Bændablaðið - 09.06.2016, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Þróun í búfjárhaldi á Íslandi frá 1982 til 2015:
Sauðfé hefur fækkað um 50%
á Suðurlandi á 33 árum
− Á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi fækkaði sauðfé um 69% og frá 33 til 40% í öðrum landshlutum
Miklar breytingar hafa orðið á
búfjáreign landsmanna á síðasta
aldarþriðjungi, eða frá 1982 til
2016. Áhrifin eru langmest í sauð-
fjárhaldi, þar sem stofninn hefur
verið skorinn niður um hartnær
40%.
Ljóst er að áhrifin á heildarbúfjár-
eignina er æði misjöfn eftir lands-
hlutum. Mest hlutfallsleg fækkun
sauðfjár hefur orðið á Suðurlandi
(Frá Hornafirði að Reykjanesi),
þar sem sauðfé fækkaði úr 195.560
í 97.821, eða um 97.739 vetrar-
fóðraðar kindur, sem gerir rétt um
50%. Þetta hefur augljóslega leitt til
stórminnkunar beitarálags. Athygli
vekur samt að Suðurland er einmitt
það landsvæði sem mest hefur orðið
fyrir gagnrýni vegna ofbeitar á liðn-
um misserum.
Sunnlenskir bændur öflugastir í
nautgriparækt og alifuglaeldi
Bændur á Suðurlandi hafa bætt sér
að nokkru upp fækkun sauðfjár
með fjölgun nautgripa um 8.415
gripi, eða úr 23.949 í 32.364 gripi
sem gerir um 35% aukningu. Eru
Sunnlendingar því langöflugastir í
nautgriparækt á landsvísu.
Sunnlendingar hafa einnig aukið
sína hrossarækt verulega, eða um
9.882. Þar með eru Sunnlendingar
farnir að narta í hæla bænda á
Norðurlandi vestra hvað hrossaeign
varðar, með 27.257 hross á móti
28.159 hrossum á Norðvesturlandi.
Sunnlendingar hafa líka bætt
heldur í hvað alifuglaeldi varðar og
er nú öflugasti landshlutinn á því
sviði. Hafa verður þó fyrirvara á
tölum um þróun í alifuglarækt, þar
sem aðferðarfræðin í talningunni
hefur verið talsvert á reiki í gegn-
um tíðina. Einnig hefur verið veru-
leg stökkbreyting í loðdýrarækt-
inni, eða úr 72 í 17.777 dýr. Eru
Sunnlendingar þar skammt á eftir
bændum á Norðvesturlandi. Þá hefur
svínum fjölgað úr 569 í 1.044.
Bændur á Norðvesturlandi
öflugastir í sauðfjárrækt,
hrossarækt og loðdýrarækt
Fækkun sauðfjár á Norðvesturlandi
hefur verið hlutfallslega minni en á
Suðurlandi, en þar hefur fækkunin
þó verið langmest í hausum talið,
eða úr 352.543 í 235.019 fjár, sem
þýðir fækkun upp á 117.524 kind-
ur, eða sem nemur um 33%. Inni
í þeim tölum eru líka Vestfirðir og
Vesturland. Eigi að síður er þessi
landshluti enn langöflugasta sauð-
fjárræktarsvæðið.
Hefur þetta stóra landsvæði lítil-
lega náð að mæta niðurskurði sauð-
fjár með aukningu í nautgriparækt
úr 18.353 í 23.865 gripi.
Athyglisverð hefur þó verið
gríðarleg aukning í loðdýrarækt og
þá einkum í Skagafirði. Hefur loð-
dýrum á þessu landsvæði fjölgað
á þessum 33 árum úr 176 í 20.113
dýr og er þetta þar með öflugasti
landshlutinn í loðdýraræktinni. Þá
eru bændur á Norðvesturlandi líka
öflugastir landsmanna í hrossarækt.
Þar hefur hrossum fjölgað úr 22.817
árið 1982 í 28.159 hross árið 2015.
Nokkur aukning hefur einnig orðið í
svínarækt, eða úr 131 í 592 gelti og
gyltur. Alifuglaræktin hefur staðið
nokkurn veginn í stað og þar voru
fuglar taldir 41.637 árið 2015.
Fækkun sauðfjár á Vestfjörðum
en fjölgun nautgripa
Ef Vestfirðir eru þar teknir sérstak-
lega sést að bændur hafa gefið þar
eftir í öllum greinum nema naut-
griparækt. Vetrarfóðruðu sauðfé
fækkaði úr 72.424 kindum í 45.218,
eða um rúmlega 37%. Þar er viðbú-
ið að tölur eigi enn eftir að lækka
á þessu ári ef fram fer sem horfir
með þróun byggðar við innanvert
Ísafjarðardjúp og á Ströndum.
