Skírnir - 01.04.2006, Page 127
SKÍRNIR
DAUÐINN Á FORSÍÐUNNI
125
Sú hugmynd að veraleikinn sé ekki allur þar sem hann er séður
varpar ljósi á þau tíðu rök ritstjóra DV að í blaðinu birtist íslensk-
ur samtími í sinni réttu mynd, ekki aðeins slétt og fellt yfirborðið
eða opinber hlið mála eins og gjarnan sé raunin í hefðbundnari
fjölmiðlum, t.d. í Morgunblaðinu og jafnvel í Fréttablaðinu26
Slíkir fjölmiðlar missa að mati DV sjónar á því sem undir býr (það
býr alltaf eitthvað undir), eða þeir eiga sjálfir duldra hagsmuna að
gæta í samfélaginu (tengsl Morgunblaðsins við Sjálfstæðisflokkinn
og gamlar valdaklíkur og tengsl Fréttablaðsins við Baugsveldið.27
Jónas Kristjánsson lýsti því einmitt yfir að hann vildi skera á
tengslin við valdastofnanir samfélagsins og heimssýn valdhafanna
í harðorðum leiðara. Það er skoðun Jónasar að siðareglur blaða-
manna hafi um langt skeið verið sveigðar undir opinbert vald og
gotneskra söguhetja spíralnum, einstaklingurinn snýr gjarnan aftur þangað sem
ferðin hófst, en heimaslóðirnar eru orðnar aðrar vegna þess að veruleikasýnin
og söguhetjan hafa breyst.
26 í lofgreininni „Sumarsveiflan í ár: Rífandi gangur í DV“ reyna blaðamenn DV
að varpa ljósi á velgengni blaðsins og leita í þeim tilgangi til þriggja verslunar-
manna á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni: „Það tók fólk tíma að fatta
þessa blaðamennsku sem D V bauð upp á þegar blaðið var endurreist. [...] Fólk
missir af miklu ef það sér ekki DV og er varla samræðuhæft. Blaðið er með allt
aðrar fréttir en aðrir og án DV myndi fólk einfaldlega ekki vita af öllu því sem
í gangi er og greint er skilmerkilega frá í D V. Heimssýnin væri allt önnur og fá-
tæklegri“ er haft eftir einum þeirra. Undir þetta tekur annar ritstjóri blaðsins,
Mikael Torfason: „Það er gleðilegt að finna þennan meðbyr og ekki síður hitt
að lesendur kunni að meta þann spegil samtíðar sem við bjóðum upp á dag eft-
ir dag [...] Við vissum hvað við vildum strax í upphafi og nú virðast lesendur
deila þeirri upplifun með okkur“ (DV, 20.7). Af þessum orðum er ljóst að
fréttaflutningi DV var frá upphafi ætlað að miðla breyttri heimssýn.
27 Greining DV á tengslum Morgunblaðsins við gamlar valdaklíkur í samfélaginu
og Fréttablaðsins við Baugsveldið (sem DV er hluti af) verður að bíða betri tíma
en forvitnilegt væri þó að skoða hvort DV gangi erinda eigenda sinna rétt eins
og aðrir miðlar gera svo gjarnan samkvæmt blaðinu. í teiknimyndaseríunni „1
& annað“ sem birtist á síðum DV vorið 2004 eru hagsmunatengsl DV við Baug
gamansamt umfjöllunarefni. I einni ræmunni hringir Jón Ásgeir Jóhannesson í
Illuga Jökulsson og segist vera með aðalefni næsta blaðs sem eigi að snúast um
svívirðingar í garð Davíðs Oddssonar og Björns Bjarnasonar. Jafnframt eigi
blaðið að vera gagnrýnið á fjölmiðlafrumvarpið. Illugi eigi svo bara í staðinn að
fylla upp í blaðið með Bónus-auglýsingum (DV, 3.5.). I þessari seríu og „Heimi
Sjonna", sem einnig birtist á árinu 2004 gerir höfundurinn, Ingi Jensson, góð-
látlegt grín að gotneskri veruleikasýn blaðsins, en staðfestir hana um leið.