Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Page 50
björk bragadóttir o.fl.
50 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Einstaklingsmunur
Einstaklingar eiga jafnan erfitt með að aðlagast þeim síbreytilega vinnutíma sem fylgir
vaktavinnu (Sack o.fl., 2007; american academy of Sleep Medicine, 2001). Það sem
helst kemur í veg fyrir góða aðlögun er truflunin sem verður á dægursveiflunni
(american academy of Sleep Medicine, 2001). rannsóknir benda til þess að konur
eigi erfiðara með að venjast vaktavinnu og finni frekar fyrir svefntruflunum og þreytu
en karlar (harrington, 2001; Saksvik o.fl., 2011). Ein nefnd skýring á þessum mun á
kynjunum er hlutverk kynjanna í nútímasamfélagi þar sem það er oftar í verkahring
kvenna að sinna heimili og börnum (kryger, 2007; harrington, 2001). Tíðir, með -
ganga, brjósta gjöf og svo breytingaskeiðið hafa einnig áhrif á svefngæði kvenna
(kryger, 2007). Persónuleiki virðist hafa áhrif á þol einstaklings gagnvart vaktavinnu
því svokallaðar B-týpur, sem eru sveigjanlegir, afslappaðir, lítið taugaveiklaðir ein -
staklingar með sterka innri stjórnhvöt, virðast búa yfir meira þoli (Sack o.fl., 2007;
Saksvik o.fl., 2011). aldur einstaklinga virðist einnig hafa áhrif en rannsóknir gefa til
kynna að vaktavinna verði erfiðari fyrir fólk með hækkandi aldri (Saksvik o.fl., 2011).
Áhrif vaktavinnu á heilsu og líðan
Ófullnægjandi svefn er algengt vandamál meðal vaktavinnufólks og getur haft alvarleg
áhrif á líkamlega og andlegu heilsu manna, bæði til skamms tíma en einnig til lengri
tíma (Costa o.fl., 2010; Marquié o.fl., 2014; Peate, 2007).
Líkamleg heilsa
Vaktavinna hefur truflandi áhrif á líkamsklukkuna og það getur aftur valdið streitu
og haft áhrif á heilastarfsemina (Marquié o.fl., 2014). Þetta getur haft í för með sér
aukna hættu á ýmsum heilsufarsvandamálum, t.d. maga- og skeifugarnarsárum,
hjarta- og æðasjúkdómum (Costa o.fl., 2010; Marquié o.fl., 2014), efnaskipta sjúkdóm -
um, brjóstakrabbameini, frjósemisvandamálum og fósturlátum (Costa o.fl., 2010;
Marquié o.fl., 2014). Þá eru vísbendingar um að vaktavinnufólk sé í meiri hættu en
aðrir á að fá ristilkrabbamein, krabbamein í legslímhúð og eitilfrumukrabbamein en
þörf er á frekari rannsóknum varðandi þessa þætti (Costa o.fl., 2010). Vaktavinna
virðist einnig hafa áhrif á líkamsþyngd. niðurstöður Zhao og félaga (2011) gáfu til
kynna að vaktavinna geti aukið líkur á ofþyngd um 15–30%. Í grein niu og félaga
(2011) kom fram að vaktavinna eykur líkur á áfengisdrykkju, reykingum, mikilli kaffi -
drykkju og aukinni notkun bæði svefn lyfja og róandi lyfja. Vakta vinna hefur einnig
verið tengd aukinni tíðni magaónota og meltingar trufl ana auk þess að vakta vinnufólk
með sykursýki á erfiðara með að stjórna blóðsykri. Þá á fólk með flogaveiki frekar á
hættu að fá flog vegna svefn skorts en þeir sem ekki eru floga veikir (heilsuupp lýs inga -
síða Viktoríu fylkis, 2014).
Andleg heilsa og félagsleg áhrif
Skertur svefn svo og þreytan, sem iðulega er afleiðing af ófullnægjandi svefni, getur
valdið því að fólk hafi minni getu til að takast á við daglegt líf. Einnig geta sálrænir
kvillar gert vart við sig og einkenni þunglyndis og kvíða eru ekki óalgeng meðal
vaktavinnufólks (Costa o.fl., 2010; Peate, 2007). Vakta vinnufólk metur heilsu sína verri
„Nei, mamma þín er ekki að æfa hlutverk fyrir
kvikmyndina „Uppvakningarnir“. Hún lítur
allt af svona út eftir næturvaktahelgi á spítal-
anum.“
Þá eru vísbendingar um að vaktavinnufólk sé í meiri hættu en aðrir
á að fá ristilkrabbamein, krabbamein í legslímhúð og eitilfrumu-
krabbamein en þörf er á frekari rannsóknum varðandi þessa þætti.
Vaktavinna virðist einnig hafa áhrif á líkamsþyngd.