Heimsmynd - 01.07.1993, Qupperneq 44
eitthvað meira en
fjölbreyttar stelling-
ar, eitthvað meira en
stærð, tíðni, fjöldi og
tímalengd. Fólk
getur gert allt rétt
samkvæmt bókinni,
en allt vitlaust samt.
Fólk á auðveldara
með að segja hvað
er vont kynlíf. Ein-
kennin eru mörg:
Menn sem eru of
fljótir. Menn sem vanda sig of mikið og
korna sér aldrei að verki. Konur sem taka
aldrei frumkvæðið. Konur sem eru of
ágengar. Menn sem rata ekkert um kynfæri
konunar og spyrja aldrei til vegar. Konur
sem hafa Kvinde kend din krop á náttborð-
inu. Karlar sem eru of harðhentir. Konur
sem eru aðgerðalausar. Karlar sem eru of
blíðir. Konur sem gera sér upp fullnæg-
ingar. Karlar sem geta ekki hlegið í rúminu.
Og svo framvegis.
Og það er til nóg af slæmu kynlífi.
Kannanir hafa til dærnis leitt í ljós að
fjórðungur karla segist ekki átta sig á hvort
konan hafi fengið fullnægingu eða ekki. 12
prósent kvenna eru ekki svo viss heldur
um fullnægingu karlsins. Hjá þessu fólki
eru samfarirnar eins konar einfarir. Og ef
kannanir eru skoðaðar kemur í ljós rneira
af vondu kynlífi. Meira en helmingur karla
og tæpur helmingur kvenna segist hafa haft
samfarir vegna þess að þau voru of drukk-
in. Þriðjungur beggja
kynja segist hafa haft
samfarir vegna ein-
mannaleika.
Það skal því eng-
an undra að það sé
stór markaður í
kringum leit fólks að
betra kynlífi. Það er
einfaldlega ekki
nokkuð sem þú
gleymir. í gegnurn
aldirnar hefur mað-
urinn reynt að telja
sér trú um að kynlíf
sé syndugt, óhollt,
siðspillandi, orku-
eyðandi og guði
ekki þóknanlegt.
Andy Warhol reyndi
meira að segja að
halda því fram að
það væri álíka
spennandi og símtal.
En allt hefur komið
fyrir ekki. Manninum hefur ekki tekist að
halda kynþörfinni í skefjun.
En ef til vill er gott kynlíf ekki svo gott.
Ef þú upplifir einhvern tírna gott kynlíf
viltu strax meira. Og ef þú færð meira þá
viltu enn meira. Ef það tekst ekki muntu
eyða ævinni í að leita það uppi. Þess vegna
er vont kynlíf ef til vill betra en gott kynlíf.
Það rænir mann hvorki svefni né sálarró.
Ekkert kynlíf rænir rnann hvoru tveggja.
TALAIMDI
KYINILIF
Það má segja...
...eitthvað fyndið
...þú ert falleg(ur)
...mig langarí þig
...þetta er gott
...aðeins ofar
...já, já, Já, JÁ
...ég elska þig
...mig langar að
eignast barn með þér
...viltu giftast mér
TALAIMDI
KYINILIF
Það má ekki
segja...
...hvað er að húðinni
á þér?
...getum við ekki verið
fljót, ég þarf að ná
síðasta strætó
...vitlaust nafn
...láttu eins og ég sé
hann
...Júhú, jabba dabba
dú
...ertu ekki að verða
búinn
...ertu búinn
...er þetta silikon
...usss, ég heyri
eitthvað
...passaðu að rugla
ekki hárið
...ég elska þig
...mig langar að
eignast barn með þér
...viltu giftast mér
Risaskjaldbaka nauðgar
konu, maður sem dregst
kynferðislega að trjám,
15 klukkutíma samfarir
og önnur dæmi um
öfgakennt,
skrítid
og
fáranlegt
kynlít
Það eru tvær aðferðir til að átta sig á
mannskepnunni og háttarlagi hennar.
Annars vegar getur maður reynt að
draga upp mynd af meðalmanninum
og konu hans. Þau hjón eru samsuða
þess sem er algengast meðal manna. Ef
við hefðum áhuga á kynlífi þeirra
kæmumst við að því að hvorugt segist
hafa haldið framhjá, konan segist ekki
fróa sér en karlinn gerir það um þrisv-
ar í viku; þau hafa hvort um sig átt
þetta tvo til fimm elskhuga um dagana
og þegar þau hjónin elskast, sem þau
gera um fjórum sinnum í viku, er karl-
inn yfirleitt ofan á.
Önnur leið til að átta sig á mannskepn-
unni er draga fram öfgana. Þá segir maður
ekki að karlar hafi að meðaltali um 15
sentímetra langt tippi þegar þeim stendur,
heldur að tippin þeirra geti verið allt frá
einurn sentímetra, eins og fram kemur í
rannsóknum Alfreds Kinsey. og allt upp í
35 sentimetra, en Dr. David Reuben, höfund-
ur Allt sem þú vildir vita um kynlífið en
þorðir ekki að sþyrja, þóttist þekkja dæmi
um slíkan lim. Þá kemst maður að því að
franski rithöfundurinn Guy de Maupassant
sagðist geta haft samfarir tuttugu sinnum á
nóttu og sannaði það fyrir kollega sínum
Flaubert þegar þeir féla
heimsóttu hóruhús í París
Maupassant sagðist ekki
vera þreyttari eftir tuttugu
ástarleiki en tvo. Og
maður kemst að því að
kynbomban Mae West
og maður að nafni Ted
HEIMSMYND JÚLÍ