Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 45
elskuðust einu sinni í fimmtán klukkutíma
samfellt án þess svo mikið að fá snarl á
milli. Eða að breska kvenréttindakonan
Marie Stopes vissi lítið um kynlíf þrátt fyrir
baráttu sína fyrir notkun getnaðarvarna.
Hún kyssti fyrst þegar hún var 24 ára.
Fimm árum síðar uppgötvaði hún
sjálfsfróun og þegar hún giftist loks 35 ára
gömul komst hún að því að eiginmaðurinn
var getulaus. Það var ekki fyrr en í öðru
hjónabandi sínu að Marie missti mey-
dóminn, fertug að aldri. Því miður kom í
ljós að seinni eiginmaður Marie var ekki
ýkja betri elskhugi en sá fyrri. Hann veitti
henni heimild sína til að leita að kynlífi fyrir
utan hjónabandið, en engar heimildir eru
um að Marie hafi tekið því tilboði.
Eins og sjá má af þessu finna líklega
fleiri eitthvað sameiginlegt með meðaljónin-
um og konu hans en þeim Guy de Mau-
passant, Mae West og Marie Stopes. Sú að-
ferð dregur því upp mynd af kynlífi sem
fleiri kannast við. Hin aðferðin er hins veg-
ar ólíkt skemmtilegri og við skulum því
halda okkur við hana.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að
karlar hafa miklar áhyggjur af því hvort
tippið á sér sé nógu stórt. Það kom til
dæmis í ljós í nýlegri bandarískri könnun
að 45 prósent karla telja tippið á sér vera of
lítið eða alltof lítið. Aðeins 1 prósent telja
hins vegar að tippið á sér sé of stórt.
Bandaríski rithöfundurinn F. Scott Fitzgerald
var einn þeirra sem lá andvaka yfir því
hvað hann var lítt vaxinn niður. Hann leit-
aði til félaga síns og vinar, Ernest Heming-
way, sem fullvissaði hann um að ekkert
væri að tippinu á honum með því að bera
sitt eigið saman við tippi Fitzgeralds. Það
sorglega við þessa sögu er að Hemingway
sjálfur var með afskaplega lítið tippi (á
stærð við lítið skothylki, eftir því sem vinur
hans Sidney Franklin skrifaði). Hemingway
átti hins vegar alltaf erfitt með að sætta sig
við þetta og skýrir það ef til vill ofuráhersl-
una á karlmennsku sem finna má í bókum
hans.
Charlie Chaplin átti hins vegar ekki í
neinum vandræðum með að sætta sig við
sitt tippi. Chaplin hafði óvenju langt tippi,
kallaði það „áttunda undur veraldar" og
notaði það óspart. Hann var heltekinn af
hreinum meyjum og sagði sjálfur að „því
yngri, því betrib Hann kom auga á Litu Grey
þegar hún var sex ára, tók hana undir sinn
verndarvæng, gerði úr henni stjörnu og svaf
hjá henni þegar hún varð fimmtán ára. Það
orðspor sem fór af Chaplin kom honum
loks í koll. Þegar honum var vísað úr landi
í Bandaríkjunum var ástæðan sú að hann
væri „siðspilltur nautnaseggur".
En þótt margir félagar Chaplins í Holly-
wood hafi ef til vill verið meiri kyntröll í
hugum aðdáenda sinna en litli flækingur-
HEIMSMYND JÚLl'
Sex konur gefa upp
óskalistann sinn
JONA
LARUSDOTTIR
framkvæmdastjóri
Ágúst Baldursson
kvikmyndagerðarmaður
Sigurður Ólafsson fyrirsæta
Sigurður Gísli Pálmason
Magnús Þórðarson tannlæknir
Björn Sveinsson hjá Kók
Þorsteinn Joð
LINDA PE
fyrirsæta
Eyþór Arnalds
Friðrik Sophusson
Víglundur Pálsson bankastjóri á
Vopnafirði
Egill Ólafsson
Sjón
Simbi
HANNA MAJA
SIGURÐARDOTTIR
förðunarmeistari
Eiríkur Jónsson
Jón Ólafsson í Skífunní
Þorsteinn Joð
Ragnar Agnarsson
kvikmyndagerðarmaður
Björn Jörundur í Ný danskri
Izudin Daði Dervic
SISSA
Ijósmyndari
Keli kaldi
Denni umboðsmaöur Jet Black Joe
Eyþór Arnalds
Simbi hárgreiðslumeistari
Leifur Rögnvaldsson Ijósmyndari
Ari Alexander
hárgreiðslumeistari & myndlistarnemi
HJORDIS
GISSURARDOTTIR
gullsmiður
Þorgrímur Þráinsson
Geir Gunnar Geirsson eiginmaður
Valdimar Örn Flygenring
Jón Sigurðsson í Járnblendinu
Davíð Scheving Thorsteinsson
Kristinn Björnsson hjá Shell
DORA ÞORHALLSDOTTIR
móttökustúlka
hjá útvarpinu
Heimir Steinsson
Ólafur Egilsson sendiherra
Sveinn Björnsson hægri hönd Vigdísar
Ragnar Arnalds
Ólafur Ragnar Grímsson
Steingrímur Hermannsson