Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Side 7
2. Skattamál ýmiss konar, en um þau
mun Jóhannes skrifa í Frétta-bréfið.
3. Mál þar sem öryrkjar eru að ná rétti
sínum gagnvart opinberum aðilum.
Jóhannes gerði í 2. tbl. þessa árs
glögga grein fyrir málaumfangi öllu
sem og eðli helztu mála.
Nú var komið að Jóni Þór Jó-
hannssyni stjórnarformanni
Vinnustaða Öryrkjabandalagsins. Jón
Þór kvað rekstur vinnustaðanna hafa
vel gengið á starfsárinu, afkoman
hefði batnað undanfarin ár sem næmi
u.þ.b. 2 millj.kr. á ári. Eigið fé væri
nú um 9 millj.kr. Rekstrartekjur
síðasta árs voru 26,3 millj. kr. og
rekstrargjöld 36,4 millj.kr. Framlag
ríkis var 5,4 millj.kr. en ÖBÍ lagði til
4,5 millj.kr. Á árinu fjölgaði starfs-
fólki úr 27 í 44 og allt umfang jókst.
Framkvæmdasjóður fatlaðra veitti til
Vinnustaða ÖBI 1 millj.ki'. Eignir í
formi tækja og búnaðar nema kr. 18,7
millj. en skuldir eru 9,7 millj.kr.
Jón Þór sagði milli 80 og 100
manns á biðlista eftir að fá vinnu.
Kvað útlitið í rekstrinum gott nú og
þakkaði í lokin fyrir góð störf fram-
kvæmdastjóra og annars starfsfólks.
órir Þorvarðarson flutti því næst
skýrslu frá íslenzkri getspá.
Fyrirtækið er einmitt 10 ára nú á þessu
ári. Rekstrarárið er frá 1. júlí - 30.
júní ár hvert og miðast skýrslan þar
við.
Öryrkjabandalagið á þarna 40%
eignarhlut og aðalmenn í stjórn eru
Bjöm Ástmundsson og Þórir Þorvarð-
arson. Þórir minnti á uppbyggingu og
skipulag svo og starfsemina þessi 10
ár sem segja mætti að væri ævintýri
líkust. Þórir greindi þessu næst frá
tilkomu “Kínósins” á starfsárinu, en
það hefði ekki gengið nógu vel.
Laugardagslottóið hefur alltaf verið
gmndvöllur tekjuöflunarinnar og þrátt
fyrir harðnandi samkeppni gengi það
bærilega. Hann greindi svo nánar frá
þróun þessara mála. Víkingalottóið
breytist lítið, spennan í kringum stóra
vinninginn helzt. Heildarsalan hefur
ekki minnkað hjá íslenzkri getspá.
Hann sagði að bráðabirgðauppgjör
sýndi tekjuafgang upp á rúmar 357
millj.kr. sem þýddi hlut Öryrkja-
bandalagsins að upphæð 146 millj.kr.
Þórir sagði kostnað hafa aukist vegna
endurnýjunar tækjabúnaðar svo og
vegna kynningar á “Kínóinu” sem
ekki hefði skilað sér nógu vel. Þórir
kynnti í lokin eftir að fundargestir
höfðu komið með ábendingar sínar
ýmsar nýjungar sem á döfinni væru.
essu næst flutti Guðrún Hann-
esdóttir forstöðumaður skýrslu
Starfsþjálfunar fatlaðra.
Guðrún ræddi fyrst hina miklu
breytingu á starfseminni sem fólst í
að flytja í hið nýja og glæsilega hús-
næði í Hringsjá - Hátúni lOd. Minnti
á hraða byggingarsögu hússins sem
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefði
fjármagnað, en góður stuðningur
hefði fengizt frá Öryrkjabandalaginu
svo og frá Oddfellowstúkunni Skúla
fógeta. Á liðnu vori útskrifaðist
hundraðasti nemandinn frá Starfs-
þjálfun fatlaðra. Guðrún greindi frá
þátttöku í Degi símenntunar og
tveggja vikna námskeiði sem nú væri
boðið upp á - aðlögunar- og mats-
námskeiði. Nemendur hafa verið á
aldrinum 18 til rúmlega fimmtugs -
meðalaldur 25 -35 ár. 108 nemendur
lokið öllum þrem önnum.
Guðrún sagði frá tölvunám-
skeiðunum - föstum ómissandi þætti
starfsins m.a. fyrir heyrnarlausa og
blindaog sjónskerta. Starfsþjálfunin
er einnig með allmikla ráðgjöf og sem
dæmi um það sagði Guðrún að 20 -
30 viðtöl vikulega tengdust leiðbein-
ingum og ráðgjöf af ýmsu tagi.
Minntist í lokin á Helios II verkefnið
og Leonardo starfið, en þakkaði svo
stjórn Starfsþjálfunar og starfsfólki á
skrifstofu ÖBI hið ágætasta samstarf.
Eyjólfur Guðmundsson endur-
skoðandi lagði því næst fram,
las og skýrði reikninga Öryrkja-
bandalagsins, Hússjóðs og Vinnu-
staða fyrir árið 1995. Áður hafa
komið fram í skýrslu Jóns Þórs helztu
tölur hjá Vinnustöðum Öryrkjabanda-
lagsins.
Hjá Hússjóði Öryrkjabandalagsins
eru húsaleigutekjur rúmar 113
millj.kr. en gjöld vegna fasteigna
tæpar 56 millj.kr. Fyrning er rúmar
36 millj.kr. Framlag frá Öryrkja-
bandalagi Islands af lottóhagnaði er
tæpar99 millj.kr. Samtals nema eign-
ir Hússjóðs nú rúmlega 1.7 milljörð-
um króna, enda má segja að víða
standi fé hans fótum, svo vitnað sé til
gamals orðtaks.
Heildartekjur Öryrkjabandalags
Islands af Islenzkri getspá voru 147
millj.480 þús.kr. Af því runnu tæpar
99 millj.kr. til Hússjóðs s.s. að framan
er getið. Rekstrargjöld bandalagsins
námu alls rúmum 16,3 millj.kr. og þar
af eru laun og launatengd gjöld rúmar
8.4 millj.kr.
Styrkir til aðildarfélaga bandalags-
ins námu kr. 6.850 millj.kr. og til ann-
arra voru framlög rúmar 10,8 millj.kr.
Hæstu framlög þar eru: Vinnustaðir
ÖBÍ 4,5 millj.kr.; Starfsþjálfun fatl-
aðra rúmar 2,9 millj.kr.; Sjóður Odds
Ólafssonar 1 millj.kr.; SamstarfÖBI
og Þroskahjálpar 500 þús.kr. og
Iþróttasamband fatlaðra 400 þús.kr.
Ennþá em útgjöld bandalagsins vegna
Glits afar tilfinnanleg.
Reikningar allir samþykktir sam-
hljóða og án allra athugasemda.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
7