Bændablaðið - 09.06.2016, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Vavilov úr hungri í umsátrinu án
þess að koma upp um hvar fræin
voru falin.
Hluti fræ-, róta- og aldinsafnsins
var hýstur í Úkraínu og á Krímskaga
og féll það í hendur Þjóðverja árið
1943. Liðsmenn SS-sveita þýska
hersins fluttu það sem herfang
til varðveislu í Lannach-kastala í
Austurríki.
Uppgangur Lysenko
Á meðan Vavilov ferðaðist um heim-
inn og skoðaði plöntur vann Lysenko
sig upp innan kommúnistaflokksins
og var einn helsti ráðgjafi Stalíns um
landbúnað og hvað ræktun varðar.
Lysenko hafði andúð á erfðafræði
og þróunarkenningu Darwins og
taldi hvort tveggja enn eitt dæmið
um stéttahyggju og valdatæki
yfirstéttarinnar. Hann var þeirrar
skoðunar að veiklaðar plöntur fórn-
uðu sér fyrir þær sterkari og legðust
niður til að deyja yfir rótum þeirra
og breyttu sér í áburð. Lysenko til
málsbóta þá lagði hann áherslu á
dýravelferð og taldi réttilega að kýr
mjólkuðu betur væri farið vel með
þær.
Handtaka og dauði
Vavilov forðaðist framan af að gagn-
rýna ræktunarhugmyndir Lysenko
en mun persónulega hafa þótt hann
ærið slakur ræktunar- og fræðimað-
ur. Að lokum, þegar hann var undir
þrýstingi beðinn um að gefa sitt álit
á hugmyndum Lysenko, gagnrýndi
hann þær harðlega. Lysenko læddi
nokkrum vel völdum orðum í eyra
Stalín og 6. ágúst 1940 var Vavilov
handtekinn þar sem hann var á ferða-
lagi í Úkraínu.
Eftir langar og strangar yfir-
heyrslur, sem sagt er að hafi verið
nálægt 400, allt að 13 klukkustund-
ir í senn og samanlagt um 1700
klukkustundir, var Vavilov dæmdur
til dauða í júlí 1941.
Í dómnum er hann sakaður um
að grafa undan sovéskum landbún-
aði. Ári seinna var dómnum breytt
í tuttugu ára fangelsi. Hann lést úr
næringarskorti í Gúlaginu árið 1943.
Hafinn til skýjanna
Vavilov var formlega náðaður af
hæstarétti Sovétríkjanna 1955.
Hann var útnefndur sem ein af
hetjum sovéskra vísinda skömmu
fyrir 1980. Reyndar voru valdhaf-
ar í Sovét svo uppteknir af því að
hefja minningu Vavilov til skýjanna
á sjötta og áttunda áratug síðustu
aldar að þeir gáfu út frímerki með
mynd af honum og nefndu bæði gíg
á tunglinu og litla plánetu í höfuðið
á honum.
Dúnhreinsunin ehf.
Við Axarhöfða,
110 Reykjavík
Sími 892 8080
Með nýjum viðskiptasamböndum okkar hefur
spurn eftir íslenskum æðardúni aukist og
verðmæti hans sömuleiðis. Nú þurfum við aukið
magn til hreinsunar og sölu og borgum fyrir vikið
hærra verð en fyrr.
Við greiðum 215-220 þúsund krónur fyrir hvert
kíló af fullhreinsuðum æðardúni og hvetjum
bændur til að hafa samband við okkur sem fyrst.
DÚNN
HÆKKAR
DUNHREINSUNIN