Skírnir - 01.04.2006, Page 109
SKÍRNIR
DAUÐINN Á FORSÍÐUNNI
107
að hafa verið að selja fleiri Toyota-bíla er jafn víst að auglýsendur
töldu sig geta höfðað til lesenda með því að vfsa til þeirra „almennu
sanninda“ að ekki væri mark takandi á fréttaflutningi DV. Auglýs-
ingunni er ekki ætlað að gagnrýna fréttastefnu blaðsins opinberlega
í einhvers konar mannræktartilgangi, því að Toyota-auglýsingin á
að staðfesta almannaróm í því skyni að auka tekjur fyrirtækisins P.
Samúelssonar hf. sem flytur inn bílana. Hún sýnir svo ekki verður
um villst að strax við sumarlok 2004 er andstaðan við fréttaflutning
DV svo almenn að auglýsendur þora að gera sér mat úr henni.
Ekki er síður áhugavert að sjá hvers konar atriði í fréttaflutn-
ingi DV eru dregin fram. Fyrirsagnir ST-Slúðurtíðinda um geim-
verur og afkvæmi fálka og skjaldböku gefa á góðlátlegan hátt til
kynna að höfundar auglýsingarinnar hafi borið kennsl á þau
fantastísku eigindi blaðsins sem hér verða sérstaklega tekin til um-
fjöllunar og greiningar. í auglýsingunni eru þessi einkenni DV
gerð hlægileg með því að ýkja þau til muna. En þó margir freistist
eflaust til að skilgreina fréttaflutning blaðsins sem einn stóran
brandara má ekki loka augum fyrir þeim möguleika að sú veru-
leikasýn sem DV miðlaði á árunum 2003-2005 hafi haft áhrif á
hugmyndir íslendinga um sjálfa sig og íslenskt samfélag.4 Hér er
ég ekki að tala um ýktustu myndir gotneskrar lífssýnar, en hún
stýrir hryllings- og óhugnaðardýrkun í vestrænum nútímasam-
félögum, þó að nóg hafi verið af slíkum fréttum í DV á ritstjórn-
artíma þremenninganna.5 Ég hef meiri áhuga á því að skoða
hvernig gotneskur hugsunarháttur, sem gerð verður grein fyrir hér
á eftir, hefur áhrif á annað fréttamat blaðsins, hvernig þessum
fréttum er miðlað og hvað þær segja okkur um íslenskan samtíma.
Hvernig geta fréttir DV af hryllingi íslensks veruleika skerpt
þann skilning sem lesandinn hefur á ákveðnu samfélagsástandi,
opnað augu hans fyrir veruleika sem áður lá hugsanlega undir
4 í janúar 2006 tóku Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson við rit-
stjórastarfinu, en ekkert verður fjallað um áherslur DV í ritstjórnartíð þeirra.
5 Nokkrar fréttir af handahófi væru: „Grimmilegustu dýramorð íslandssögunn-
ar“ og þriggja síðna umfjöllun um djöfulinn og helvíti í sama blaði (DV, 7.4.),
„Draugagangur hjá Orkuveitunni" (DV, 14.7.) og „Hinn rauði þráður kabbalah:
Kuklað í Hollywood" (DV, 17.7.). Til hægðarauka vísa ég ávallt til frétta blaðs-
ins í sviga aftan við tilvitnun. Ég felli ártalið niður ef fréttin er frá 2004.