Bændablaðið - 09.06.2016, Síða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Geðþóttaákvörðun hlýtur að ráða
þegar sagt er um Hrafnabjörg, að
þar sé „lýsing á svæði sem annars
vegar er undirorpið beinum eignar-
rétti, og hins vegar óbeinum eignar-
rétti“. Sama er sagt um Snóksdal,
Hundadal, Skarð í Haukadal og
Fremri-Vífilsdal. Auðvelt væri og
að finna fleiri jarðir þar sem svipuð
landnýting var. „Utan eignarlanda“
er sagt um land jarðar sem fráskilið
er öðru landi hennar. Torskilið er
hvers vegna réttur til þess lands er
minni en annars lands í eigu sömu
jarðar. Hér má bæta við að Björn
Lárusson sagði (The old Icelandic
land registers. 30), að jörð væri ein
framleiðslueining. Jarðir eins og t.
d. Staðarfell og Snóksdalur voru ein
framleiðslueining, þótt land þeirra
væri tvískipt.
Í Kröfum er ljóslega mjög léleg
sagnfræði, kemur það m. a. fram
af notkun Landnámu, hve land var
numið hátt; einnig það sem segir t.
d. um Flekkudal, Svínadal í eigu
Hvols og selland Sauðafells. Eins
og áður sagði byrjuðu þjóðlendu-
málin án rannsókna og í framtíðinni
verður sögulegur grundvöllur þjóð-
lendumálanna vel rannsakaður. Vart
verða þá dómar um vinnubrögðin
mildari en hér.
Selstaða var vanalegast í heima-
landi og því rangt að tala um annars
konar eignarrétt á landi þar sem sel
var, sbr. það sem sagði um selland
Sauðafells og Botn við Svínbjúg.
Jörðin Seljaland var byggð úr landi
Hrafnabjarga á 17. öld, mætti ekki
segja að krefjast ætti að sú jörð yrði
gerð að þjóðlendu? Samkvæmt
Jarðabók Árna og Páls (Birna
Lárusdóttir. Mannvist. Rv. 2011. s.
240) voru í upphafi 18. aldar sel-
stöður á „rúmlega helmingi bæja
í Dalasýslu“. Allmörg dæmi eru á
Íslandi um að sel hafi orðið sjálf-
stæðar jarðir; ætti þá ekki að gera
kröfu um, að þær jarðir allar yrðu
gerðar að þjóðlendum? Þarf að búa
til orðið „sellandseign“, eða eitt-
hvað álíka?
Það er mjög skrýtið viðhorf í
Kröfum að ekki skuli vatnaskil ráða
merkjum. Annars held ég engum
hafi dottið í hug að tala um að land
hafi aðeins verið numið upp í miðj-
ar hlíðar fyrr en Hæstiréttur þurfti
að fara að sýkna rjúpnaskyttur eða
e.t.v. réttara sagt rjúpnaskyttu. Við
slíkar aðstæður hljóta landamerki
eins og á Hundadalsheiðinni að
verða sett að geðþótta. Margar
jarðir þarf að skoða til að úrskurða,
sumt af landi þeirra er undir beinum
eignarrétti en sumt ekki.
Niðurstaðan er því tvímælalaust
sú, að best yrði fyrir ríkið að draga
Kröfur Fjármála- og efnahagsráð-
herra … á svæði 9A Dalasýslu til
baka, því að kröfurnar byggjast
að verulegu leyti á nýyrðum sem
hvorki eiga sér neina lagalega né
sögulega stoð í heimildum. Með
öðrum orðum staðlausir stafir. Auk
þess eru kröfur gerðar að geðþótta,
mikil ósamkvæmni og augljós hlut-
drægni. Í Morgunblaðinu 16. jan.
2016 var greinin: „Lítið hagræði
að fjársvelta óbyggðanefnd.“ Þar
fylgdi kort af þeim svæðum sem
eftir er að taka til meðferðar, eink-
um Vestfirðir og Austfirðir. Augljóst
er að svæðin sem ríkið krefðist að
yrðu þar að þjóðlendu hljóta koma
að verða enn þá minni en í Dölum.
Myndi slíkt borga sig og væri ekki
affarasælast að segja stopp?
EFTIRSKRIFT
UM EIGENDUR AFRÉTTA
Í Grágás, lögum þjóðveldisins,
í ákvæðum í landabrigðisþáttar
um að telja fé í afrétt, er talað um
eigendur afrétta sem landeigendur
(Grágás Ib. = Grágás. Kbh. 1852.
114. og Grágás II. = Grágás. Kbh.
1879. 486–7.) Sjá einnig Grágás.
Lagasafn íslenska þjóðveldis-
ins. Rv. 1992. 335–337 Gunnar
F. Guðmundsson rekur ákvæði
um eigendur afrétta í bók sinni
(Eignarhald á afréttum og almenn-
ingum. IV. kafla. Lögafréttir.
39-46.) Þetta er nokkru eldra en
nýyrðin afnotanám og afréttareign.
Dr. Einar G. Pétursson
Eyrarvegi 65 - 800 Selfossi - Símar 587 3344 / 693 2040 - sghus@sghus.is
www.sghus.is
Smíðumoghönnum
SG Hús hannar flestar gerðir af þaksperrum í fullkomnu hönnunarforriti
og skilar fullbúnum teikningum til byggingaryfirvalda.
Allar sperrur eru samsettar með GTN – 100S gaddaplötum
sem pressaðar eru á samskeyti með vökvapressu.
Smíðum auk þess ýmsar gerðir af timbur veggeiningum og timburhúsum.
- flestar gerðir þaksperra
fjölslípi-/fræsisett
MFW 228
beltaslípivél
BT 75
handfræsari
OBF 1200
bandsög - tré
HBS 245HQ
rennibekkur D460FXL
11.662,-
19.568,- 15.615,-
75.390,-
68.982,-
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
t i l b o ð
V O R
Aukin umferð á Snæfellsvegi
Umferðin um mælipunkt
Vega gerðarinnar við Eiðhús á
Snæfellsvegi hefur það sem af
er árs, eða á fyrstu fimm mánuð-
um ársins, aukist um 26% miðað
við sama tíma í fyrra. Þegar litið
er lengra aftur í tímann nemur
aukningin um 40%.
Leiða má líkur að því að aukin
vetrarferðamennska erlendra ferða-
manna skýri þessa miklu aukningu,
að Snæfellsnes sé í heppilegri fjar-
lægð frá höfuðborginni þar sem
langflestir erlendir ferðamenn
hefja dvöl sína.
Sama á reyndar við um
Hringveginn sunnan Vatnajökuls
þar sem mikil aukning hefur mælst
í umferðinni í vetur, þar sem
umferðin jókst um heil 8% í mars
síðastliðnum.
Umferð um Hringveginn hefur
aukist umtalsvert og nær greini-
lega víðar, m.a. um Snæfellsveg
við Eiðshús.Þegar meðal um-
ferðin frá árinu 2003–2016 er
skoðuð fyrir fimm fyrstu mánuði
hvers árs kemur í ljós í taln-
ingu Vegagerðarinnar að miklar
breytingar hafa átt sér stað, umferð
hefur aukist. Á fimm mánaða
tímabili, í upphafi hvers árs, vex
umferðin árlega um 4% á ári milli
áranna 2011–2015 en tekur stökk
í ár og vöxturinn nemur 26% frá
fyrra ári. /MÞÞ