Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 12
Eiður vildi
í útvarpið
Ekki er enn afráðið hvort
Eiður Guðnason verði sendiherra
í Osló. Rætt hefur verið um að
Eiður taki við embætti útvarps-
stjóra og að Heimir Steinsson
verði færður í guðfræðideild
Háskóla íslands. Það skal tekið
fram að þessar breytingar hafa
aðeins verið ræddar óformlega
til þessa. Margir kratar eru
hrifnir af þessari fléttu, en það
sem helst kemur í veg fyrir
hana eru stöðuveitingarnar sem
Alþýðuflokkurinn hefur staðið
fyrir undanfarna daga; ráðning
Jóns Sigurðssonar í Seðlabank-
ann og sú ákvörðun að gera
Karl Steinar Guðnason að for-
stjóra Tryggingastofnunar ríkis-
ins.
Reykjavíkurkratar ætla
ekki að tilnefna borgar-
stjóraefni líkt og hinir
minníhlutaflokkarnir í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Innan Alþýðuflokksins er
ekki enn farið að skoða af
neinni alvöru hver verði
fenginn til að leiða fram-
boðslistann. Þó hefur nöfn
fjögurra manna borið á
góma, án þess að því fylgi
veruleg alvara. Þessir menn
eru Árni Gunnarsson. fyraim
alþingismaður, Þorlákur
Ottar Guðmundsson
fram fyrirkrata
Helgason, formaður Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur, Sig-
urður Pétursson, formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna og
eiginmaður Ólínu Þorvarðardótt-
ur borgarfulltrúa Nýs vettvangs,
og Óttar Guðmundsson læknir.
Kratar eru ekki bjartsýnir á
að fá góða kosningu í borgar-
stjórnarkosningunum næsta vor
og setja markið ekki hærra en á
einn borgarfulltrúa.
Kratar eru síður en svo hætt-
ir að hugsa um lausar stöður í
kerfinu þrátt fyrir að þeir hafi
eignað sér einar þrjár á sama
deginum fyrir skömmu. Eins og
kunnugt er hafði Ágúst Einars-
son, hagfræðiprófessor og for-
maöur bankaráðs Seðlabank-
ans, auga á stól Seðlabanka-
stjóra áður en endalega varð
ljóst að Jón Sigurðsson ætlaði
sér hann. Ágúst auglýsti meðal
annars stöðuna lausa til um-
sóknar til að gera Jóni erfiðara
fyrir að sækja um. Nú munu
vera uppi hugmyndir meðal
krata að líta framhjá sam-
komulagi stjórnmálaflokkanna
um skiptingu bankastjórastól-
anna i Seðlabankanum og skipa
krata í stað Tómasar Árnasonar
sem hættir um næstu áramót.
Þar með myndu kratar hirða
stólinn af Framsóknarflokknum.
Þetta yrði gert í nafni faglegs
mats, enda eiga kratar nokkra
menntaða hagfræðinga - þar á
meðal Ágúst Einarsson.
Reyndar hefur annar maður
verið nefndur sem liklegur arf-
taki Tómasar og er sá einnig
meiri krati en framsóknarmaður
- en það er Þorvaldur Gylfason
hagfræðiprófessor.
KRATA0 SNUA A FRAM-
SOKNISEÐLABANKANUM
Margir á móti
Markúsi
Innan borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins eru skiptar
skoðanir um frammistöðu
Markúsar Arnar Antonssonar
borgarstjóra í embætti. Hann á
sér einarða stuðningsmenn
innan borgarstjórnarflokksins,
en þar eru líka raddir sem telja
að hann hafi alls ekki staðið sig
vel. Reiknað er með að prófkjör
um val á framboðslistann verði
harðara nú en nokkru sinni
áður. Það er ljóst að fleiri vilja
verða borgarstjóraefni en
Markús Örn.
Það er kunn-
ugt að Vil-
hjálmur Þ. Vil-
h j á I m s s o n ,
Árni Sigfússon.
Katrín Fjeld-
sted og Júlíus
Hafstein vildu
öll fá embætt-
ið þegar Markús var fenginn til
að taka starfið að sér. Heimildir
HEIMSMYNDAR herma að
einhver þessara fjögurra stefni
enn að borgarstjórasætinu. Þá
er ekki vitað enn með vissu
hvort einhverjir kandídatar
komi annars staðar frá, það er
utan borgarstjórnarflokksins.
Einn borgarfulltúi flokksins
sagði að Markúsi Erni hafi alls
ekki tekist að sanna að hann sé
ótvíræður foringi borgarstjórnar-
flokksins og nokkrar ákvarðana
hans hafi sýnt svo ekki sé um
villst að hann sé allt annað en
sjálfsagður foringi. Meðal þess
sem borgarfulltrúi fann að
Markúsi Erni voru afskipti
borgarstjórans af skoðana-
könnun sem Félagsvísinda-
stofnun Háskólans gerði fyrir
HEIMSMYND um hver afstaða
Reykvíkinga er til borgarstjórn-
arflokkanna. Þá nefndi borgar-
fulltrúinn einnig að bréf borgar-
stjóra til hinna ýmsu embættis-
manna borgarinnar um að
beina viðskiptum til Hótel
Borgar sýni að Markús Örn geri
of mikið af mistökum til að geta
talist sjálfsagður sem borgar-
stjóraefni í komandi kosn-
ingum.
12
HEIMSMYND
J Ú L I