Heimsmynd - 01.07.1993, Page 58
Hvað er að fólki sem keypti sér
V—2000 myndbandstæki, kaus Heima-
stjórnarsamtökin og kaupir sér alklæðnað
daginn áður en hann fer á útsölu.
Gunnar Smári Egilsson veltir þessu fyrir sér,
Fólk senrvmisskilur
sanrvtimann
Kunningi minn þreytist aldrei á að
segja mér sögu af frænda sínum sem
þráði að verða ríkur. Hann reyndi allt,
en ekkert gekk. Ef hann flutti buxur til
landsins fóru þær úr tísku á leið yfir
hafið. Hann fékk umboð fyrir leikföng
sem börn vildu ekki sjá. Flestum sem
þekktu hann var ljóst að hann hefði
ekki viðskiptavit. Hann haföi það ekki í
sér. Sjálfur taldi hann sig óheppinn.
Loks var svo komið að bilskúrinn hans
var orðinn fullur af alls kyns drasli sem
enginn leit við, hann var orðinn
blankur og stórskuldugur, vinirnir
forðuðust hann og konan var að gefast
upp. Þeir einu sem vildu eitthvað með
hann hafa voru lögfræðingar og þeir
eltu hann uppi með stefnur, lög-
taksbeiðnir og hótanir um gjaldþrot.
Þá loks fékk þessi frændi kunningja míns
gullið tækifæri. Hann varð heppinn. Að
honum vék sér rnaður og bauð honum um-
boð fyrir litla bláa kalla úr plasti. Hann
sagði að börnum þætti vænt um þessa kalla
og vildu eiga þá. En frændi kunningja míns
fúlsaði við köllunum. Hann sagði við mann-
inn: "Neeei, ég hef nú látið gabba mig út í
ýmislegt i gegnum árin en svona vitlaus er
ég ekki."
Og þar sem frændinn hafnaði litlu, bláu
köllunum fékk einhver annar umboðið,
kallaði þá Strumpa og græddi svo óheyri-
lega að hann er sjálfsagt enn að
reyna að eyða peningunum.
Frændinn er hins vegar orðinn
gjaldþrota á tilraunum sínum til að
verða ríkur, konan er farin frá
honum og hann er löngu búinn að
missa bílskúrinn á uppboð.
vað gengur að fólki eins og
þessum frænda kunningja
míns? Sem tekur ranga ákvörðun í
hvert sinn sem það þarf að ákveða
sig. Það skilur ekki skilaboðin sem
flestir aðrir sjá. Það verður
ástfangið af þeim sem eru annað
hvort á leið í ræsið eða út úr
skápnum. Það kaupir sér alklæðn-
að daginn áður en hann fer á
útsölu. Það fyllist eldmóði og gengur í
Heimastjórnarsamtökin. (Það var flokkur
sem bauð fram fyrir síðustu kosningar.
Hann fékk svo fá atkvæði í sumum
kjördæmum að ef við gerum ráð fyrir að
allir sem áttu sæti á framboðslistunum hafi
kosið flokkinn, þá þarf ekki mikla
reikningslist til að sjá að flestir makar þeirra
hafa svikist undan merkjum.) Þetta fólk
virðist ekki átta sig. Það skilur ekki samtíma
sinn. Stundum í stóru, stundum smáu.
Munið þið til dæmis eftir quadrophone-
hljómflutningstækjunum? Þetta voru fjögurra
rása tæki sem áttu að vera helmingi full-
komnari en steríó—tækin, sem höfðu að-
eins tvær rásir. Gallinn var sá að mann-
skepnan hefur aðeins tvö eyru og getur því
ekki notið hágæða quadrophone—tækj-
anna. Eina leiðin til að skynja hljóminn var
að láta græða á sig tvö ný eyru. Samt er til
fólk sem keypti þessi tæki.
Ég hef fyrir satt að Jóhann Hjálmarsson
skáld eigi quadrophone-tæki og hlusti
gjarnan á þau á síðkvöldum. Mér kom því
ekki á óvart þegar ég frétti að Jóhann á líka
átta rása kassettutæki. Það var önnur tækni-
nýjung áttunda áratugarins sem dó í fæð-
ingu. Hún kom fram um það leyti sem ljóst
var að venjulegar kassettur, eins og við
þekkjum þær í dag, væru búnar að sigra
markaðinn. Atta rása kassetturnar voru álíka
stórar og myndbandsspólur, en úrvalið af
tónlist á þessum kassettum var ákafalega
takmarkað í upphafi. Og það varð aldrei
Misskilur þú samtímann?
Keypturðu þér quadrophone—hljómflutningstæki?
Gerðistu áskrifandi að Árinu?
Mótmæltirðu Persaflóastríðinu?
Taldirðu Enver Hoxha merkasta hugsuð aldarinnar?
Keypturðu V—2000 myndabandstæki?
Keypturðu Beta—myndbandstæki?
Ertu baráttumaður fyrir borgaralegri fermingu?
Áttu hraunöskubakka frá Glit?
Gerðistu áskrifandi að Þjóðlífi?
Áttirðu peninga inni hjá Ávöxtun?
Fannst þér tímaritið Luxus smart blað?
Varstu strax góður í borðtennis en gast aldrei neitt í fótbolta?
Áttu töfrasprota?
Áttu Ijósálf?
Keyptirðu fölsuð persnesk teppi á 15 þúsund kall?
H
58
HEIMSMYND
J Ú L í