Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 53
U M JOL
í heiðum bjarma vitjar minning mín
frá morgni lífsins tendrast geislasýn
um barnsins jól með bjartan Ijóma sinn
sem bera Ijós í gamalt hjarta inn.
Þar kærust móðir las um lífsins mátt
um lausnarann, um kærleik, frið og sátt.
Við leggja ættum í guðs mildu mund
allt mannlegt ráð og treysta hverja stund.
Og góður faðir Ijúfan boðskap las
um Ijós á himnum, boð um Messías.
Þá lítill drengur fögnuð sálar fann
og fegurst heit í trú og kærleik vann.
En jólin ennþá láta yndi í té
með undraskin, þá verður stormahlé.
í hljóði bið ég guð að gefa mér
þá gullnu bernskutrú sem dýrust er.
H.S.
Fræðslurit Geð-
verndarfélagsins
Geðverndarfélag Islands er með
hina ágætustu fræðsluritaút-
gáfu, sem sannarlega er mjög virðing-
arvert. Nýlega eru komin út tvö slík
undir kjörorðunum: Ræðum geðsjúk-
dóma, þekking hjálpar. Annað tveggja
þessara fræðslurita ber nafnið: Arátta
og þráhyggja, en hitt: Kvíðaköst.
Aðeins skal í örfáum orðum að efni
vikið, en framsetning öll afar ljós og
skýr svo og uppsetning öll. Talið er
að um 5000 íslendingar þjáist af þrá-
hyggju og áráttu og í ritinu þar um er
glögglega lýst hvernig árátta og þrá-
hyggja lýsa sér, hverjar eru helztu
orsakir og hvernig unnt reynist að
hjálpa til gegn þessum kvillum og
hvernig við getum hjálpað þeim sem
þannig þjást. M. a. er þarna vikið að
því hvaða þráhyggjuhugsanir séu al-
gengastar s.s. hugsanir um smit og
óhreinindi, reglu og skipulag og kyn-
ferðislegar hugsanir og í framhaldi af
því hvaða áráttuhegðun er svo algeng-
ust. Möguleiki er talinn á því að þrá-
hyggja og árátta geti gengið í arf.
Afleiðing þessa verður oft þunglyndi.
Arangur meðferðar - lyf - þjálfun - er
oft ágætur. Ráðleggingar eru svo til
þeirra sem af þjást og þeirra sem
næstir standa.
✓
fræðsluritinu um kvíðaköst er
leitað svara við spurningum um
hvað sé að gerast í raun þegar menn
fá kvíðakast. Kvíðasjúkdómur þessi
er nefndur felmtursröskun sem er að
fá endurtekin kvíðaköst og vera með
viðvarandi ótta við að fá slíkt kast.
Greint er frá 13 einkennum sem fram
geta komið við felmtursröskun og í
kvíðakasti koma a.m.k. fjögur þeirra
fram, allt frá skjálfta, dofa og óraun-
veruleikakennd yfir í mæði eða köfn-
unartilfinningu eða þá hræðslu við að
missa stjóm á sér eða brjálast. Fælni
er svo skipt í þrjá flokka: einföld
fælni, félagsfælni og víðáttufælni.
Fælni er oft langvarandi og getur
valdið verulegri vanlíðan eða fötlun.
Ekki er vitað um orsakir með neinni
vissu, tilhneiging lfklegameðfædd og
arfgeng. Sex af hundraði hafa haft
víðáttufælni, þrír af hundraði verið
félagsfælnir og um tveir af hundraði
með felmtursröskun. Kvíðasjúkdómar
eru algengari rneðal kvenna. Við
felmtursröskun og fælni er unnt að
beita bæði lyfjameðferð svo og sál-
fræðilegri meðferð með góðum
árangri. Alltaf tekst að bæta líðan
mikið og draga mjög úr þeirri hömlun
sem sjúkdómurinn hefur valdið. Ut-
gáfa þessara rita var styrkt af Öryrkja-
bandalaginu og má vissulega segja að
þarna sé fé vel varið.
H.S.
Gullna hliðið
Halaleikhópurinn er sem
fyrr stórtækur til verka og að
þessu sinni var það sjálft
Gullna hliðið hans Davíðs
Stefánssonar sem frumsýnt var
16. nóvember sl.
Er þar skemmst að segja að
leikhópurinn stóð sig með
stakri prýði, fór hreinlega á
kostum og mál margra að þetta
hafi verið jafnbezta sýning
hópsins og hefur þó jafnan vel
tekizt. Árni Salómonsson vann
hreinan leiksigur sem
óvinurinn og allir aðrir skiluðu
sínu ágæta vel. Nánari frásögn
bíður næsta blaðs. Til hamingju
Halafólk.
H.S.
Upplýsingarit
• •
Oryrkjabanda-
lagsins
Oryrkjabandalag Islands hefur
gefið út í handhægu broti
upplýsingarit afar smekklegt og vel
unnið. Þarnaeraðfinnaíknöppuen
ljósu máli góðan fróðleik um banda-
lagið sjálft, Hússjóð Öryrkjabanda-
lagsins, Vinnustaði Öryrkjabanda-
lagsins, Starfsþjálfun fatlaðra, Tölvu-
miðstöð fatlaðra og síðan þau 22
félög bandalagsins sem þá voru.
Þarna geta menn bæði lesið sér til
um meginatriði í stefnu sem starfsemi
svo og er vísað til vegar um leið hvar
frekari upplýsinga skuli leitað. Ætl-
unin er að útdráttur þessa rits verði
gefinn út á dönsku og ensku en bráð-
nauðsynlegt er fyrir bandalagið að
eiga slíkar upplýsingar til að láta þá
fjölmörgu hafa er eftir leita.
Upplýsingaritið er 32 bls.
Umsjón með útgáfu þess var í
höndum formanns og framkvæmda-
stjóra svo og Einars Arnar Stef-
ánssonar.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKIABANDALAGSINS
53