Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Page 41
Kynheilbrigðisfræðsla og forvarnir
fyrir unglinga réð úrslitum
ragnhildur og eiginmaður hennar fluttu til new York eftir að
hún fékk inngöngu í meistaranám í lýðheilsu við Columbia
Mail man-lýðheilsuskólann í new York-borg en það sem réð úr-
slitum var að þeir buðu upp á sérsvið um kynheilbrigðisfræðslu
og forvarnir fyrir unglinga. að því loknu hóf hún doktorsnám
við Columbia-háskóla í new York-borg í upplýsingatækni í
hjúkrun með sérstakri áherslu á gagnasöfnun í hjúkrun og
hvernig gögnin geta nýst til að bæta öryggi sjúklinga og gæði
hjúkrunar. Doktorsritgerðin fjallaði um hvernig hjúkrun-
arfræðingar í heimahjúkrun ræða við sjúklinga sína um og
safna gögnum um kynhneigð og kynverund. hún segir það
mikilvægt til að geta veitt sjúklinga miðaða þjónustu og fylgst
með gæðum og jafnræði í þjón ustunni. Þá rannsakaði hún
einnig notkun rafrænna sjúkraskráa á hjúkrunarheimilum og
áhrifum á gæða niður stöður.
Leiðin lá svo til flórída þar sem ragnhildur vinnur nú að
áframhaldandi rannsóknum við að nota textanám og aðrar
gagnaskoðunaraðferðir til að finna mikilvægar upplýsingar í
stórum gagnasöfnum af hjúkrunarnótum. Þær upplýsingar
nýtast við að bæta gæði hjúkrunar í gegnum stuðningskerfi við
klínískar ákvarðanir. ragnhildi var nýlega boðið að sækja um
fasta stöðu sem prófessor við háskólann í flórída. Það mun
fela í sér áframhaldandi kennslu og rannsóknir og er gríðar-
spennandi að sögn hennar. hún vinnur nú að stórri styrkum-
sókn til heilbrigðisstofnunar Bandaríkjanna (National Institutes
of Health) til að styðja við áframhaldandi rannsóknir á hjúkr-
unarnótum. rannsóknin beinist að því að bæta tölfræðilíkön
með forspárgildi fyrir byltum á spítölum en þær eru stórt
vandamál í sjúklingaöryggi. ætlunin er að nýta þessi tölfræði -
líkön í stuðningskerfi við klíníska ákvarðanatöku hjúkrunar -
fræðinga til að koma í veg fyrir byltur hjá sjúklingum þeirra,
segir hún.
Stefnan sett á prófessorstöðu
aðspurð um nánustu framtíðaráætlanir vonast hún til að vera
komin með fasta prófessorstöðu innan nokkurra ára. Einnig
væntir hún þess að vera komin með betri hugmynd um hvernig
hægt sé að aðstoða hjúkrunarfræðinga við að koma í veg fyrir
byltur. Eftir það er ætlunin tvíþætt að sögn hennar: Í fyrsta lagi
framkvæma rannsóknina í öllum Bandaríkjunum til að sjá
hvort þetta hafi einnig markverð áhrif á tíðni bylta utan flórída,
og í öðru lagi að beita sömu tækni og aðferðum til að skoða
hvernig koma má í veg fyrir önnur gæða- og öryggisvandamál,
eins og þrýstingssár eða þvagleggstengdar sýkingar.
Þó að ragnhildur sé spennt fyrir starfi sínu í Bandaríkj-
unum segir hún þó að hugurinn leiti oft heim. „Ég stefni á að
vera hér eitthvað áfram en langar mjög mikið að skoða tækifæri
á að vinna eitthvað með íslenskum fræðimönnum í heilbrigðis-
kerfinu heima. Við vitum að margar þessar sömu ógnir, sem
beinast að sjúklingum hér ytra, eiga einnig við heima svo það
væri gaman að geta miðlað þekkingu á báða bóga og jafnvel
stofna til rannsóknarsamvinnu við háskóla Íslands eða Land -
spítalann.“
vinnur með sérfræðingum að stefnumótun í hjúkrun í bandaríkjunum
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017 41
Ragnhildi var nýlega boðið að sækja um fasta
stöðu sem prófessor við Háskólann í Flórída.
Það mun fela í sér áframhaldandi kennslu og
rann sóknir og er gríðarspennandi að sögn
henn ar.
Ragnhildur hlaut nýliðaverðlaun frá rannsóknastofnuninni Academy
Health Interprofessional Research Group on Nursing Issues.