Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 25
^ itofu:
♦ steínt að verkefnaflutrangi til
borgarinnar
<• aukin áhersla á búsetumál fatladra
♦ fleiri atvinnuúrræði fyrir fatlaða
♦ fleiri dagvistarúrræði
♦ aukin skammtímavist
Verkefni málaflokksins bíða eftir nýrri skipun á vegum borgarinnar.
eftir bæði inn á við sem út á við. Hér
væri um ómetanlegt hjálpartæki að
ræða sem tryggði skilvirkari og skipu-
legri vinnubrögð sem ættu öllum til
góða að koma, ekki sízt skjólstæðing-
unum, enda frá upphafi að því miðað
að sem bezt yrði þeim þjónað. Það
væri raunar þarft að fá Astu síðar til
að gera grein fyrir þessu framtaki og
ekki síður því hvernig nýtzt hefði.
Við ræddum allnokkuð um frekari
liðveizlu, sem er hinn ört vaxandi
þáttur í starfseminni. I því sambandi
benti Ásta alveg réttilega á að sam-
kvæmt eðli og mikilvægi þessarar
stoðþjónustu væri ekki fyrir hvern
sem er að ganga inn í slíkt vandastarf
algerlega óundirbúið. Þetta væri fjöl-
þætt, krefjandi starf og reyndi veru-
lega á og því þyrfti það fólk sem þessu
sinnti ákveðinn grunn til að byggja á,
námskeið þyrfti m.a. Þeim mun meiri
og betri undirstaða, þeim mun árang-
ursríkara að öðru jöfnu.
Iþessu sambandi minnti Ásta á
ákveðnar væntingar til félagsmála-
brautar í Borgarholtsskóla í Grafar-
vogi sem er verkmenntaskóli. Þar
gæti hið unga fólk verið í ágætu námi
og stundað þá verklega þáttinn m.a. í
leikskólum og meðal aldraðra og fatl-
aðra og þannig fengið góðan grunn
til að byggja á. Allt væri hins vegar í
óvissu hér um enn, en Ásta lagði á
það áherzlu að í frekari liðveizlu þyrfti
að vera fólk með góða, margþætta
menntun, þar sem mannlegi þátturinn,
samskipti við fólk ólíkrar gerðar skip-
aði ákveðið öndvegi. Talandi um
frekari liðveizlu þá sagði Ásta okkur
frá því að of naumt væri skammtað
miðað við hina miklu þörf eða aðeins
16,7 millj.kr. á þessu ári en á næsta
árs fjárlögum er gert ráð fyrir 23,9
millj.kr. Ásta kvað þetta samsvara
rúmum 9 stöðugildum. Þetta væri
vissulega alltof lítið, hér væri í raun
vaxtarbroddurinn í málaflokknum og
að honum yrði að hlúa mun betur, því
svo margir ættu að njóta góðs hér af.
Mörg málanna sem hingað berast eru
afskaplega erfið og þá þarf að freista
þess að feta sig nýjar leiðir, sagði Ásta
og leit þá einnig til málaflokksins í
heild sinni.
Nú njóta um 70 manns þessarar
dýrmætu þjónustu alls. Á árinu 1995
tókst að leysa 51 búsetumál í sam-
býlum og íbúðum svo vikið sé að
beinum árangri. í þessu sambandi gat
Ásta um alveg sérstaklega góða
samvinnu og samstarf við Hússjóð
Öryrkjabandalagsins sem sannarlega
hefði ágætum árangri skilað.
Við fórum svo yfir umfangið talna-
lega séð til að gefa lesendum þar um
nokkra hugmynd. Á skrifstofunni eru
framkvæmdastj óri, skrifstofustj óri,
sálfræðingur, ráðgjafi, almennur
afgreiðslufulltrúi og einu stöðugildi
hyggst Ásta deila í tvennt: hálft stöðu-
gildi verði starfsmannastjóri enda ekki
vanþörf á með um 200 manns alls á
launaskrá (sambýlin öll og önnur
starfsemi) og hálft stöðugildi fræðslu-
stjóra til þess að sjá um og standa fyrir
fræðslunámskeiðum og ekki síður að
halda gæðakerfinu gangandi, sem
væri mjög mikilvægt. Stöðugildin á
skrifstofunni sjálfri eru sem sagt 6.
Sambýlin sern Svæðisskrifstofan
er alfarið með á sínum snærum eru
14 talsins og þar eru heimilismenn alls
80.
Ásta tók fram að auk þessa væru
svo sambýli á vegum Styrktarfélags
vangefinna sem hýsa mjög marga, svo
og tvö heimili á vegum Reykjavíkur-
borgar og eitt á vegum Blindra-
félagsins. Ásta sagði að einkar góð
samvinna væri einmitt við Styrktar-
félag vangefinna sem er með svo
geysilega umfangsmikla starfsemi.
Öll eru sambýlin á vegum Svæðis-
skrifstofu fyrir þroskahefta utan eitt
fyrir geðfatlaða. Svo er hið ágæta
Iðjuberg sem áður hefur verið greint
hér frá, en þar er annars vegar vinnu-
stofa fyrir einhverfa þar sem 14 alls
iðja vel og dagvist þar sem eru í
kringum 25, yfirleitt hálfan daginn.
Um alla þessa starfsemi mætti
eflaust spyrja utan enda en skal
ekki gert hér. Það eitt ætti að vera
alveg Ijóst að mati þess sem hér heldur
á penna að mikil nauðsyn er á því að
hafa ákveðna fjölbreytni í tilboðum,
fatlað fólk er ekki frekar en annað fólk
einslitur hópur þar sem allir eru
steyptir í sama mótið.
Ásta vildi svo í lokin koma því að,
að svæðisskrifstofan flytur að Suð-
urlandsbraut 24 nú íbyrjun desember.
Við ræddum málefni fatlaðra fram
og aftur yfir kaffibollunum og eitt er
morgunljóst: Hér er um viðamikla og
tjölþætta þjónustu að ræða sem taka
þarf ríkulega tillit til þegaryfirfærslan
verður, sem telja má alveg víst að
verði. Þeirri fagþekkingu og reynslu
sem til staðar er á svæðisskrifstof-
unum má og á hreinlega ekki að kasta
fyrir róða.
Þríeykið þakkar Ástu fyrir fróðleik
mikinn og mætar viðtökur. Henni og
hennar fólki öllu árnum við alls góðs
í áframhaldandi starfi að málefnum
fatlaðs fólks. Og enda skal á ítrekun
þess að í Reykjavík eru 52% allra
öryrkja í landinu og það verður ein-
faldlega að vera til viðmiðunar þegar
fjármunum er deilt niður.
Helgi Seljan
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25