Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 48

Heimsmynd - 01.07.1993, Blaðsíða 48
Jean Harlow lifði lánlausu kynlífi þrátt fyrir óumræðanlegan kynþokka. Eftir þrjú mislukkuð hjónabönd hellti hún sér út í stjórn- laust kynlíf og pikkaði upp menn í kvikmynda- húsum þar sem myndir hennar voru sýndar. Ernest Hemingway hugg- aði F. Scott Fitzgerald með því að sýna honum að þeir væru með jafnstór tippi og því væri ekkert að tippinu hans Fitz- geraíd. Hemingway var hins vegar með dverg- vaxið tippi og skýrir það ofuráherslu hans á karl- mennsku í bókum sínum. Guy de Maupassant státaði sig af því að geta sængað með tuttugu konum sömu nóttina. Þegar menn drógu það í efa sannaði hann mál sitt á hóruhúsi í París. Immanuel Kant er ein fárra þekktra persóna úr mannkynssögunni sem menn telja víst að hafi ekki stundað neitt kynlíf. Hann dó hreinn sveinn, áttræður að aldri. keisaraynju Kládíusar. Hún giftist Kládíusi þegar hún var sextán ára, en hóf ofvirkt kynlíf sitt þegar hún var á fjórtánda ári. Ef hún girntist mann gaf Kládíus út keisaralega tilskipun um að sá skyldi láta eftir duttlungum hennar. Og til að fá fýsnum sínum betur fullnægt eyddi hún nóttunum á hóruhúsum Rómarborgar, þar sem hún vann kauplaust en algjörlega þindarlaust. Mörgum sögum fer af óhóflegu kynlífi keisaranna sjálfra og eru þeir Neró og Kalí- gúla líklega frægastir fyrir kynlífssamkvæmi sín, óslökkvandi losta og öfuguggahátt. Tíberíus slær þeim þó líklega við. Á langri ævi reyndi hann flestallar útgáf- ur af kynlífi sem mannshuganum getur hugkvæmst. Þegar hans eigin geta fór að dala kom hann sér upp sérstökum búðum þar sem hann gat horft á þræla iðka kynlífsleiki. Hann lét unga drengi, sem hann kallaði smáfiska, svamla um í lauginni og gæla við sig þegar hann synti 200 metranna. Saurlífi Tíberíusar gekk svo langt að meira að segja rómverska aðlinum var nóg boðið. Eitt sinn þegar hann girntist ungan must- erisþjón og bróður hans, lúðraþeytara musterisins, en þeir vildu ekki þýðast hann greip hann til þess ráðs að láta fótbrjóta þá báða. En fólk þarf ekki að vera keisari eða keisaraynja til að hegða sér einkenni- lega í kynlífinu. Og í raun eru einkennileg- heitin ekki svo fátíð. Það kom til dæmis fram í áðurnefndri könnun Kinseys að 8 prósent bandarískra karla og 3 prósent bandarískra kvenna viðurkenndu að hafa átt einhvers konar kynferðislegt samband við dýr. Alls kyns dýr komu við sögu: Hundar, kýr, kindur og jafnvel fiskar, snák- ar og skordýr. Það er því ef til vill ekki alveg úr lausu lofti gripið, þótt það hafi án efa ekki verið dagsatt, þegar hið kostulega blað The Weekly World News birti 1985 frétt um að frú Penelope Grange frá Little Rock í Arkans- as hafi verið nauðgað af risaskjaldböku. Frú Grange hafði sofnað á ströndinni á meðan maður hennar skrapp eftir ís handa þeim hjónum. Penelope kom aftur við sögu í Tloe Weekly World News 1989. Þá sagðist hún hafa orðið fyrir kynferðislegri árás högg- orms þegar hún var að hengja út þvott. Og mannskepnan hefur líka leitað út fyr- ir dýraríkið að kynferðislegri ögrun. Þannig voru fyrstu félagar breska rithöfundarins James Boswell ekki menn og ekki dýr, heldur tré; hann fróaði sér með þvi að nudda sér upp að trjábolum. Boswell leið vítiskvalir vegna þessarar syndar sinnar og reyndi nokkrum sinnum að gelda sig. Síðar á ævinni komst hann í kynni við annars konar synd þegar hann uppgötvaði hórur. Ef til var það