Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 5
Frá aðalfundi Öryrkja- / bandalags Islands Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands var haldinn laugar- daginn 12. október á Grand Hótel Reykjavík og hófst kl. 10 ár- degis. Rétt til fundarsetu áttu 3 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi en aðeins 8 félög sendu þó fulla fulltrúatölu. Alls sóttu fundinn milli 60 og 70 manns. Ritstjóri átti þess ekki kost vegna óviðráðanlegra ástæðna að sitja þennan fund, hvað honum þótti miklu miður. Meðgóðramannahjálphefur hann gert fundinum eftirfarandi skil, en ef eitthvað er missagt í fræðum þessum þá er það einvörðungu sök ritstjóra. Formaður Ólöf Ríkarðsdóttir setti fundinn og bauð gesti vel- komna. Fundar- stjóri var kjörinn Þórir Þorvarðar- son, en fundarritar- ar þau Helgi Hróð- marsson og Þórey V. Ólafsdóttir. Fyrsta dag- skrármálið var tillaga um aðild tveggja nýrra félaga að Öryrkjabandalaginu en þau voru MND félag íslands og Samtök syk- ursjúkra. Var tillagan einróma sam- þykkt og bauð fundarstjóri þau inni- lega velkomin og kvaðst hlakka til samstarfsins. Formaður Samtaka sykursjúkra, Sigurður V. Viggósson kynnti félagið og aðdraganda umsóknarinnar og fagnaði aðildinni. Enginn fulltrúi MND félagsins var mættur, en það voru mistök og félagið hefur þegar tilnefnt stjórnarmann sinn Rafn R. Jónsson. Ólöf formaður flutti þessu næst ítarlega skýrslu um starfið á liðnu starfsári. Hún kom víða við og verður fátt eitt rakið nákvæmlega hér enda flestu verið gerð skil jafnharðan hér í blaðinu. Hún byrjaði á því að bjóða hin nýju félög, MND félag íslands og Samtök sykursjúkra velkomin til bandalagsins. Ólöf minnti á 35 ára afmælið og gjöfina til leikfangasafns Greiningarstöðvarinnar. Hún vék næst að hinni margháttuðu fyrir- greiðslu við fólk hjá bandalaginu m.a. lögfræðiþjónustu sem mikið væri sótt, en Jóhannes Albert með sérskýrslu þar um. Fjórir stjórnarfundir voru haldnir og 11 fundir framkvæmdastjórnar. Meginefnið í raun það að bregðast sem bezt við breytingum í niðurskurð- arátt, þar sem hið algjöra öryggisleysi væri verst. Hún vék að kvörtunum til Umboðsmanns Alþingis varðandi skil síðustu kjarasamninga til lífeyrisþega, en Umboðsmaður enn engin andsvör fengið frá heilbrigðis- og trygginga- ráðuneyti. Ólöf minnti á einstöku varnarsigra s.s. að tryggingaráð hefði tekið til baka ákvörðun sína um afnám bílakaupalána vegna harðra viðbragða bandalagsins og fleiri. ✓ Olöf vék að nefnda- og stjórnar- þátttöku bandalagsins og skal upptalið hér það helzta: Stjómamefnd um málefni fatlaðra, Ferlinefnd félagsmálaráðuneytis, Starfsþjálfun fatlaðra, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Umferðarráð, Öldrunarráð íslands, Bréfaskólinn og Málræktar- sjóður. Auk þess eru svo ýmsar tíma- bundnar starfsnefndir á vegum hins opinbera. á vék Ólöf að styrkjum og alveg sér í lagi að styrknum til Iþrótta- sambands fatlaðra vegna Ólympíu- leikanna, enda árangur íþróttafólks þar afar glæsilegur. “Þó er það ömur- leg staðreynd að ennþá er meira tekið eftir þeim sem eru ófatlaðir og voru næri'i því að komast í úrslit í einhverri grein, heldur en hinum sem komu með gullið”, sagði Ólöf orðrétt. Hún vék svo að heimsóknum til félaga á árinu sem alls hefðu verið sex og frá þeim glögglega greint hér. Ólöf lýsti yfir ánægju sinni yfir sam- starfi félaga um skrifstofu á Laugavegi 26, félagslegur styrk- ur og sparnaður um leið. Ólöf greindi svo ljóslega frá samstöðu- hátíðinni á Akureyri og kvað land mundi lagt undir fót nú í desember, en óráðið enn hvert. Hún vék stuttlega að sjóðunum tveim sem í vörzlu bandalagsins eru svo og sagði hún frá fræðslu sem hún annaðist á vegum ÖBÍ um ferlimál fatlaðs fólks hjá nemum í sjúkraþjálfun. Þá sagði Ólöf að handbókin um ferlimál sem all- lengi hefur verið í smíðurn væri nú í burðarliðnum. Einnig gerði hún skil stefnuskrá bandalagsins svo og upp- lýsingaritinu um bandalagið og félög þess. Þá fór Ólöf allítarlega yfir lottó- málið svokallaða þ.e. þá kröfu Þroskahjálpar að fá tekjur af lottóinu í sinn hlut og skipan starfshóps á FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.