Bændablaðið - 07.11.2019, Page 45

Bændablaðið - 07.11.2019, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. nóvember 2019 45 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Ætternisleiðréttingar á grunni arfgerðargreininga Í tengslum við verkefnið um erfðamengisúrval fyrir íslenska kúastofninn voru tekin rúmlega 7.500 vefjasýni úr kúm og kvígum á 122 búum víðsvegar um landið veturinn 2017-18. Því til viðbótar voru send sæðissýni úr um 700 nautum til arfgerðargreiningar. Niðurstöður þessara sýna hafa á undanförnum vikum og mánuð- um verið bornar saman við skráð ætterni þessara gripa. Í ljós hefur komið að nokkuð er um villur í ætt- ernisskráningu en samhliða þessari vinnu hefur ætterni viðkomandi gripa verið leiðrétt í gagnagrunnin- um Huppu. Við höfum áður sagt frá rangt skráðu ætterni örfárra sæðinganauta en enn hefur ekkert verið upplýst um heildarumfang rangfærslna í heild sinni. Í ljós hefur komið að fjöldi villna er rétt um 430 talsins sem nemur u.þ.b. 5,2%. Það er innan þeirra marka sem reiknað var með en sem dæmi þá eru samsvar- andi tölur frá Noregi og Svíþjóð nálægt 3–4%. Ástæðum þessara villna má einkum skipta í þrennt. Í fyrsta lagi er um að ræða víxl á kálfum við merkingu, í öðru lagi rangskrán- ingar og í þriðja lagi mistök við sæðingar eða skráningar þeirra. Þessar villur má allar rekja til mannlegra mistaka, nokkuð sem mjög erfitt eða ómögulegt er að komast hjá. Í ljós hefur komið að mikill munur er milli búa þegar kemur að víxli á kálfum við merk- ingu og er greinilegt að því fyrr sem kálfarnir eru merktir því minni hætta er á slíku. Villur sem stafa af gripavíxli telja um helming allra villna en hafa verður í huga að hver og ein villa er tvítalin, því verði víxl koma alltaf a.m.k. tveir gripir við sögu. Þessum villum má auðveld- lega fækka verulega með breyttu verklagi á viðkomandi búum. Rangskráningar eru um fjórð- ungur allra villna. Þar er um að ræða villur eins og að gripur er skráður undan sæðinganauti en reynist svo undan heimanauti eða öfugt, móðir hefur haldið við fyrri eða seinni sæðingu eða faðir er skráður nautið sem sætt var með eftir burð. Þá getur verið um það að ræða að móðir hafi fengið við nauti án þess að um það hafi verið vitað. Þarna er oftast hreinlega um mistök að ræða við skráningar og villum sem þessum má auðveldlega fækka með aukinni vandvirkni og nákvæmni við skráningar. Mistök við sæðingar eða skrán- ingar þeirra eru einnig um fjórð- ungur villuorsakanna. Þar er um að ræða að frjótæknir gerir mis- tök við skráningu nautsins, skráir rangt númer eða ruglast á númer- um, víxlar kúm við skráningu eða sæðingu, grípur rangt strá (oftast samlitt strá úr öðru nauti) eða tví- sæðir hvort með sínu nautinu hvorn sinn daginn. Eðlilega gera frjótækn- ar mistök eins og aðrir og flestar þessara villna er eitthvað sem búast má við. Hins vegar má með aukinni nákvæmni draga úr fjölda þessara villna. Í heildina getum við verið mjög sátt við lítið umfang villna. Fjöldi þeirra er innan þeirra marka sem vænta mátti og það góða er að þeim má fækka mikið með örlítilli breytingu á verklagi og aukinni nákvæmni. Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgripa- rækt mundi@rml.is Efstu naut Eftir breytingar á heildareinkunn hefur orðið breyting á röð efstu nauta. Bambi 08049 trónir á toppnum að nýju með firnagóða einkunn upp á 116. Næstur honum kemur Bakkus 12001 með 113 eftir að hafa styrkt sína stöðu og næstir í röðinni eru Hálfmáni 13022 og hið mikla og farsæla kynbótanaut Birtingur 05043 með 112 í einkunn. Skammt undan eru Baldi 06010, Úlli 10089, Sjarmi 12090 og Jörfi 13011 með 111. Athyglisvert að sjá að Baldi og Úlli hafa styrkt sína stöðu og hið sama á við um Kamb 06022 sem er nú með 110 ásamt þeim Kola 06003, Ými 13051, Stera 13057, Kláusi 14031 og Svan 14068. Á þessari upptaln- ingu má sjá að meðal þeirra nauta sem nú eru í notkun er að finna mörg alöflugustu nautanna. Að lokum Með mælidagalíkani fyrir afurðir hefur val nauta tekið breytingum og hægt er að afkvæmadæma nautin fyrr en ella. Þetta skilar okkur hraðari kynbótaframförum en leggur um leið auknar kröfur á okkur sem að nautgriparæktinni stöndum. Útlitsdómur dætra og afurðaupplýs- ingar þeirra haldast nokkuð í hendur, þ.e. afurðamat kúnna liggur fyrir á svipuðum tíma og nægur fjöldi dætra hefur verið útlitsdæmdur. Einn veigamikill þáttur í afkvæmadómi nautanna er mjaltaathugun en þar hafa illu heilli skil farið versnandi. Sú athugun stendur undir verulegum hluta af mjaltaeinkunn nautanna sem og mati fyrir gæðaröð. Vanti naut tilskilinn fjölda dætra með mjalta- athugun seinkar það dómi hans. Það er því eftir miklu að slægjast og vil ég biðja menn að skila mjaltaathug- unum sem allra fyrst og viðhalda þannig því mikla og góða samstarfi sem ræktunarstarf nautgriparæktar- innar byggir alfarið á. Í ljós hefur komið að nokkuð er um villur í ætternisskráningu í íslenska kúastofninum, en samhliða vinnu við sýna- töku hefur ætterni viðkomandi gripa verið leiðrétt í gagnagrunninum Huppu. Áskorun til sauðfjárbænda og unnenda íslenskrar sauðfjárræktar: Endurreisum sútunarverksmiðjuna á Sauðárkróki Fyrir nokkrum árum voru 3 sút- unarverksmiðjur, sem sútuðu gærur, starfræktar hér á landi. Það var Skinnaverksmiðjan Iðunn á Akureyri, sem starfrækt var af SÍS, Sútunarverksmiðja Sláturfélags Suðurlands í Reykjavík og Loðskinn hf. á Sauðárkróki. Gærur voru uppistaðan í hráefni þessara verksmiðja. Allar bjuggu þessar verksmiðjur yfir mikilli þekk- ingu og voru búnar góðum tækjum. Þekking á þessu sviði var mikil hér á landi; aðeins er eftir hluti af þessari þekkingu. Sú þekking er í verksmiðjunni á Sauðárkróki. Þeirri þekkingu megum við ekki glata. Það verður því að endurreisa sútunar- verksmiðjuna á Sauðárkróki. Það er auk þess besta leiðin til að verð- mætin glatist ekki. Það mun auk þess gagnast íslenskri sauðfjárrækt, þegar til lengri tíma er litið. Íslenska gæran er ein allra besta gæra til framleiðslu ákveðinna vara úr skinnum, þar sem hún er létt og að mestu leyti laus við skemmdir á hárramnum, t.d. af völdum skordýra og annara sníkjudýra, sem veldur skemmdum af ýmsu tagi og verð- mætarýrnun gærunnar. Á það má einnig benda að gærur og skinn eru ,,græn“, koma í stað plastefna, eru náttúruvænar afurðir. Þetta eru efni sem koma alls staðar að notum. Ég vil því skora á alla fjábændur á Íslandi að taka höndum saman og endurreisa sútunarverksmiðjuna á Sauðárkróki og bjarga þannig verð- mætum, viðhalda þekkingu og skapa verðmæti úr íslensku hráefni! Sveinn Hallgrímsson, fyrrv. sauðfjárræktarráðunautur og gærumatsformaður Sveinn Hallgrímsson. IÐNVER · Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík · Sími 517-2220 · idnver@idnver.is Óskum Steiná 2 í Svartárdal til hamingju með kvoðukerfið frá System Cleaners Lágþrýsti þvotta- og hreinlætiskerfi sem veitir einstakt öryggi í matvælaiðnaði og landbúnaði LESENDABÁS Bænda 21. nóvember

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.