Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 26

Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 26
Ef að líkum lætur mun næsta bíómynd Hrafns Gunnlaugssonar kallast Butterfly. Myndin gerist í Víetnam og fjallar um Bandaríkjamann sem barðist þar í stríðinu og snýr aftur til að leita uppi staðinn þar sem hann hefði átt að deyja. Hrafn verður líklega eini íslendingurinn sem kemur nálægt myndinni, en hann semur handritið, leikstýrir og framleiðir að hluta á móti kvikmyndafyrirtæki víet- namska ríksins. Þeir sem mest fussuðu síðasta vetur yfir aðgangi Hrafns að ís- lensku ríkisjötunni verða því líklega kjaftstopp nú. Upphaflega fór Hrafn til Víetnam að kanna tökustaði fyrir allt aðra mynd, eftir handriti sem hann hafði byggt á Pan eftir Knut Hamsun. í Víetnam kynntist hann hins vegar Bandaríkja- manni sem ekki var að leita að tökustöðum, heldur staðnum þar sem honum fannst að hann hefði átt að deyja - ásamt öllum þeim sem hrundu niður í kringum hann þegar hann kom þang- að síðast. Þessi kynni, ásamt annarri upplifun Hrafns í ferðinni, urðu til þess að hann stakk Pan undir stói og skrifaði nýtt handrit. Sagan er um amerískan hermann sem snýr heim frá Víetnam mörgum árum eftir að hann var talinn af. Heima er flest breytt, konan tekinn saman við annan mann og ekkert sem fyrr. Hermaður- inn snýr aftur til Víetnam og kynnist þar evrópskum vísindamanni og Ijósmynd- ara og víetnamskri eiginkonu hans. Undirtónar sögunnar eru ást, afbrýði og dauði. Þessi sinnaskipti Hrafns, frá Pan yfir í Butterfly, minna um margt á þegar hann ætl- aði að kvikmynda Gerplu eftir Laxness, skipti um skoðun og gerði Hrafninn flýgur. Það er besta mynd hans og ef til vill eru sinnaskiptin nú því fyrirboði um að búast megi við miklu af Butterfly. í myndinni verða hlutverk fyrir tvo vestræna leikara. Og fyrir utan þá tvo, Hrafn og örfáa tæknimenn, verður allt starfslið myndarinnar víet- namskt. Og ólíklega nokkur íslendingur. Þetta víetnamska kvik- myndafyrirtæki heitir Giai Phong og væri sjálfsagt öllum Vesturlandabúum óþekkt ef það hefði ekki átt þátt í gerð frönsk-víetn- ömsku myndarinnar L'Amant þar sem 15 ára leikkona fór hamförum í ástarsenum. Það er annars af Pan hans Knut Hamsuns að frétta að danski leikstjór- inn Henning Carl- sen hefur leyst til sín kvikmyndaréttinn að bókinni og hyggst hefja tökur innan tíðar. Hrafn getur því prísað sig sælan yfir að hafa rekist á Bandaríkjamanninn sem vildi finna staðinn þar sem hann átti að deyja. Ef hann hefði haldið fast í Pan hefði hann mátt búast við hljóði úr horni danskra lögfræðinga. Hann er 43 ára, fæddur og uppalinn í Kenýu, síkatrúar, ættaður frá Punjab á Ind- landi, útlærður flugvélvirki, fyrrverandi flugþjónn, ís- lenskur ríkisborgari undan- farin 12 ár og dæmigerður reykvískur fjölskyldufaðir og kaupsýslumaður sem á ótrú- legri velgengni að fagna. Kreppugaulið lætur hann eins og vind um eyru þjóta. Áreiðanleika og nákvæmni hans í viðskiptum er við brugðið og traustið sem hann nýtur í bankanum sín- um er sagt vera slíkt að undirskriftin hans sé bara formsatriði. íslensk-austurlenska heitir fyrirtækið hans og þar eru Oro- blu-sokkabuxur miklvægasta varan. Þær eru ítalskar og hvergi eins mikið seldar og á íslandi. Þetta á sinn þátt í því að nú, þegar Oroblu-samsteyp- an er að byrja að selja varning sinn í „Ameríkunum" er það þetta íslenska fyrirtæki sem hefur fengið einkaleyfi á þeim viðskiptum. Ari Singh hefur sinn eigin viðskiptastíl, og sá stíll er tals- vert frábrugðinn hefðbundnu háttarlagi íslenskrar verslunar- stéttar á updanförnum árum. Það væri nær að líkja þessum viðskiptastíl við það sem tíðk- aðist hér í höfuðborginni þegar varfærni og viss íhaldsemi ein- kenndu verslunarhætti, en ekki sú ævintýramennska og glanna- skapur sem boð- uðu upphaf sam- dráttarskeiðsins sem við erum að ganga í gegnum nú. í fyrirtækinu hans uppi á Bíldshöfða eru starfsmenn fáir, innan við tíu þegar mest er. Yfirbygging er engin. Sjálfur stjórnar hann fyrirtækinu, tekur allar ákvarðanir og sér um alla samninga. Forstjóraskrifstofan er smáskonsa. Þar er engin tölva, einfaldlega af því að forstjórinn notar ekki tölvu. Hann segist Líkamiogsál hafa allar helstu tölur og upp- lýsingar i höfðinu, því forriti sem bersýnilega dugar honum ágætlega þegar þess er gætt að hann er nú með 75 prósent af íslenska sokkabuxnamarkaðn- um og er í þann veginn að hefja markaðssókn í Ameríku. Hvernig ætlar hann að fara að því að komast með ítalska hágæðavöru inn á það risa- vaxna markaðssvæði? Byrjar hann á stórfelldri söluherferð í dýrustu búðunum í New York með tilheyrandi fjármokstri í auglýsingar? Nei, hann ætlar að byrja smátt. í Caracas, höfuð- borg Venúsela, og færa sig síð- 26 HEIMSMYND J Ú L í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.