Bændablaðið - 09.06.2016, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Síðasta dag maímánaðar héldu
Bændasamtökin hóf til heiðurs
þremur starfsmönnum sem um
áratuga skeið hafa þjónað sam-
tökunum en hafa nú flutt sig yfir
í Matvælastofnun.
Þetta eru þau Guðrún Sigríður
Sigurjónsdóttir, nú skrifstofu-
fulltrúi búnaðarmála hjá MAST.
Hún hóf störf hjá Búnaðarfélagi
Íslands árið 1976. Þaðan lá leiðin
árið 1988 til Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Þegar Framleiðsluráðið
var síðan lagt niður um áramótin
1999–2000 flutti Guðrún, eða Gulla
Sigga eins og flestir þekkja hana,
með verkefnunum sínum yfir til
Bændasamtaka Íslands, en þau voru
stofnuð 1995. Hún flutti síðan yfir
til Landssamtaka sláturleyfishafa
árið 2000, en þau voru líka með
aðsetur í Bændahöllinni. Árið 2013
flutti hún svo á ný með verkefnum
Landssamtakanna yfir til BÍ. Allan
tímann var Gulla Sigga í raun að
halda utan um sömu verkefnin, er
lutu m.a. að gagnaöflun og að sinna
stuðningsgreiðslum fyrir hönd rík-
isins til sláturleyfishafa og bænda.
Hún flutti svo enn með verkefnin
yfir til MAST árið 2016 samfara
lagabreytingum um flutning verk-
efna frá BÍ.
Ómar Sigurvin Jónsson, nú fag-
sviðsstjóri búnaðarmála hjá MAST,
hóf störf hjá Framleiðsluráði
árið 1979 og sá þar í byrjun um
útreikninga á búmarki. Varð síðan
umsjónarmaður Fóðursjóðs og
gerðist í framhaldinu gjaldkeri
Framleiðsluráðs og var aðalbókari
ráðsins þar til það var lagt niður
í árslok 1999. Þá fór hann yfir til
Bændasamtakanna og tók að sér
verkefni í sambandi við beingreiðsl-
ur, sjóðagjöld og greiðslumark, sem
starfsmenn Framleiðsluráðs, sem
fluttust ekki yfir til BÍ, höfðu áður
sinnt.
Ásdís Kristinsdóttir, nú skrif-
stofufulltrúi búnaðarmála hjá
MAST, hóf störf hjá Búnaðarfélagi
Íslands árið 1983. Hún flutti síðan
yfir til Bændasamtaka Íslands við
stofnun þeirra 1995.
Yfirfærsla verkefna til MAST
Fyrir áramótin 2014 til 2015 voru
verkefni þessara þremenninga hjá
Bændasamtökunum sett undir hatt
sérstakrar deildar innan BÍ sem
nefnd var Búnaðarstofa og var
stýrt af Jóni Baldri Lorange sem
áður var yfirmaður tölvudeildar
BÍ og hafði einnig umsjón með
WorldFeng og hefur enn. Í kjöl-
far lagabreytingar voru verkefni
Búnaðarstofu svo endanlega flutt
yfir til MAST um síðustu áramót
í sjálfstæða einingu sem nefnd var
„Búnaðarmálaskrifstofa“. Urðu
Ómar og Guðrún Sigríður þá starfs-
menn MAST en Ásdís hélt áfram
þeim við hlið sem starfsmaður BÍ.
Nú hefur hún einnig verið ráðin til
MAST og hefur þar formlega störf
1. júlí. Þeim til aðstoðar var Bjarki
Pjetursson ráðinn á búnaðarmála-
skrifstofu MAST fyrir skömmu og
sem fyrr er Jón Baldur Lorange
framkvæmdastjóri skrifstofunn-
ar sem er til hús á annarri hæð
Bændahallarinnar (Hótel Sögu).
Gríðarleg þekking og reynsla
Í höndum þessa fólks er eins og
undanfarna áratugi tölfræðileg upp-
lýsingaöflun er lýtur að framleiðslu
íslensks landbúnaðar. Þar undir eru
einnig öll talnasöfnun um fjölda
búfjár Íslendinga, upplýsingar um
slátrun og aðra afurðaframleiðslu
og margvíslegt skýrsluhald. Allt er
þetta svo grunnur að úthlutun stuðn-
ingsgreiðslna ríkisins við bændur
sem BÍ annaðist áður fyrir hönd
ríkissjóðs.
Ljóst er að þremenningarnir
búa yfir gríðarlegri upplýsinga-
þekkingu á sviði landbúnaðarmála.
Samanlagður starfsaldur þremenn-
inganna hjá fyrrnefndum stofnunum
og í þágu íslenskra bænda er 110 ár.
