Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 15

Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 15
< það eftir sér. Þegar stjórn Byggðastofnunar kvartaði líka hótaði Davíð að minnka fjár- umsvif stofnunarinnar og flytja hana til Akureyrar. Davíð lýsti einnig yfir opinberu gjaldþroti fiskeldisins á tröppunum fyrir utan Stjórnarráðið, benti á glórulausa fjár- festingu í rækjuvinnslum og lokaði Álafossi. Framganga Davíðs á fyrstu mánuðunum fékk menn til að trúa því að komin væri til valda ríkisstjórn sem ætlaði sér að fram- kvæma langþráðan uppskurð á íslensku efnahagslífi, loka fyrir pólitíska fyrirgreiðslu og hætta beinum afskiptum af atvinnulífi. í dag er fátt sem minnir á þessa hveiti- brauðsdaga. Ríkisstjórninni hefur mistekist að mynda sér stefnu í öllum stærstu málum. Tilraunir hennar til að koma sér saman um stefnu í sjávarútvegsmálum eru fyrir löngu orðnar að farsa. Stjórnin nánast leystist upp í síðustu kjarasamningum. Að lokum létu ráðherrar Alþýðuflokksins og Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra það eftir Davíð að gera Alþýðusambandinu og vinnuveitend- um tilboð um efnahagsaðgerðir svo að samningar mættu takast. Þessar aðgerðir urðu að lögum aðeins fáeinum dögum áður en niðurstöður rannsókna fiskifræðinga Fiafrannsóknarstofnunar lágu fyrir en þær niðurstöður kölluðu á enn nýjar aðgerðir. Eftir sérkennilegar yfirlýsingar Davíðs þar sem hann fól Þorsteini Pálssyni í raun öll völd í landinu skipti hann um skoðun og ákvað að kalla saman stóra samráðsnefnd allra stjórnmálaflokkanna, atvinnurekenda og launþega til að gera tillögur um efna- hagsaðgerðir. Halldór Ásgrímsson hitti nagl- ann á höfðið þegar hann sagði að þjóðin þyrfti fremur sterka stjórn sem gæti tekið á alvarlegum vanda heldur en einhvers konar þjóðstjórn eða þjóðráð. Þessi síðasti leikur Davíðs minnir aftur á ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar. Þegar ríkis- stjórn Þorsteins var orðin óstarfhæf vegna ágreinings og áhugaleysis greip Þorsteinn til þess ráðs að kalla saman ráðgjafanefnd til að smíða efnahagstillögur, svokallaða bjarg- vættanefnd. Sú ráðstöfun bjargaði ekki stjórninni. Ríkisstjórn sem gat ekki komið sér sam- an um eigin aðgerðir gat heldur ekki staðið saman að aðgerðum sem hún hafði pantað utan úr bæ. Á endanum hrintu þeir Stein- grfmur og Jón Baldvin flestum af tillögum bjargvættana í framkvæmd í annarri ríkis- stjórn. Ótti meðal flokksmanna stjórnarflokkanna. Þótt ekki sé mikið mark takandi á Félagi ungra jafnaðar- rnanna, þá gefur það nokkra mynd af áliti almennra flokksmanna stjórnarflokkanna á ríkisstjórninni að ungkratar sendu frá sér ályktun um daginn þar sem þeir reyndu að þvo hendur Alþýðuflokksins af ástandi « stjórnarinnar. Þeir ályktuðu að það væri fyrst og fremst fyrir klaufaskap forsætisráð- HEIMSMYND JÚLf herra sem ríkisstjórnin hefði misst alla tiltrú al- mennings. Þessir ungu jafn- aðarmenn sögðu forsætis- ráðherra að taka sig saman í andlitinu eða segja af sér ella. Þótt sjálfstæðismenn, hvorki ungir né aldnir, muni ekki senda frá sér slíkar ályktanir þarf ekki að tala við marga almenna flokksmenn til að heyra svipaðan tón. Þeir geta ekki ráðið í það frekar en aðrir landsmenn hvert þessi ríkisstjórn er að fara, né hafa þeir trú á að hún afreki eitthvað það á tveim- ur næstu árum sem geti tryggt Sjálfstæðisflokknum þolanlega útkomu í næstu kosningum. Nú þegar kjörtímabilið er hálfnað og rúm tvö ár síðan Davíð Oddsson varð formaður Sjálfstæðisflokks- ins, og í framhaldi af því forsætisráðherra, er því eðlilegt að spyrja hvort andstæðingar hans í for- mannskjöri og kosningabar- áttu hafi haft rétt fyrir sér um afleiðingar af reynslu- leysi hans af landsmálun- um. Eða er það ef til vill eitthvað annað sem veldur því hvernig komið er fyrir ríkisstjórn hans? Hið dýrkeypta Hrafns-mal. Ríkisstjórnir geta tapað trausti almennings í stórum málum og smáum. Og lík- ast til hefur ekkert einstakt mál skaðað þessa ríkis- stjórn, og Davíð sjálfan, jafnmikið og Hrafns-málið. Það hlýtur að vera erfitt fyr- ir Davíð að kyngja því, enda færði málið honurn ekkert annað en að gamall vinur hans, Hrafn Gunn- laugsson, fékk stöðu hjá Ríkissjónvarpinu í stað þeirrar sem hann missti. Á mánudeginum eftir að Hrafn hafði verið skipaður framkvæmdastjóri ræddi ég við tvo af nánum vinum Davíðs og ráðgjöfum. Báðir voru þeir sigri hrósandi. Þeir töldu að með því að skipa Hrafn framkvæmda- stjóra beint ofan í brott-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.