Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Fréttir
Lífrænn matur heimsendur
á 90 mínútum
Um nokkurra ára skeið hefur
matvörumarkaður verið rekinn
í Nethyl 2c í Reykjavík undir
heitinu Bændur í bænum. Þar
hafa lífrænar vörur verið í boði,
bæði íslenskar og innfluttar,
auk þess sem netverslun hefur
verið starfrækt undir heitinu
„Grænmeti í áskrift“, þar sem
vörur hafa verið seldar í gegnum
netið. Nú stendur til að taka þann
hluta skrefinu lengra og bjóða
upp á heimsendingarþjónustu.
Sem stendur er boðið upp á viku-
legar sendingar þar sem vörurnar
eru afhentar á miðvikudögum og
fimmtudögum. Nú mun það breyt-
ast í dagvöruverslunina http://www.
baenduribaenum.is/ þar sem fólk
getur pantað og fengið heimsent
upp að dyrum innan 90 mínútna
eða eftir nánara samkomulagi – og
einnig getur fólk á landsbyggðinni
fengið sent daginn eftir.
Markaðurinn gengur í
endurnýjun lífdaga
Það er stórfjölskyldan á Akri
í Laugarási, hjónin Þórður
Halldórsson og Karólína
Gunnarsdóttir og hjónin Gunnar Örn
Þórðarson og Linda Viðarsdóttir
sem standa að rekstri matvörumark-
aðarins Bændur í bænum. Að sögn
Gunnars verður heimsendingarhlut-
inn unninn í samvinnu við vef-
verslunina Allra hagur, eða aha.
is. Hann segir að markaðurinn í
Nethyl 2c muni ganga í endurnýjun
lífdaga samhliða þessari nýjung í
heimsendingarþjónustunni og
verður opnunarhátíð þann 16. júní
næstkomandi þar sem allir eru vel-
komnir að koma og sjá nýju lífrænu
búðina. /smh
Vinnustofa í Trékyllisvík er fyrir-
bæri sem verður á dagskrá í
Árneshreppi á Ströndum dagana
21.–24. júní. Þar verður áherslan
lögð á handlagni og hjartalag.
Á þessari vinnustofu mun þátt-
takendum gefast kostur á að læra um
eiturefnalausa og forna aðferð við að
súta skinn í bland við menningarlegan
og sagnfræðilegan fróðleik sem mun
byggja upp stönduga undirstöðu. Er
það sagt lofsöngur um hið handunna
líf. Í tilkynningu námskeiðshaldara
segir m.a.:
„Á sólstöðunum verðum við í
Trékyllisvík og framköllum hina
svokölluðu þorpsvitund og þorpsiðk-
un sem er á hröðu undanhaldi í
vestrænni menningu, sérstaklega á
þeim stöðum þar sem ferðamanna-
iðnaðurinn tætir og tælir. [...] Að
hluta til snýst vinnustofan um forna
verkþekkingu þar sem við stígum í
vænginn við forfeðurna, og að hluta
til snýst hún um lærdóm á fornum
skilningi á árstíðabundnu og hátíða-
bundnu lífi.“
Kennararnir eru ekki neinir aukvis-
ar á þessu sviði. Það eru Stephen
Jenkinson, sem er með meistaragráðu
í guðfræði frá Harvard-háskóla og
meistaragráðu í félagsráðgjöf frá
háskólanum í Toronto. Hann hefur
byltingarkennda sýn á harm og dauða
í Norður-Ameríku. Stephen Jenkinson
ferðast um heiminn og kennir. Hann
er stofnandi og aðalkennari við
Orphan Wisdom-skólann í Kanada.
Hann var lærlingur sagnameistara
til margra ára og vann með deyjandi
fólki í hundraðavís og fjölskyldum
þeirra. Var frumkvöðull í teymis-
vinnu hjá einum af stærri spítölum í
Kanada. Þá var hann aðstoðarprófess-
or í virtum kanadískum læknaskóla,
ráðgjafi líknarteyma og líknardeilda
og frumkvöðull í umönnunarstarfi.
Hann er einnig myndhöggvari, smíðar
hefðbundna kanóa og hefur unnið virt
arkitektaverðlaun fyrir hús sitt sem
hann byggði og hannaði. Stephen
er höfundur bókarinnar Die Wise: A
manifesto for Sanity and Soul sem
er ný bók um harm, dauða og hina
miklu ást til lífsins.
Þá er það Daniel Stermac-Stein,
sem er sútari, klæðskeri, bóndi og
skógarmaður. Hann tileiknar líf sitt
fegurð og þjónustu í Ottawa-dalnum
í Kanada.
Nánari upplýsingar um vinnustof-
una má finna á Fb-síðunni þorpsvit-
und og sútun: https://www.facebook.
com/events/903300779790584/
Einnig á heimasíðu Árneshrepps:
www.arneshreppur.is
Ostur frá Skaftholti.
Þorpsvitund & sútun
The Skin of the World
− Vinnustofa starfrækt í Trékyllisvík 21.−24. júní
Egilsholti 1
310 Borgarnesi
Verslun opin 8-18 virka
daga
10-16 laugardaga, sími:
430-5500
www.kb.is
-Annar 30 kálfum eða
50 lömbum
-Mjólkin geymist köld
-Mjólkin hitnar um leið
og sogið er
-Einföld og áreiðanleg
-Vinnusparnaður
-Ungviðið hefur frjálsan
aðgang að mjólk
-139.900kr með vsk
Upplýsingar:
893-8424 / set@velafl .is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
www.velafl.is
Nýjar BOMAG þjöppur
á lager 120 – 720 kg
Gunnar Örn Þórðarson á Akri í Laugarási segir að samhliða heimsendingarþjónustunni gangi verslunin í Nethyl í
endurnýjun lífdaga og verður opnunarhátíð 16. júní næstkomandi. Mynd / smh
Karólína og Þórður í versluninni Bændur í bænum. Myndir / Bændur í bænum
Basilika frá Akri.
Paprika frá Akri.Hæðarendi ræktar lífrænt vottaðar
Stephen Jenkinson. Daniel Stermac-Stein.