Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Síða 11
tekna þeirra sem gildi tók 1. sept. sl.
Lögin um skattalega meðferð fjár-
magnstekna koma fyrst til fram-
kvæmda 1. jan. 1997 og þá þurfa líf-
eyrisþegar sem aðrir að greiða 10%
skatt af fjármagnstekjum sem alveg
er eðlilegt. Lífeyrisþegar einir verða
hins vegar fyrir launalækkun af völd-
um fjármagnstekna sinna og verða að
þola hana fjórum mánuðum áður en
hin eiginlegu lög um fjármagnstekjur
taka gildi. Hér er einnig um grófa aft-
urvirkni að ræða þar sem fjármagns-
tekjur ársins 1995 eru látnar skerða
bætur þó lögin um meðferð fjár-
magnstekna hafi fyrst verið samþykkt
í júnímánuði á þessu ári.
Aðalfundurinn skorar á Alþingi og
stjómvöld að hverfa frá þessari óhæfu
og felur stjórn bandalagsins að vinna
að úrlausn þessara mála.
8) Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands haldinn 12. okt. 1996 skorar
á heilbrigðis-og tryggingaráðherra að
stórhækka svokallaða vasapeninga
þeirra sem dvelja á vistheimilum.
Vasapeningar eiga að nægja til allra
útgjalda annarra en húsnæðis, fæðis
og umönnunar. Mánaðarleg upphæð
nú er kr. 10.658.- og liggur í augum
uppi að útilokað er í mörgum tilvikum
að fólk geti veitt sér brýnustu nauð-
synjar s.s. fatnað. Upphæð vasapen-
inganna er því hreinlega svartur
blettur á tryggingakerfinu.
9) Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands haldinn 12. október 1996 skor-
ar á alla þá aðila er að væntanlegum
kjarasamningum koma að tryggja það
ótvíræða réttlætismál að ávinningi
samninganna til launafólks verði að
fullu skilað inn í bótagreiðslur lífeyr-
isþega.
Bæturnar eru laun lífeyrisþegans
og því á hið sama að gilda um þær og
launin í landinu.
Því ber að lögfesta á nýjan leik
afdráttarlaus ákvæði um að bætur
fylgi launaþróun í landinu að fullu.
Auk þessara ályktana var ályktun
frá Sjálfsbjörg - landssambandi fatl-
aðra um að Öryrkjabandalagið hefði
hagfræðing á sínum snærum. Henni
var vel tekið og vísað til fram-
kvæmdastjórnar. Alyktanir voru svo
sendar þeim sem við átti og síðan er
aðeins eftir að sjá hvort eitthvert gagn
geri.
Kiwanis menn með
kærkomið framlag
Eins og hér var greint frá í
Fréttabréfinu á liðnu ári var
að frumkvæði Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra ákveðið
að 10. okt. skyldi helg-
aður geðheilbrigðis-
málum. Það eru al-
þjóðasamtök geðvemd-
arfélaga og Alþjóða-
heilbrigðismálastofn-
unin sem hafa beitt sér
fyrir því að svo skyldi í
landi hverju. Markmið
dagsins að auka skiln-
ing á geðsjúkdómum,
skapa virðingu fyrir
hinum geðsjúku, efla
forvarnarstarf og stuðla að betri
geðheilbrigðisþjónustu hvarvetna.
10. okt. sl. vareinmitt stutt, látlaus
en hátíðleg athöfn á vegurn Geð-
verndarfélags íslands að Rauðalæk
36 hér í borg þar sem formlega var
í notkun tekin hin ágætasta íbúð í
þágu foreldra utan af landi sem
þurfa á að halda þjónustu Barna-
og unglingageðdeildar Landspítal-
ans. Þetta er afar rúmgóð íbúð og
stutt að fara sem mest má verða og
skapast þannig hin ágætasta að-
staða fyrir þá sem oft eiga ekki
auðvelt um dvöl hér í Reykjavík.
Möguleikar eru á að fleiri en einn
aðili geti á sama tíma nýtt sér
aðstöðuna.
að var T ómas Zoéga formaður
Geðvemdarfélags Islands sem
bauð gesti velkomna og bað þá
fyrst gæða sér á góðum veitingum.
Tómas færði svo ráðherra heil-
brigðismála þakkir góðar fyrir yfir-
lýsinguna um 10. okt. árlega helg-
aðan þessum málefnum sem við
svo marga kæmu. Hann færði Kiw-
anis - mönnum alúðarþakkir fyrir
störf þeirra í þágu geðsjúkra um
aldarfjórðungsskeið. Þar hefur sala
K - lykilsins á þriggja ára fresti
skilað mestu, en þessi íbúð var
einmitt keypt fyrir afrakstur af sölu
K - lykilsins á síðasta ári, en margir
lagt hönd á plóg til að búa íbúðina
húsgögnum. Zinawik konur gáfu 50
þús kr. og síðan veittu fyrirtæki fyr-
irgreiðslu við kaupin og einstakl-
ingar gáfu húsgögn. Júl-
íus Arnarson afhenti við
þessa athöfn 200 þús. kr.
að gjöf til minningar um
son sinn Arnar, er lézt
um aldur fram, en hann
hafði átt við geðsjúk-
dóm að stríða. Færði
Tómas honum sérstakar
þakkir fyrir höfðings-
skap sinn. Þá afhenti
Tómas Valgerði Bald-
ursdóttur, yfirlækni
Barna- og unglingageðdeildar lykil
að íbúðinni, en Valgerður færði fram
þakkir fyrst og fremst fyrir hönd
þeirra foreldra og barna sem þessi
íbúð kæmi til að gagnast svo vel.
Valgerður lagði áherzlu á það hve
mikilvægt væri að styrkja göngu-
deildarstarfsemina og hve dýrmætt
væri að vinna með börnin með for-
eldrana hið næsta sér.
Heilbrigðisráðherra færði
Kiwanis - mönnum miklar
þakkir svo og Zinawik - konum fyrir
þeirra góða starf og stuðning svo
verðmætan. Hún óskaði starfinu að
þessum málum allrar blessunar.
Stefán Jónsson fráfarandi forseti
Kiwanis kvað þá vera afarglaða yfir
því að mega þannig leggja þessum
málum lið. 8 K - dagar væru að baki
og þeir Kiwanis menn væru hreykn-
ir af að hafa samtals getað lagt 150
milljónir til þessa, þakka bæri góð-
um stuðningi almennings. Vonaði
hann að með þessu hefði þeim einn-
ig tekizt að slá nokkuð á fordóma.
Gestir skoðuðu svo íbúðina sem er
einkar vel búin og hlýleg. Geð-
vemdarfélaginu og Bama- og ungl-
ingageðdeildinni eru árnaðaróskir
færðar svo og er mikils metið hið
merka starf og frumkvæði Kiwanis
- manna að málaflokki þessum.
H.S.
Tómas Zoéga
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
11