Þökkuð störf í þágu bænda
Sigurður Eyþórsson, framkvæmda-
stjóri Bændasamtaka Íslands, þakk-
aði þeim fyrir dygga og frábæra
þjónustu í þágu íslenskra bænda í
gegnum tíðina. Tók hann þó fram
að þetta væri engin kveðjustund,
því íslenskir bændur myndu áfram
þurfa á þeirra þjónustu að halda um
ókominn tíma, þó skipt hafi verið
um vinnuveitanda.
Þökkuðu þremenningarnir fyrir
sig og lýsti Gulla Sigga því með
dæmisögu hvernig þeirra vinna
snerist að verulegu leyti um mann-
leg samskipti og að leysa úr málum
sem upp geta komið í flóknu kerfi.
Ánægjuleg samskipti við bændur
og starfsfólk Bændasamtakanna í
gegnum tíðina væri það sem skýrði
best hvers vegna hún, Ásdís og
Ómar hafi verið svo lengi í starfi
á sama vettvangi. /HKr.
síðustu 33 árum reyndar sá lang-
mesti á landsvísu, eða tæp 69%.
Þannig fækkaði sauðfé úr 12.034
árið 1982 í 3.754 kindur árið 2015.
Skýringin er án efa vaxandi þéttbýli
sem gerir allt sauðfjárhald erfiðara.
Þá hefur orðið gríðarlegur sam-
dráttur í alifuglarækt á síðustu
33 árum. Þar er um met að ræða,
samdrátt upp á ríflega 65%, eða úr
177.834 í 61.231 fugl samkvæmt
tölum MAST. Hafa verður þó alla
fyrirvara á þessum tölum í ljósi mis-
munandi aðferðarfræði í gegnum
tíðina.
Spurning hvort tölur um 45%
samdrátt í hrossaeign standist
Þótt áhugi fyrir hrossum virðist mik-
ill á þessu svæði, þá hefur samt orðið
nær helmings samdráttur í þeirri
grein samkvæmt tölum MAST.
Fækkaði hrossum úr 6.125 árið
1982 í 3.365 árið 2015, eða um 45%.
Virðist þarna um mikla öfugþróun
að ræða miðað við flesta aðra lands-
hluta. Ekki er samt ólíklegt að þessar
tölur endurspegli þann vanda sem
verið hefur uppi um talningu hrossa
hjá tómstundabændum í mesta þétt-
býlinu. Vonast menn til að breyting
verði til batnaðar á þeirri skráningu
strax í haust. Því kann að vera að
tölur um hrossaeign á höfuðborgar-
svæðinu og á Reykjanesi kunni að
breytast talsvert á næsta ári.
Fjölgun í öðru dýrahaldi
Aðrar breytingar í búfjáreign á þessu
svæði eru þær að nautgripum hefur
fjölgað úr 1.076 í 1.279 og svínum
hefur einnig fjölgað, eða úr 515 í
1.376. Því til viðbótar hófst minka-
rækt að nýju í Helgadal árið 1986
eftir nokkurra ára hlé og voru þar
skráð 2.974 dýr árið 2015.
/HKr.
Í síðasta Bændablaði var fjallað nokkuð um flutning búfjáreftirlits til
nýrrar búnaðarmálaskrifstofu Matvælastofnunar (MAST) í samræmi
við breytingu á lögum um búfjárhald nr. 38/2013. Framkvæmdastjóri
búnaðarmálaskrifstofunnar er Jón Baldur Lorange.
Að sögn Jóns Baldurs tók MAST að fullu við búfjáreftirliti, söfnun
forðagæsluskýrslna, úrvinnslu og afgreiðslu gagna um fjölda búfjár og
fóðuröflun í landinu, af Bændasamtökum Íslands um mitt ár 2010. Frá árs-
byrjun 2006 höfðu Bændasamtökin sinnt þessu opinbera hlutverki í umboði
MAST eftir lagabreytingu þar um, en fram að því hafði Búnaðarfélag
Íslands og forverar þess haft umsjón með forðagæslumálum, allt frá
fyrstu lagsetningum um þessi efni seint á 19. öld og snemma á þeirri 20.
Segja má að endanlegum flutningi stjórnsýsluverkefna frá
Bændasamtökunum til MAST hafi verið lokið um síðustu áramót með
flutningi á umsýslu stuðningsgreiðslna í landbúnaði sem byggði á breytingu
á búvörulögum sem samþykkt voru á Alþingi sumarið 2015. Þar með er
hagtölusöfnun, sem Hagstofa Íslands nýtir sér um íslenskan landbúnað,
umsjón með hjarðbókum um lifandi búfé, tölur um framleiðslu og sölu
búvara og stuðningsgreiðslur í landbúnaði komið á einn stað á búnaðar-
málaskrifstofu MAST.
