Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 55

Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 55
margt háðir ákvörðunum annarra en það má aldrei bitna á verkunum, ef leikari er orðinn það fastur inni í einhverrí stofnun að það hái beinlínis því sem hann er að gera í sínu starfi, ber honum skylda til að snúa þeirri þróun við og vera trúr sinni köllun. Allir listamenn eru í einhverju háðir duttlungum annarra, rithöfundar útgefend- um og myndlistarmenn galleríeigendum og kaupendum verkanna. Það er ekki síst í trausti þess að ég er óragur við að takast á við það hlutverk leikhússtjórans að reka og ráða fólk. Uppsagnir í leikhúsum eru alltaf sársaukafullar, eins og allt slíkt getur verið sem hefur með fólk að gera. Það er kannski auðvelt fyrir mig að tala vegna þess að ég hef aldrei gifst neinu nema leik- húsinu, eina raunverulega ástarsamband mitt er við leikhúsið. Það er hins vegar full- ur skilningur á því meðal leikhúsfólks að það er alltaf nauðsynlegt að endurnýjun eigi sér stað. Leikarar þurfa að gera það ansi snemma upp við sig hver á að þjóna hverjum, þeir listinni eða listin þeim.“ Spurður að segist hann hafa orðið var við vissar væntingar til sín frá vinum sínum í leikarastétt: „Ég á marga góða vini og þeir eru flestir hæfileikaríkir en ég lít svo á að leikhússtjórastarfið sé einna stærsta hlut- verkið mitt og ég hlakka til að takast á við það af fullum heilindum. Þó að það komi þær stundir að ég þurfi að vasast í pappír- um og sleikja frímerki er það þáttur sem ég þekki mætavel úr starfi minu með EGG-leikhúsið. Ég vil skoða þetta sem skapandi starf og kem til með að rækja það þannig og það er öllum fyrir bestu að stjórnendur séu skuldlausir þegar þeir gegna störfum sínum. Ég mun láta fagleg sjónarmið en ekki kunningsskap ráða ferð- inni við val mitt á fólki til starfa hér í leik- húsinu og þó að ég komi til með að þurfa að særa einhverja vini mína með því, þá held ég að það sé góð vitneskja fyrir þá sem ráðast hér við leikhúsið að þeir séu þar vegna þess að þeirra sé þörf en ekki öfugt. En sú tilfinning að vera kominn hingað til Akureyrar aftur er mjög sérstök og ákaflega góð. Alls staðar hef ég mætt miklum velvilja og góðu fólki.“ Eiga Akureyringar ekkert sökótt við þigfrá fyrri tíð? „Nei, ekki að ég veit og ég vona að það verði einnig þegar ég fer héðan aftur“ segir hann og hlær. „Þegar ég var hérna síðast starfandi við leikhúsið þá hitti ég reyndar móðurafa minn sem var mjög sérstakur maður, hvíthærður og beinaber í andliti með blá augu sem voru jafnan dálítið vot eins og hann hefði grátið. Ég hafði ekki séð hann síðan ég var pínulítill og við bjuggum í Njarðvíkum. Hann yfirgaf ömmu mína og fjölskyldu mjög snemma í því skyni að fara að vinna á Húsavík en kom aldrei aftur. Þarna stóð (Framhald á bls. 94) akmarkast við færra fólk en í Reykja- ,ð er því enn meiri nauðsyn en ella a mikla hreyfingu á starfsfólki. Eftir i unnið sem leikari hjá Leikfélagi Ak- r í tvö ár, sat ég eitt sinn úti í sal áhorfenda og horfði á. Þá rak ég í stól sem ég kannaðist við af svið- því að ég var unglingur. í stólnum :ari sem Akureyringar könnuðust við flestum sýningum félagsins síðustu ; sjálfur hafði ég ýrnist staðið upp við tið á rassinum i þessum stól þau tvö ég hafði verið þar við störf. Þar sem í þessum hugleiðingum þá fannst rða að Akureyringum væri ekki nóg af þessum stól og öðrum húsgögn- um á sviðinu, mér og fleirum. Það er eins og hver leikmyndateiknarinn á fætur öðr- um hafi kontið til starfa og byrjað á því að reka augun í þennan æðislega stól. Það þarf vart að taka fram að nú er þessi stóll ekki lengur á sviðinu. Hann er kominn undir rassinn á leikhússtjóranum," og Viðar bankar undir roskinn stól sem ber hann uppi hér á skrifstofu leikhússtjórans. „En þarna tók ég þá ákvörðun að segja upp áður en ég yrði eins og hver önnur mubla, það hef ég gert í gegnum tíðina þegar mér hefur fundist komið nóg af mér inni í leik- húsum. Þessi leikhússtjórastóll sem ég sit í núna er ekki öruggt sæti þó hann hafi tekið þátt í mörgum sýningum. Leikarar eru um M S M Y N D J Ú L í 55
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.