Nautgripum fjölgaði aftur á móti
úr 1.912 í 2.297. Einungis voru þá
eftir 835 hross, 116 alifuglar, eitt
loðdýr en ekkert svín.
Mikil fækkun sauðfjár og alifugla
á Norðausturlandi
Á Norðausturlandi að Langanesi
hefur líka orðið veruleg fækkun
sauðfjár, eða úr 121.540 í 72.237
kindur. Það er fækkun upp á rétt
rúmlega 40%. Er sauðfé í þessum
landshluta nánast jafn margt og
var á öllum Vestfjörðum fyrir 33
árum. Veruleg fækkun varð líka á
umræddu tímabili í alifuglaeldi sem
fór úr 76.969 fuglum í 16.402 fugla.
Hafa verður þó fyrirvara um áreið-
anleika í alifuglatalningunni þar eins
og á öðrum stöðum á landinu. Þá
fækkaði loðdýrum einnig í þessum
landshluta, eða úr 10.117 í 4.264 dýr.
Bændum á þessu svæði hefur þó
auðnast að bæta talsvert við í naut-
griparæktinni, eða úr 13.661 í 17.852
gripi. Er þetta því þriðja stærsta naut-
griparæktarsvæði landsins. Þá hefur
hrossum einnig fjölgað, eða úr 4.959
í 6.377. Svínaræktin hefur einnig
verið í uppsveiflu og þar má segja
að stofninn hafi nær tvöfaldast, eða
úr 263 í 506 dýr.
Samdráttur í öllum búgreinum á
Austfjörðum nema í loðdýraeldi
og hrossarækt
Sauðfé á Austfjörðum hefur fækk-
að um rúmlega 43% á liðnum 33
árum, eða úr 112.420 í 63.630 fjár.
Nautgriparæktin er nálægt því að
halda í horfinu, en samt hefur gripum
fækkað úr 3.572 í 3.416. Veruleg
fækkun hefur orðið í alifuglaeldi,
eða úr 8.068 fuglum í 653. Svín voru
svo með öllu horfin úr austfirskum
búskap árið 2015.
Loðdýraeldi var ekki til sam-
kvæmt tölum MAST í þessum
landshluta árið 1982. Þar voru
hins vegar taldar vera 2.910 læður
2015. Það eldi er allt í Vopnafirði.
Þá hefur hrossum aðeins fjölgað á
Austfjörðum, eða úr 1.722 í 2.200.
69% fækkun sauðfjár á
höfuðborgarsvæðinu og á
Reykjanesi
Sauðfjárrækt á höfuðborgarsvæðinu
og á Reykjanesi hefur verið meiri en
margir ætla í gegnum tíðina, en samt
farið ört minnkandi á liðnum áratug-
um. Er hlutfallslegur samdráttur á
0 50.000 100.000 150.000 200.000 250.000 300.000 350.000 400.000 450.000 500.000
Suðurland 1982
Suðurland 2015
Austfirðir 1982
Austfirðir 2015
Norðausturland að Langanesi 1982
Norðausturland að Langanesi 2015
Norðvesturland 1982
Norðvesturland 2015
Höfuðborgarsvæðið. + Reykjanes 1982
Höfuðborgarsvæðið. + Reykjanes 2015
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
He
im
il:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
50.000
100.000
150.000
200.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Suðurland 1982 Suðurland 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
50.000
100.000
150.000
200.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Höfuðborgarsvæðið + Reykjanes 1982
Höfuðborgarsvæðið + Reykjanes 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
50.000
100.000
150.000
200.000
250.000
300.000
350.000
400.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Norðvesturland 1982 Norðvesturland 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
10.000
20.000
30.000
40.000
50.000
60.000
70.000
80.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Vestfirðir 1982 Vestfirðir 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
20.000
40.000
60.000
80.000
100.000
120.000
140.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Norðausturland að Langanesi 1982 Norðausturland að Langanesi 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
0
20.000
40.000
60.000
80.000
100.000
120.000
Nautgripir Sauðfé Hross Svín Alifuglar Loðdýr
Austfirðir
Þróun búfjárhalds 1982 til 2016
Austfirðir 1982 Austfirðir 2015
He
im
ild
ir:
B
ún
að
ar
m
ál
as
kr
ifs
to
fa
M
AS
T
− Framhald bls. 28