Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2017, Qupperneq 70
Útdráttur
Tilgangur: Hormónahvarfsmeðferð vegna blöðruhálskirtilskrabba-
meins fylgja víðtækar hliðarverkanir sem hafa áhrif á líðan sjúklings
og samband hans og maka hans. Lítið er vitað um sértækar þarfir
þessara maka hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða
vandamál þeirra og þarfir fyrir upplýsingar og stuðning.
Aðferð: Blönduð aðferð; lýsandi þversniðsrannsókn og eigindleg
viðtöl. Þýðið var makar karla á hormónahvarfsmeðferð vegna blöðru-
hálskirtilskrabbameins. Rannsóknargögnum var safnað með spurn-
ingalista og djúpviðtölum. Gögnin voru greind hvor í sínu lagi og
niðurstöður samþættar.
Niðurstöður: Spurningalista svöruðu 29 konur og 11 viðtöl voru tekin
við 6 þeirra. Helstu vandamál þátttakenda voru: Ótti vegna óvissu um
framtíð (n=15), breytingar á persónuleika maka (n=14), ótti um eigin
heilsu (n=13) og að sætta sig við veikindi sjúklings (n=13). Helstu
vandamál, sem þátttakendur vildu frekari upplýsingar um, voru and-
legar breytingar (n=16), persónuleikabreytingar (n=13), líkamleg
vandamál sem búast má við (n=13) og líkamlegar breytingar (n=13).
Niðurstöður viðtalanna studdu þessar niðurstöður. Þar kom fram að
konurnar vildu vera þátttakendur í sjúkdómsferli makans til að geta
stutt hann sem best en þær voru o lítt undirbúnar fyrir áhrif
meðferðar á makann: persónuleikabreytingar, depurð og niður-
sveiflur, hlédrægni, minnkandi nánd og missi karlmennskunnar.
Flestar álitu manninn undir traustri læknishendi og lögðu áherslu á
að meðferðin gæfi þeim meiri tíma saman, en fundu jafnframt til
óvissu um framvindu sjúkdómsins. Aðgangur að stuðningi og upp -
lýs ingum skipti miklu.
Ályktanir: Makar karla á hormónahvarfsmeðferð finna margháttaðar
breytingar og erfiðleika í tengslum við meðferðina. Mikilvægt er að
viðeigandi stuðningur og fræðsla af hendi fagfólks sé efld og boðin
frá upphafi meðferðar.
Lykilorð: blöðruhálskirtilskrabbamein, forvarnir, fræðsla, hormóna-
hvarfsmeðferð, makar
Inngangur
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein ís-
lenskra karlmanna. Um 220 greinast árlega, ríflega helmingur
eftir sjötugt (Krabbameinsskrá, e.d.). Hormónahvarfsmeðferð
hefur verið beitt til að meðhöndla þetta mein á öllum stigum
sjúkdómsins með eða án annarrar meðferðar en algengasta
meðhöndlun sjúkdómsins, ef hann er orðinn útbreiddur, er
geisla- og hormónahvarfsmeðferð. Hormónahvarfsmeðferðin
felur í sér vönun með skurðaðgerð eða lyfjagjöf til að draga úr
testósteróni í líkamanum (Mohile o.fl., 2009; Taylor o.fl., 2009).
Þannig má hægja á vexti meinsins (Saylor og Smith, 2009),
draga úr einkennum sjúkdómsins, svo sem verkjum (Taylor o.fl.,
2009), og auka lífslíkur (Hershman o.fl., 2016). Hormónahvarfs -
meðferð með lyfjum er yfirleitt ævilöng og getur því meðferðin
varað í nokkur ár (Mohile o.fl., 2009). Engin læknanleg meðferð
er við sjúkdómnum á þessu stigi og hér er því um að ræða
meðferð sem veitt er í líknandi tilgangi (Jonsson o.fl., 2009).
Hliðarverkanir þessarar meðferðar eru víðtækar (Hersh man
o.fl., 2016). Má þar nefna svitakóf, minnkaða kynlöngun og ris-
70 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 93. árg. 2017
Nýjungar: Rannsóknin gefur frekari upplýsingar um umfang
og eðli persónuleikabreytinga og andlegra breytinga sjúklings
sem hafa áhrif á samband maka við sjúkling og auka á vanlíðan
þeirra.
Hagnýting: Þörf er á sérhæfðri þjónustu við þennan hóp maka
sem tekur mið af fræðslu- og stuðningsþörfum þeirra. Vinna
þarf skriflegt fræðsluefni sem sinnir sérstaklega þeirra þörfum.
Þekking: Mikilvægt er að fræða og styðja maka þessara sjúk-
linga sérstaklegra vegna sértækra breytinga sem verða á andlegu
og persónulegu atgervi sjúklings til viðbótar við lífshættulegan
sjúkdóm.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Niðurstöður benda til þess
að þörf sé á að byggja upp starf með ferðarstjóra (nurse naviga-
tor) fyrir þennan sjúklingahóp og maka þeirra.
Katrín Blöndal, skurðlækningasviði Landspítala og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Kristín Þorbergsdóttir, líknardeild Landspítala
Ásdís Ingvarsdóttir, heimahlynningu Landspítala
Sigríður Zoëga, skurðlækningasviði Landspítala og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
Maður, kona, mein
Þarfir maka sjúklinga sem fá hormónahvarfsmeðferð
vegna blöðruhálskirtilskrabbameins
Hagnýting rannsóknarniðurstaðna