Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 11
mnskot
Fer Stefán Jón í
borgarstjoraslag?
Titringur vegna borgarstjórn- að að hann verði borgarstjóra-
arkosninganna eykst stöðugt.
Eins og áður hefur komið fram
hefur verið rætt við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur alþingis-
mann og Sigrúnu Magnúsdóttur
borgarfulltrúa um hvort önnur
hvor þeirra sé fáanleg til að
verða sameiginlegt borgar-
stjóraefni núverandi minni-
hlutaflokka í borgarstjórn. Al-
þýðubandalagsmenn eru einnig
að undirbúa kosningarnar og á
þeim bæ hefur verið rætt við
Stefán Jón Hafstein og þess ósk-
efni núverandi minnihluta-
flokka.
Ef Stefán Jón segir já verða
minnihlutaflokkarnir að velja á
milli þessara þriggja, Ingi-
bjargar Sólrúnar, Sigrúnar og
Stefáns Jóns. Samkvæmt því
sem HEIMSMYND heyrir á Sig-
rún minnstu möguleikana. Þó
verður að geta þess að það hafa
verið framsóknarmenn sem hafa
verið tregastir allra til að ganga
til samstarfs eða samvinnu með
hinum flokkunum.
FYRSTA VERK SIGHVATAR
Fyrsta verk Sighvatar Björg-
vinssonar sem iðnaðar- og við-
skiptaráðherra mun hafa verið
að útvega sér greiðslukort í
nafni ráðuneytanna. Þetta
minnir á söguna þegar Halldór
Blöndal var valinn sem ráð-
herra á þingflokksfundi sjálf-
stæðismanna, fór út að borða
um kvöldið og lét skrifa það á
landbúnaðarráðuneytið. Reikn-
ingurinn kom þá á undan ráð-
herranum í ráðuneytið.
HEIMSMYND JÚLÍ
Friðrik lamdi
Jón upp í skuld
Þær fréttir þóttu einna merk-
astar frá kvikmyndahátíðinni í
Cannes að þeir Friórik Þór
Friðriksson kvikmyndagerðar-
maður og Jón Ólafsson í Skíf-
unni hefðu lent í handalögmál-
um í stórveislu undir lok hátíð-
arinnar. Þótt ástæða þessara
slagsmála felist sjálfsagt í því að
annar hvor eða báðir þeirra hafi
fengið sér of ntikið að drekka
má einnig segja að þarna hafi
komið upp á yfirborðið görnul
deila þeirra félaga. Þannig er
mál með vexti að fyrirtæki Frið-
riks Þórs, íslenska kvikmynda-
samsteypan, var meðframleið-
andi Sódómu Reykjavíkur, kvik-
myndar Óskars Jónassonar, en
Jón Ólafsson var aðalframleið-
andi. Friðrik Þór lagði til hljóðið
í myndina og átti að fá greitt
þegar fleiri en 32 þúsund áhorf-
endur hafi borgað sig inn. Þrátt
fyrir að Jón hefði gefið út yfir-
lýsingar um að myndin hefði
náð meira en 40 þúsund
áhorfendum fékk Friðrik Þór
aldrei neitt borgað frá honum.
Sú var staðan úti í Cannes og
hefur það sjálfsagt haft sitt að
segja urn kærleikana milli þeirra
tveggja.
Friðrik stefndi síðan Jóni, en
þeir náðu sáttum áður en málið
fór fyrir dóm. Sú sátt mun hins
vegar ekki hafa enst lengi, því
Jón greiddi ekki það sem sáttin
kvað á um.
Annars er það af kvikmynda-
framleiðandanum Jóni Ólafssyni
að frétta að hann sækist mjög
stíft eftir formennsku í Sam-
tökum íslenskra kvikmynda-
framleiðenda. Þar á bæ er mikil
andstaða við Jón, eins og víðar
hefur verið þar sem hann hefur
sóst eftir metorðum.
11