Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Blaðsíða 46
46 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Nýlegar doktorsvarnir í hjúkrunarfræði
Kynferðislegt ofbeldi í æsku:
Afleiðingar og heildræn meðferðarúrræði
Markmið doktorsrannsóknar Sigrúnar Sigurðardóttur var að auka þekkingu og dýpka
skilning á afleiðingum kynferðislegs ofbeldis í æsku hjá körlum og konum í því skyni
að auka hæfni hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta til að veita viðeigandi
umönnun. jafnframt var tilgangurinn að skipuleggja heildræn meðferðarúrræði,
gæfusporin, handa íslenskum konum (út af kynferðisofbeldi í æsku) og skoða reynslu
þeirra af heilbrigðiskerfinu almennt.
fyrirbærafræðileg rannsóknaraðferð var notuð til að auka þekkingu og dýpka
skilning á afleiðingum kynferðisofbeldis í æsku. Í rannsókn i voru þátttakendur sjö
karlar sem höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. Í rannsókn ii var borin saman
reynsla sjö karla og sjö kvenna. Í rannsókn iii voru tekin viðtöl við eina konu með
langa áfallasögu eftir slíkt kynferðisofbeldi og reynslu hennar af líkamlegum af-
leiðingum og heilbrigðisþjónustunni. Í rannsókn iV voru tekin viðtöl við tíu konur
sem tóku þátt í gæfusporunum, heildrænum meðferðarúrræðum. Samtals voru 65
einstaklingsviðtöl lögð til grundvallar í greiningarvinnunni í doktorsverkefninu.
Alvarlegar og víðtækar langtímaafleiðingar
kynferðislegs ofbeldis
helstu niðurstöður rannsóknanna voru að afleiðingar kynferðisofbeldis í æsku, bæði
fyrir karla og konur, voru alvarlegar fyrir heilsufar og líðan. Þjáning beggja kynja var
mjög djúp og raunar nánast óbærileg. Þátttakendur töldu að þeir hefðu ekki fengið
nægjanlegan stuðning og skilning hjá heilbrigðisstarfsfólki, en þátttaka í gæfuspor-
unum virtist bæta heilsu og líðan kvennanna sem tóku þátt í þeim.
kynferðislegt ofbeldi í bernsku getur haft alvarlegar og víðtækar langtímaafleið -
ingar fyrir heilsufar og líðan, bæði karla og kvenna. Mikilvægt er fyrir heilbrigðis-
starfsfólk að þekkja einkenni og afleiðingar slíks ofbeldis til að vera betur í stakk búið
að veita stuðning og viðeigandi meðferð. Mikilvægt er að halda áfram að endurskoða
(eða endurbæta) heildræn meðferðarúrræði einstaklinga sem hafa orðið fyrir slíku
ofbeldi í æsku.
umsjónarkennari og meðleiðbeinandi í verkefninu var dr. Sóley S. Bender, pró-
fessor við hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands. aðalleiðbeinandi var dr. Sigríður
halldórsdóttir, prófessor við heilbrigðisvísindasvið háskólans á akureyri. auk þeirra
sátu í doktorsnefnd dr. Berglind guðmundsdóttir, dósent við Læknadeild háskóla Ís-
lands, og dr. guðrún agnarsdóttir læknir. andmælendur voru dr. Mary jo kreitzer,
prófessor við háskólann í Minnesota, og dr. guðrún kristinsdóttir, prófessor emeritus
við Menntavísindasvið háskóla Íslands.
Dr. Sigrún Sigurðardóttir.
Tvær doktorsvarnir fóru fram í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands í júní. Sigrún Sigurðardóttir varði
doktorsritgerð sína sem ber heitið Kynferðislegt ofbeldi í æsku: Afleiðingar og heildræn meðferðar-
úrræði, og Þórunn Scheving Elíasdóttir varði ritgerð sína um gagnsemi sjónhimnusúrefnismælinga
við mat á súrefnisbúskap í system ísku blóðrásinni.