Skírnir - 01.04.2006, Qupperneq 38
36
VALUR INGIMUNDARSON
SKÍRNIR
einnig ákveðið að endurnýja flugkostinn árið 1962. í stjórnkerfinu
var alger samstaða um að ekki yrði hróflað við flugvélunum ef það
stefndi hernaðarréttindum Bandaríkjanna á íslandi í hættu.13
Bandaríkjamenn höfðu þó ekki fyrr tekið þessa ákvörðun en
Robert McNamara, varnarmálaráðherra, fór aftur að huga að því
að kalla þoturnar á brott í sparnaðarskyni árið 1964, á þeirri for-
sendu að þær hefðu ekki nægilegt hernaðargildi.14 Penfield sendi-
herra, sem hafði náð mjög góðu sambandi við íslenska ráðamenn,
lýsti sig þegar í stað mótfallinn ráðagerðunum. Draga má í efa það
mat hans að brottför þotanna hefði hugsanlega leitt til falls
viðreisnarstjórnarinnar, en vitaskuld hefði slík ákvörðun veikt
stuðning við Bandaríkin og NATO á Islandi og ýtt undir hlutleys-
isstefnu, eins og hann benti á.15 Penfield var reyndar ekki reiðu-
búinn að ganga út frá því sem vísu að íslensk stjórnvöld segðu
varnarsamningnum upp. En hann var þeirrar skoðunar - eflaust
með réttu - að slík ákvörðun græfi undan trausti á Bandaríkjun-
um hjá þeim stjórnmálamönnum sem studdu vestræna samvinnu
og þeirri öryggistryggingu sem fælist í samningnum.16 Með því að
mála skrattann á vegginn vildi Penfield greinilega eyða þessari um-
ræðu þar sem hún gæti haft slæm áhrif á stjórnmálaástandið á
Islandi.
Varnarmálaráðuneytið tók viðvörunarorð sendiherrans til
greina og frestaði brottflutningi flugvélanna17 að beiðni utanríkis-
ráðuneytisins.18 Áður hafði Pentagon falið alþjóðadeild sinni að
vinna lögfræðiálit um lögmæti þess að kalla heim orrustuþoturn-
13 NA, RG 59, 740b.56322/10-3061, Box 1655: William Bundy, settur aðstoð-
arutanríkisráðherra til Williams R. Tylers, varaaðstoðarutanríkisráðherra í Evr-
ópumálum, 30. október 1961.
14 NA, RG 59, Generai Records, Central Foreign Policy Files, 1963, Box 3929:
Dean Rusk til bandaríska sendiráðsins (Reykjavík), 18. júlí 1963.
15 NA, RG 59, General Foreign Policy Files, 1964-1966, Politics & Defense, Box
1637: Jeffrey C. Kitchen til Tylers Thompsons, 28. september 1964.
16 NA, RG 59, Central Foreign Policy Files, DEF-15-3 ICE-US, Box 3725: James
Penfield til Deans Rusks, 20. júlí 1963.
17 NA, RG 59, General Records, Central Foreign Policy Files, 1963, Box 3929:
Dean Rusk til bandaríska sendiráðsins (Reykjavík), 18. júlí 1963.
18 NA, RG 59, Central Foreign Policy Files, DEF-15-3 ICE-US, Box 3725: Dean
Rusk til bandaríska sendiráðsins (Reykjavík), 24. júlí 1963.