Skírnir - 01.04.2006, Page 46
44
VALUR INGIMUNDARSON
SKÍRNIR
ekki, en taldi að unnt yrði að senda hingað orrustuþotur í eftirlits-
skyni eftir þörfum án þess að hafa hér varanlega aðstöðu. Bent var
á að herflugvélar Rússa hefðu ekki flogið inn í íslenska lofthelgi
frá árinu 1991 og í raun væri óþarfi að fylgjast lengur með kaf-
bátum þeirra.41 Á þessum tíma var því haldið fram að íslensk
stjórnvöld hefðu hótað að segja upp varnarsamningnum. Þótt Jón
Baldvin Hannibalsson vísaði því á bug var ljóst að þau vildu ekki
útiloka það.42 Hvort sem það hefur ráðið úrslitum eða ekki
komust Bandaríkjamenn að þeirri niðurstöðu að efna ekki til
diplómatískra deilna við íslendinga og þeir féllu frá kröfum um
brottför flugvélanna. í upphafi árs 1994 náðu íslensk og bandarísk
stjórnvöld síðan samkomulagi um hina svonefndu „bókun við
framkvæmd varnarsamningsins" sem gerði ráð fyrir þeirri mála-
miðlun að þoturnar yrðu aldrei færri en fjórar, auk þess sem
björgunarsveitin yrði hér áfram.43
Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn myndaði ríkisstjórn með Fram-
sóknarflokki árið 1995 var það eitt fyrsta verkefni Halldórs
Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, að sjá til þess árið 1996 að
„bókunin“ yrði staðfest á ný 44 Til að koma til móts við sparnað-
arsjónarmið Clinton-stjórnarinnar staðfestu íslensk stjórnvöld þá
skuldbindingu að draga úr kostnaði við rekstur Keflavíkurstöðv-
arinnar með því að afnema í áföngum einkarétt íslenskra aðalverk-
taka og Keflavíkurverktaka á framkvæmdum á vellinum. Með
þessu samkomulagi, sem gilda átti til fimm ára, var óbreytt ástand
tryggt til ársins 2001. Hins vegar höfðu Bandaríkjamenn alls ekki
sagt skilið við það markmið sitt að draga verulega úr herviðbún-
aði í Keflavík þótt þeir hefðu gefið eftir í samningaviðræðunum.
Þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson minntust aldrei á
efnahagsþýðingu herstöðvarinnar við Bandaríkjamenn, enda
kippti það grundvellinum undan röksemdafærslu þeirra um að
41 Sjá Morgunblaðið, 16. október 1993.
42 Sjá Morgunblaðið, 6. maí, 7. maí, 29. september, 16. október, 19. október og 2.
nóvember 1993.
43 Morgunblaðið, 5. janúar 1994.
44 Samkvæmt samkomulaginu frá 1994 átti að endurskoða bókunina við varnar-
samninginn að tveimur árum liðnum.