Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Page 16
„Það er erfitt að hugsa sér þróun hjúkrunarfræðinnar án aðkoma ingibjargar. framlag
hennar var afrek,“ sagði Marga Thome hjúkrunarfræðingur um ingibjörgu r. Magn-
úsdóttur á ráðstefnunni hjúkrun 2017 en þar var dagskrá henni til heiðurs. ingibjörg
var brautryðjandi í hjúkrunarmálum á Íslandi og var helsti frumkvöðull þess að koma
námi í hjúkrun á háskólastig. Þá stofnaði hún rannsóknarsjóð í hjúkrunarfræði fyrir
tíu árum sem kenndur er við nafn hennar og hefur styrkt fjölmarga hjúkrunarfræðinga
til frekara náms.
23 styrkir veittir úr rannsóknarsjóði
Ingibjargar frá stofnun
Þrátt fyrir að vera orðin 94 ára er ingibjörg hnarreist og bein í baki enda hreyft sig
mikið alla tíð. hún segist búa vel að því að hafa lært til íþróttakennara og unnið við
það í fjögur ár áður en forlögin tóku í taumana og hún lagði fyrir sig hjúkrun. „Ég er
byrjuð að vera smá hokin en er dugleg að minna mig á að rétta úr bakinu. Maður
verður víst ekki ungur að eilífu.“ hún segist þó finna fyrir hækkandi aldri, skamm-
tímaminnið er ekki eins gott, en áhyggjur hefur hún af að geta ekki viðhaldið rann-
sóknarsjóðnum sem er henni svo kær. „Það þarf að finna nýjar leiðir til að halda
sjóðnum gangandi fyrir hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar. Ég veit að styrkirnir hafa
skipt máli fyrir hjúkrunarfræðinga sem fara í framhaldsnám,“ segir ingibjörg. hún
hefur lagt ríflega fjórar milljónir króna í sjóðinn auk stofnfjárins sem var ein milljón
króna. alls hafa 23 styrkir verið veittir til 21 nemanda í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði.
16 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Atorkusamur brautryðjandi í hjúkrun á Íslandi
— Viðtal við Ingibjörgu R. Magnúsdóttur
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti Ingibjörgu blómvönd á hátíðardagskránni
henni til heiðurs.