Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Side 7
hafa verið fram tillögur um breytingar á launasetningu, vinnu-
tíma og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og eru þær tillögur
í skoðun innan spítalans. félagið mun halda áfram að þrýsta á
um endurskoðun samninganna. Vonir standa til að einhverjar
breytingar verði gerðar á næstu mánuðum og munu félags-
menn verða upplýstir um stöðu mála.
Sterkir og öflugir árgangar
hjúkrunarfræðinema
Í byrjun október var haldin móttaka fyrir nýja félagsmenn fíh
sem brautskráðir voru 2017 og var þeim afhent félagsnælan.
greinilegt er að hér er á ferð sterkur árgangur sem lætur að sér
kveða eins og raun bar vitni síðastliðið vor þegar þeir mót-
mæltu launakjörum Landspítala með því að ráða sig ekki
þangað. Það hefur komið berlega í ljós að yngri kynslóðirnar
forgangsraða og hugsa öðruvísi en þær eldri þegar kemur að
vali á starfsvettvangi. Við finnum það ekki síst á þeim fundum
sem við eigum við nemendur. Þetta finnum við, starfsfólk fíh,
líka á þeim fundum með nemendum í háskóla Íslands og há-
skólanum á akureyri sem félagið stendur fyrir. Það er mikil-
vægt að ræða við hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar, heyra
hvað þeir hugsa og hver framtíðarsýn þeirra er. Við finnum
glöggt fyrir þessum breytta tíðaranda þar sem forgangsröðunin
er önnur en áður var og launakjör og starfsumhverfi vega
þungt. Mikill baráttuandi er í þessum hópi og heyrast nú þegar
sambærilegar raddir hjá núverandi 4. árs hjúkrunarnemendum
og heyrðust í fyrra. Ég tel því ljóst að atvinnurekendur þurfi að
breyta afstöðu sinni, hlusta betur á ungu hjúkrunarfræðingana
og bregðast öðruvísi við en gert hefur verið fram að þessu ef
hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar eiga að fást til að starfa við
hjúkrun.
Langvarandi
álag á hjúkrunarfræðingum
undanfarinn mánuð höfum við haldið áfram fundaferðinni
okkar „Við hlustum á þig“ og nú var komið að því að heyra í
hjúkrunarfræðingum sem vinna á höfuðborgarsvæðinu, t.d. hjá
heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Samtökum
fyrirtækja í velferðarþjónustu og reykjavíkurborg. Á heildina
litið er óhætt að segja að hljóðið er þungt í hjúkrunar fræð -
ingum. Mikil óánægja er með t.d. með hversu illa gengur að
endurnýja stofnanasamningana og hjúkrunarfræðingar kvarta
undan langvarandi álagi í starfi. kastljósið beindist að hjúkr-
unarfræðingum í kjölfar skýrslu ríkisendurskoðunar Mönnun,
menntun og starfsumhverfi. Í aðdraganda nýliðinna kosninga
virtist sem stjórnmálamönnunum væri ljós hve staðan væri al-
varleg og því spennandi að sjá hvað gerist í náinni framtíð.
fram að því höldum við áfram baráttunni fyrir hjúkrunar -
fræðinga.
Ég óska ykkur gleðilegrar hátíðar og blessunarríks árs. Til
ykkar sem standið vaktirnar yfir hátíðarnar sendi ég góðar
kveðjur.
breyttur tíðarandi meðal ungra hjúkrunarfræðinga
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 7
vertu með á
https://www.facebook.com/hjukrun
Það er mikilvægt að ræða við hjúkrunar fræð -
inga framtíðarinnar, heyra hvað þeir hugsa og
hver framtíðarsýn þeirra er. Við finnum glöggt
fyrir þessum breytta tíðaranda þar sem for-
gangsröðunin er önnur en áður var og launakjör
og starfsumhverfi vega þungt.