Heimsmynd - 01.07.1993, Page 73

Heimsmynd - 01.07.1993, Page 73
hvað þessir tveir flokkar ættu sammerkt. Það kom glöggt fram á tali Vilmundar að hann taldi átökin milli þessara tveggja flokka sögulegt slys og að í raun gætu þeir starfað saman að öllum málum - nema utanríkismálum: Dvöl bandaríska varnar- liðsins á Islandi væri sú gjá sem skildi flokkana að. Umbótamálin í ruslakörfu FramSÓknar. Stjórnarsáttmáli ríkis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar gerði ekki um- bótamálum Alþýðuflokksins hátt undir höfði. Eitt af öðru hurfu sigurmál krata í kosningunum niður í ruslakörfu Ólafs. Við skiptingu ráðherraembætta var niðurlæging flokksins kórónuð. Framsóknarflokkurinn, sem beðið hafði eitt mesta afhroð í kosn- ingum til Alþingis fyrr og síðar, sat uppi sem sigurvegari. Sigurvegarinn, Alþýðu- flokkurinn, skrölti máttvana og málaflokka- laus með óreyndan þingflokk eftir kerru Framsóknar. Þjóðin hafði enn einu sinni verið dregin á asnaeyrunum eftir kosningar. „Skynsemin sigraði í kosningunum en ref- skapurinn í eftirleiknum," skrifaði Vilmund- ur í blaðagrein að lokinni stjórnarmyndun. Vilmundi féllust mjög hendur þetta sum- ar. Hann var áhugalaus um brölt stjórn- málamannanna kringum valdastólana og hann sá hvert stefndi í hráskinnsleiknum. Alþýðuflokkurinn fékk þrjá ráðherrastóla. Það lá auðvitað beint við að Vilmundur, sem gert hafði Alþýðuflokkinn að stórveldi í íslenskri pólitík, yrði ráðherra. Sú varð ekki raunin. A einhverju stigi málsins bauðst Vilmundi embætti menntamálaráð- herra en hann svaraði: „Ég var kosinn til að gera breytingar á þjóðfélaginu, ekki til að verða kontóristi við Hverfisgötu." Að lokum endaði Alþýðuflokkurinn með utanríkismál, sjávarútvegsmál og heilbrigðis- og félagsmál í hinni nýju ríkisstjórn. Vilmundur gerði ekkert til að sækjast eft- ir ráðherraembætti. Hann tók engan þátt í skiptingu ráðuneyta. Ugglaust sá hann eng- an tilgang í ráðherraembætti sem engu myndi breyta urn skipan þjóðfélagsmála á íslandi. En efalítið hefur Vilmundi þótt það ákjósanlegri staða að vera utan við ríkis- stjórnina og geta þar með gagnrýnt hana út frá sinni persónulegu stjórnmálastefnu og hugmyndafræði. Enda kom á daginn að Vil- mundur gerðist harður gagnrýnandi ríkis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar og var oftar í stjórnarandstöðu en hitt, þótt hann ætti að heita stjórnarþingmaður. Hér er dæmi úr skrifum Vilmundar skömmu eftir myndun ríkisstjórnarinnar: „Stjórn sem heldur áfram óbreyttri stefnu fyrri ríkisstjórnar og stefnir í 50-60 prósenta verðbólgu á næsta ári er byggð á efnahagslegum sandi. Stjórn sem afhendir framsóknarmönnum dómsmála- ráðuneytið og þar sem umbætur, til dæmis í skattsvikamálum, hafa verið strikaðar út úr samstarfsyfirlýsingu á síðustu stundu er HEIMSMYND JÚLl’ byggð á siðferðilegum sandi.“ Vilmundur réðist sérstaklega að Lúðvík Jósepssyni, þáverandi formanni Alþýðu- bandalagsins, og kallaði hann „ómerkilegan í pólitískum viðskiptum...! annars konar viðskiptum héti hann svindlari". Stjórnarmyndunin 1978 og skipting ráðu- neyta milli flokka er söguleg þegar Vil- mundur Gylfason er til umræðu. Við þessa atburði sannfærðist Vilmundur endanlega um valdhroka flokkakerfisins. Sá vilji al- mennings sem kristallaðist í kosningaúrslit- um væri alltaf stöðvaður af lokuðu og for- hertu flokkakerfi. í grein í Dagblaðinu frá þessum tíma rit- ar Vilmundur: „Er ekki tímabært að huga að enn frekari breytingum á stjórnarskrá? Að kjósa framkvæmdavaldið sérstaklega? Að kjósa forseta eða forsætisráðherra sérstak- lega, sem síðan velur sér ríkisstjórn og kjósa síðan löggjafann sérstaklega. Ég hygg að þessar stjórnarmyndunarviðræður