og
nánast biðu við egg systra sinna til nauðga
þeim þegar þær kæmu út. Fuglaskoðararnir
söfnuðu upplýsingum um þessar taumlausu
nauðganir. Þeir komust að því að einni og
sömu öndinni var nauðgað um áttatíu sinn-
um á sama sólarhringnum. Og að einn
steggur nauðgaði allt upp í sjötíu öndum á
sama tíma. Og sumum oftar en einu sinni.
Eins og oft verður um stór tíðindi fór
fréttin af þessum kyrióðu andarsteggjum
misjafnlega í fólk. Andstæðingar ráðhúss-
byggingarinnar sögðu að hún hefði þessi
áhrif á endurnar. Þessar taumlausu nauðg-
anir væru því Davíð Oddssyni að kenna.
Aðrir fyltust viðbjóði, fannst sem þeir hefðu
alið snák sér við hjartastað og hættu að
gefa þessum kynferðisbrjálæðingum brauð.
Femínistum fannst þetta hins vegar ekki
mikil frétt. Þeim hafði lengi verið ljóst hvert
karlmannseðlið var. Það væri barnalegt að
ætla að steggjaeðlið væri eitthvað skárra.
Einhverjir karlar með sjálfsmeiðingarhvöt
reyndu að malda í móinn og sögðu að við
skyldum ekki dæma steggina að óathuguðu
máli. Hvernig ættum við að geta sagt til um
kynlíf anda? Það sem liti út eins og nauðg-
un í okkar augum væri ef til vill stór þáttur í
ástarleikum. Ef til vill kærðu endurnar sig
ekki um forleik, blíðmælgi og nærgætni.
Ekki frekar en karl-köngurlóin vildi missa
af því að vera étinn að afloknum ástarleik
með kellu sinni.
Eg dró aldrei neina ályktun af þessum
fregnum af kynóðu steggjunum. Ég veit
ekki einu sinni hvort ég trúi þeim. En ef ég
væri neyddur til að segja eitthvað myndi ég
kjósa að setja upp yfirlætissvip, eins og
femínistamir, og láta sem þetta kæmi mér
ekki á óvart. Maðurinn er með kynlíf á heil-
anum. Hvers vegna ekki dýrin?
Einhverjum vísindamanni tókst að mæla
það hjá sjálfboðaliða að hann hugsaði um
kynlíf að meðaltali um tuttugu sinnum á
mínútu. Munurinn á honum og steggjunum
á Tjörninni er sá að hann er maður — homo
sapiens, hinn hugs-
andi maður. Hann læt-
ur sér því nægja að
hugsa um kynlíf.
Steggurinn á Tjörninni
mundi aldrei láta það
nægja. Hann er búinn
að framkvæma áður
en hann hugsar.
Maðurinn hefur
nokkrum sinnum
reynt að taka kynlíf úr
toppsæti óskalistans
og setja eitthvað ann-
að í staðinn. Nú síðast
voru það upparnir.
Þeir sögðu að aðal-
atriðið í lífinu væri
vinnan. Þeir vildu
vinna sín afrek við
skrifborðið frekar en í
bólinu. Þeir vildu sjá
starfsframann rísa
fremur en nokkuð
annað. Ekki þar fyrir
að upparnir hafi for-
smáð kynlífið. Þeir
vildu bara ekki að það
truflaði þá of mikið.
Allir vita hvernig þessi
tilraun tókst. Eftir
nokkur ár voru
upparnir orðnir svo
ófullnægðir að þeir
töpuðu einbeitningunni, tóku vitlausar
ákvarðanir, settu fyrirtæki á hausinn og
skildu hagkerfið eftir í djúpri kreppu. Það
skyldi því enginn gera lítið úr mikilvægi
kynlífsins.
Og það gerir það líka enginn lengur.
Ekki í dag. Það er einhver kynlífsmanía
yfir Vesturlöndum. Á undanförnum misser-
um hefur maður séð rassinn á öllum helstu
karlstjörnum Hollywood og maður þekkir
orðið kvenstjörnurn-
ar frekar af brjóstun-
um en andlitinu. í
dag er algengasta
setningin í kvik-
myndahandritum;
"Oh, yes, oh, yes,
oh, yes, yes, yes,
YES, YES....".
Og allir eru að
leita að góðu kynlífi.
Um hver jól koma út
margar myndskreytt-
ar bækur til að
kenna fólki kynlíf,
hvernig á að gera það standandi, sitjandi,
krjúpandi, í baði, á stól, úti í garði. Fólk
hringir í stefnumótasíma Miðlunar í leit að
nýjum félögum, betri
félögum eða bara
fleiri félögum. Hjón
hringja og óska eftir
þriðja aðila til að
lífga upp á kynlífið.
íslenska sadómasók-
istafélagið býður er-
lendum bræðrafélög-
um á nokkurs konar
vinafélagamót úti í
íslenskri náttúru.
Sumir tapa sér alger-
lega í þessari leit.
Danskir kvikmynda-
gerðarmenn hafa
staðið íslenska karla að verki niður í Thai-
landi við að kaupa sér unga drengi. Leit
manna að góðu kynlífi getur því dregið þá
á einhverjar slóðir
sem eiga ekkert
skylt við kynlíf -
nema tækin sem
notuð eru.
En hvað er gott
kynlíf? Það sem
einum finnst gott
þykir öðrum tíma-
eyðsla. Það sem er
gott með einum fél-
aga getur verið bölv-
að hnoð með þeim
næsta.
Fólk á líka erfitt
með að skilgreina
gott kynlíf. Það er
Kossar
Það má...
...slefa
...muna að stuttir,
mjúkir kossar geta
verið álíka góðir og
djúpir og tilfinninga-
ríkir
...kanna: háls, fætur,
augu, eyru, hnés-
bætur....
Það má ekki...
...frussa
...gleypa tungu
...skella saman
tönnum
...ropa
Slökkvarar
Rauð og húðlituð
nærföt
Hann í sokkum
Hann í nærbuxunum
hennar
Stórbrjóstá honum
Háttatími
Flaska af gini fyrir
svefninn
Mace
Þögn
Skýlaus krafa um að
fara í gegnum allar
stellingar kynlífs-
bókmenntanna
Kveikjara r
Svört og hvít nærföt
Hún í sokkum
Hún í nærbuxunum
hans
Lítil brjóst á henni
Flaska af hvítvíni með
matnum
Eftirmiðdagar,
morgnar, miðjar
nætur
llmvatn
Stunur
Standandi, krjúpandi,
sitjandi
HEIMSMYND
J Ú L í