Skírnir - 01.04.2006, Page 41
SKÍRNIR ORÐRÆÐA UM ORRUSTUÞOTUR 1961-2006 39
á að viðreisnarstjórnin hefði aðeins eins sætis meirihluta á þingi,
að Framsóknarflokkurinn hefði gert það að stefnu sinni að vinna
að brottför hersins fyrir kosningar árið 1967 og að hótun Emils
um uppsögn varnarsamningsins stæði enn.26 Rolvaag taldi von-
laust að réttlæta varnarsamninginn án sýnilegra varna. Og í sam-
ræmi við lögfræðiálit Pentagon væri ekki annað hægt en taka mál-
ið upp við íslensk stjórnvöld sem gætu hafnað því að þoturnar
yrðu kallaðar á brott.27 Rolvaag notaði einnig herfræðirök máli
sínu til stuðnings. Hann gerði að umtalsefni aukin umsvif Sovét-
manna á Norður-Atlantshafi og í Noregshafi sem sýndu hernað-
armikilvægi íslands fyrir Bandaríkin. Embættismenn í utanríkis-
ráðuneytinu beittu svipuðum rökum: I ljósi þess að færst hafði í
vöxt að sovéskar sprengjuvélar kæmu inn á loftvarnasvæði íslands
væri þörf á orrustuþotum hér til að fljúga til móts við þær. Auk
þess bentu þeir á að það útheimti mikil útgjöld að flytja herstöð-
ina til annars lands.
Fleiri mikilvæg atriði voru tínd til í annarri skýrslu sem unnin
var á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins árið 1967. Ef her-
inn yrði rekinn úr landi missti Bandaríkjaher í fyrsta lagi 15 mín-
útur af viðvörunartíma ef gerð yrði árás á Bandaríkin. í öðru lagi
yrði hið svokallaða SOSUS-kerfi óvirkt, en hér var um að ræða
hlustunarkerfi sem Bandaríkjamenn höfðu komið fyrir með mik-
illi leynd á hafsbotni út frá ströndum íslands um miðbik 7. áratug-
arins til að staðsetja sovéska kafbáta. Þetta tvennt var talið réttlæta
rekstrarkostnað Keflavíkurstöðvarinnar. Bjarni Benediktsson og
Emil Jónsson höfðu fengið almennar upplýsingar um þennan
búnað, en sem dæmi um hve ráðamenn höfðu litla beina þekkingu
á starfseminni á Keflavíkurflugvelli fullyrti einn bandarískur emb-
ættismaður að þeir hefðu ekki „hugmynd um hve mikilvægur
hann er okkur í raun“. í þriðja lagi höfðu P-3 Orion kafbátaleit-
arflugvélar verið teknar í gagnið um miðjan áratuginn til að fylgj-
ast með flotaumsvifum Sovétmanna á Norður-Atlantshafi og taka
26 Sjá NA, RG 59, Bureau of European Affairs, Office of Northern European Af-
fairs, 1963-1975, Box 1: Karl Rolvaag til utanríkisráðherra, 2. ágúst 1967.
27 NA, RG 59, Bureau of European Affairs, Office of Northern European Af-
fairs, 1963-1975, Box 1: John Leddy til Davids H. McKillops, 8. ágúst 1967.