séu undirstrikun þess að þessi breyting sé nauðsynleg." Þessar hugmyndir Vilmundar áttu síðar eftir að vera ein uppistaðan í stjórnmála- stefnu Bandalags jafnaðarmanna. Alþýðuflokkur í stjórn en Vilmundur í andstöðu. Stjórnarmyndunin 1978 markaði þáttaskil í lífi Vilmundar á margan hátt. Honum hafði ekki aðeins orðið ljóst að kjósendur fengju sjaldnast þær þjóðfélagsbreytingar sem þeir báðu um og að flokkakerfið stæði dyggan vörð um sérhagsmuni sína og völd, heldur rann upp fyrir honum að Alþýðuflokkurinn væri tæpast það tæki sem gæti nýst sér til að breyta þjóðfélag- inu. Vilmundur hafði treyst á að smæð Alþýðuflokksins gerði það að verkum að auðveldara yrði fyrir hann að koma hugmyndum sínum á framfæri gegnum flokk- inn. Það hafði gengið eftir. Vil- mundur hafði fengið sitt; flokkur- inn hafði gert hugmyndir hans að sínum baráttumálum og unnið kosningar út á þær. Alþýðuflokk- urinn hafði einnig fengið sitt; flokkurinn sem áður var í útrým- ingarhættu hafði breyst í öflugan umbótarflokk. Eftir stjórnarmyndun var hins vegar ljóst að Alþýðuflokkurinn hafði látið teyma sig út í ríkisstjórn án þess að hafa neina aðstöðu til að koma frarn sínum baráttumálum. Hann hafði í raun svikið kjósendur sína, þótt segja megi flokknum til málsbóta að stjórnarmyndunaraðstæðurnar hafi verið óvenjulega erfiðar. í augum Vilmundar var kjarni málsins sá að líkt og aðrir flokkar væri Alþýðuflokkurinn ekki í stakk búinn til að framkvæma þær þjóðfélagsbreytingar sem kjósendur höfðu beðið um. Vilmundur hafði aldrei verið flokkshollur maður. Eftir stjórnarmyndunina var Alþýðuflokkurinn í stjórn, en Vilmundur í stjórnarandstöðu. Alþýðuflokkurinn var líka tekinn að þreyt- ast á Vilmundi. Allt þetta leiddi til þess að hann einangraðist í flokknum. Hann hafði aldrei haldið hirð í kringum sig, aldrei byggt upp valdaapparat sem gat veitt hon- um skjól og stuðning þegar á móti blés. Vil- mundur sóttist eftir völdum og áhrifum líkt og allir stjórnmálamenn sem vilja gera hug- myndir sínar að veruleika. En Vilmundur var ólíkur öðrum stjórnmálamönnum að því leyti að hann barðist einn fyrir völdum. Hann var pólitískur sólóleikari án huldu- hers. Þessi reginmunur á pólitískri hugsun Vil- mundar og annarra stjórnmálamanna í land- inu opnaði gjá milli Vilmundar og hinna þingmannanna og jók enn á einangrun hans á Alþingi og í eigin flokki. Hugmyndir Vilmundar voru nú orðnar að klisjum í huga rnargra flokkssystkina hans; þær yrði að umbera fremur en að móta þær í póli- tíska stefnu. Og líkt og aðrir stjórnarflokkar var Alþýðuflokkurinn hrifinn burt í hringiðu stjórnarstarfsins þar sem dægurmálin, þing- störfin og stjórnun ráðuneyta tóku allan tíma hins stóra en reynslulitla þingflokks. Það var hvorki tími fyrir hugmyndafræði Vilmundar né áhugi á henni. Viðbrögð Vilmundar voru að auka enn andstöðu sína við stefnu ríkisstjórnarinnar. Vilmundur smellti svipunni á hverjum þing- flokksfundi, hinir óreyndu þingmenn lentu í hverri orðarimmunni á fætur annarri og loftið í þingflokknum var vægast sagt raf- magnað. Á þingflokksfundunum fékk forystusveit Alþýðuflokksins orð í eyra frá Vilmundi, ekki síst formaðurinn, en utan veggja þingflokksherbergisins var hann mun málefnalegri og ábyrgari. Sem stjórnar- þingmaður lagði Vilmundur fram þrjú frum- vörp sem öll voru í anda baráttumála hans: Um breytingu á lögum (Framhaldábls. 88) Vilmundur fór í verkfall á Alþýðublaðinu eftir að blaðsstjórnin hafði stöðvað útkomu „fíflablaðsins". í Alþýðublaðsdeilunni versnaði stöðugt samband Vilmundar við Kjartan Jóhannsson, formann flokksins, og Jón Baldvin Hannibalsson, ritstjóra blaðsins. 73

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.