Verið að leysa úr vanda við talningu á hrossum
Jón Baldur, sem samhliða starfi sínu hjá MAST sinnir einnig starfi verk-
efnisstjóra WorldFengs, upprunaættbókar íslenska hestsins, segir að alla
tíð hafi verið erfitt að eiga við gagnasöfnun um fjölda hrossa. Fyrir því séu
margvíslegar ástæður. Þó að þorri bænda séu með gögn í lagi í hrossarækt-
inni eins og öðrum greinum, fylgi ákveðinn vandi hrossaeign einstaklinga
í þéttbýli. Bylting hafi orðið með tilkomu upptöku skipulags skýrsluhalds
í hrossarækt í kringum 1990 og síðan með skýrsluhaldskerfinu Feng, sem
var tekið í gagnið árið 1991, sem síðar varð WorldFengur, alþjóðlegur
gagnagrunnur, árið 2001.
„Það skapaði ákveðinn vanda þegar voreftirlit var lagt af með breytingu
á lögum um búfjárhald árið 2013 og sex dýraeftirlitsmenn MAST komu í
stað rúmlega 40 búfjáreftirlitsmanna, sem voru á vegum sveitarfélaganna.
Frá þeim tíma hafa tölur um hross ekki skilað sér frá hrossaræktendum í
þéttbýlinu með ásættanlegum hætti.
Við hjá MAST, búnaðarmálaskrifstofa og Sigríður Björnsdóttir, sér-
greinadýralæknir hrossa, funduðum með Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðar-
manni hrossaræktar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML), og
útfærðum hvernig bæta megi þessa talnasöfnun. Við fórum yfir það
hvernig við gætum sem best treyst talnagrunn hrossa í landinu á næstu
misserum.
Það var niðurstaða okkar að efla skýrsluhaldið í hrossarækt og koma upp
árlegum skilum á því í WorldFeng. Jafnframt því sem það myndi tryggja
betri skil á hjarðbók, þá bætir þetta skýrsluhalds- og ræktunargögn til muna
fyrir Bændasamtökin og RML. Það vinnst því margt með þessu. Hluti
þessarar lausnar var að bæta inn í WorldFeng skráningu á umráðamanni í
samræmi við reglugerð um merkingar búfjár. Með því fæst heildstæð skrá
um alla umráðamenn hrossa sem ber að skila inn hjarðbókarupplýsingum
og haustskýrslum vegna búfjáreftirlitsins. Þegar þetta hefur náð fram að
ganga þá geta umráðamenn valið með sjálfvirkum hætti að skila gögnum
úr WorldFeng inn í haustskýrslu í Bústofni samhliða því sem þeir skila
inn skýrsluhaldinu.“
Öflugt skýrsluhald er í þágu bænda
Jón Baldur segir alltaf best að notast við jákvæða hvatningu og sem byggir
á því að bændur þurfi aðeins að skila sömu gögnum einu sinni. Þannig
sé kerfið byggt upp í dag. Bændur, sem eru þátttakendur í skýrsluhaldi
Bændasamtakanna, skila inn fullnægjandi hjarðbókargögnum í samræmi
við lög og reglur þar um. Skil á haustskýrslum fyrir búfé, forða og land-
stærðir eru lögbundin og þær upplýsingar eru grunnur að hagtölusöfnun
um lifandi búfé í landinu en jafnframt grunnur að stuðningsgreiðslum til
bænda. Þeir sem ekki skila haustskýrslum fyrir 20. nóvember ár hvert eiga
þá von á því að dýraeftirlitsmenn MAST komi í heimsókn til að fylla út
haustskýrsluna á kostnað umráðamanns. MAST hefur hægt og bítandi
verið að herða þetta eftirlit,“ segir Jón Baldur.
Engin skráning – enginn stuðningur
Þá segir Jón Baldur nauðsynlegt að tryggja fullnægjandi skil og eftirlit með
þeim búfjáreigendum, sem aðeins skila inn hjarðbókarupplýsingum, en eru
ekki þátttakendur í skýrsluhaldi búgreinanna. Samkvæmt reglugerð um
merkingar búfjár þurfi að skila inn upplýsingum með reglubundnum hætti
inn í hjarðbækur. Fastar verður nú tekið á því að hjarðbókum verði skilað
á réttum tíma, enda getur það haft áhrif á stuðningsgreiðslur til bænda.
Það geta bændur gert með rafrænum hætti í gegnum skýrsluhaldskerfi
Bændasamtakanna. /HKr.
Talnasöfnun um búfjárhald nú í höndum
búnaðarmálaskrifstofu MAST
Þremur fyrrverandi starfsmönnum Bændasamtakanna þökkuð störf við flutning þeirra til MAST:
Samanlagt með 110 ára reynslu
af störfum í þágu bænda
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir og Ómar Sigurvin Jónsson. Mynd / HKr.