vegna fyrri kynna sinna af trjám að hann var ekki ýkja blíður við gleðikonurnar og varð fljótt þekktur meðal þeirra fyrir andstyggilegheit. Það má því segja að það hafi verið gott á hann þegar einhver þeirra smitaði hann af lekanda. Og það er til undarlegri ástríða en sú sem beinist að trjám og öðrum gróðri. í bók sinni, Uppátœki kynlífsins, segir Gerald Roaster frá manni sem þjáðist af íkveikjuáráttu og hann kallar Eldhugann. Eina leiðin sem þessi náungi kunni til að svo mikið sem hugleiða kynlíf var þegar hann kveikti í opinberum byggingum. Eldhuginn, sem bjó í Toronto í Kanada, sagðist fá bestu fullnægingarnar þegar hann kveikti í bókasöfnum. Hann hafði reynt spitala, lög- reglustöðvar og stórmarkaði en „það var samt aldrei eins gott“. William Marsano. höfundur bókar sem heitir Maður sem svelgist á kartöflu og fjallar um undarleg og kynferðisleg uppátæki, segir frá 21 árs manni sem var handtekinn í K-Mart-stór- markaðsverslun fyrir að stinga tippinu á sér í kaikku með salatolíu. Og einnig frá konu sem var stöðvuð í öðrum stórmarkaði við að fróa sér á frosinni pylsu. Og svo enn sé vitnað í bækur, þá gáfu Mikhail og August Stern út eina 1981 og heitir sú Kynlíf í Sovétríkjunum. Þeir bræð- ur segja þar frá því er þeir sátu í leigubíl á leið heim frá Moskvu-flugvelli eftir sumar- leyfi í Kákakus. Skyndilega byrjaði bílinn að rása til á veginum og virtist bílstjórinn vera að missa alla stjórn á ökutækinu. Þegar bræðurnir litu út um framrúðuna kom skýr- ingin í ljós. Á gatnamótum framundan stóð lögreglumaður og stjórnaði umferðinni með sérkennilegri aðferð. Hann hafði rennt nið- ur buxnaklaufinni, tekið út á sér tippið og notaði það við umferðastjórnina með því að sveigja það upp og niður og til hægri og vinstri, allt eftir settum reglum. Lög- reglumaðurinn var að sjálfsögðu handtek- inn og skýrði fyrir dómara að hann hefði allt i einu fundið hjá sér löngun til að stjórna umferð með tippinu. „Eg vissi vel hvað ég var að gera, en þar sem ég var í raun ekki að skaða neinn hugsaði ég með sjálfum mér: hvers vegna ekki?“ essi rússneski lögreglumaður vekur þarna máls á meginspurningunni um sérkennilegheit í kynlífi. Það er erfitt að fordæma þá sem fara ekki troðnar slóðir á því sviði, svo framarlega sem þeir skaða ekki aðra. Jóna Ingibjörg Jóns- dóttir hélt úti kyn- lífsdálki í Pressunni í nokkur ár og þar var meginstefið alltaf það sama; ef báðir aðilar vilja, þá er allt í besta lagi. Og þar sem hér hefur verið rætt um frekar öfga- fullt kynlíf má bæta við þessa kennisetn- ingu og segja: Ef báðir aðilar vilja það og geta tjáð sig um það, þá er allt í besta lagi. En þótt auðvelt sé að ætla að kynlífs- þrælar Tíberíusar IVIunnlecj-t kynlíf húnmá ...nota allan munninn ...sjúga eins og þú sést að sjúga safan úr appelsínubát ...sjúga fast ...sjúga laust ...fara mjúkum höndum um eistun og gæta þess að vanrækja þau ekki ...nota hendurnar ...venja sig á bragðið afsæði; ef fólki tekst að venja sig á bragðið af siginni skötu er allt hægt hún má ekki ...vera of metnaðargjörn (það var bara ein Linda Lovelace og auk þess er hægt að eyðileggja stemminguna með því að kúgast) ...bíta, nema hún sé sérstaklega beðin um það ...tala meðfullan munninn ...hrækja útúrsér sæðinu með viðbjóði (það má vel vera að það bragðist ekki eins og rjómaís, en það er óþarfi að hafa hátt um það) ...blása 48 HEIMSMYND J Ú L í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.