Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Page 13
Ihyglin góð í allra svip.
stöðu fatlaðs fólks þannig að samn-
ingsbundin launa - sem og réttinda-
atriði skili sér að fullu inn í bótakerfið.
Stefna skal að því að stjórnvöld
komi á samstarfsnefnd bandalagsins
og þeirra ráðuneyta sem koma helst
að málefnum fatlaðs fólks sem tryggi
að framkvæmd mála sé í sem bestu
samræmi við heildarhagsmuni fatlaðs
fólks.
Grundvallaratriði:
Aðgengi fatlaðs fólks að samfélag-
inu verði tryggt. Meðaðgengi erekki
einungis átt við byggingarnar sjálfar
heldur kemur þar einnig til ytra um-
hverfi þeirra og aðgengilegar upplýs-
ingar svo sem merkingar fyrir blinda
og sjónskerta, túlkaþjónusta fyrir
heyrnarlausa og heyrnarskerta, tón-
möskvakerfi fyrir heyrnarskerta og
sérstakar leiðbeiningar fyrir þroska-
hefta. Einnig verði tekið tillit til
astma- og ofnæmissjúklinga.
Öryrkjabandalag Islands beiti sér fyrir
því að bygginga-og skipulagslögum
hvað aðgengi varðar, verði skilyrð-
islaust framfylgt.
Öryrkjabandalagið fylgi eftir
markmiðum grunn- og framhalds-
skólalaga um jafnrétti allra til náms
og þroska. Sérkennsluúrræði verði
hvarvetna tryggð.
Tryggðir verði fjármunir til þess að
staðið verði við almenn lagaákvæði
um menntun. Jafnræði verði tryggt
milli verklegra og bóklegra menntun-
arleiða.
Fatlað fólk njóti jafnréttis til
atvinnu á við aðra þjóðfélagsþegna.
Öryrkjabandalagið vinni ötullega
að atvinnumálum fatlaðs fólks í náinni
samvinnu við stjórnvöld og aðila
vinnumarkaðarins. Leitað sé allra
leiða til að tryggja fötluðu fólki störf
með því að nýta alla möguleika í
þjóðfélaginu til atvinnuþátttöku með
aðaláherslu á að koma fólki til starfa
á hinum almenna vinnumarkaði.
Gæta skal þess að hverjum og einum
séu sköpuð atvinnutækifæri við hæfi.
Tryggt verði að fatlað fólk búi við
öryggi í húsnæðismálum.
Öryrkjabandalag Islands stuðli að
úrlausn í húsnæðismálum fatlaðs
fólks og beiti sér fyrir sem flestum
valkostum að því marki.
Hússjóði Öryrkjabandalagsins
verði áfram gert kleift að gegna sínu
mikilvæga hlutverki í húsnæðis-
málum.
Öryrkjabandalagið vinni ötullega
að því að í samfélaginu séu sem bestar
aðstæður er tryggi jafnrétti fatlaðs
fólks til félagslegrar þátttöku og
virkrar aðildar að hverskyns menn-
ingar- og tómstundastörfum.
Tryggður verði óhindraður að-
gangur fatlaðs fólks að heilbrigðis-
þjónustu.
Öryrkjabandalag íslands beiti sér
fyrir því að biðtími eftir læknisað-
gerðum hverfi.
Heilbrigðisþjónusta verði lífeyris-
þegum að kostnaðarlausu.
Stjóm
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Björn Hermannsson
Dagfríður Halldórsdóttir
Eggert S. Sigurðsson
Elísabet Á. Möller
Emil Thóroddsen
Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir
Guðjón Ingvi Stefánsson
Hafliði Hjartarson
Haukur Þórðarson
Heidi Kristiansen
Hugrún Þórðardóttir
Ingólfur H. Ingólfsson
Jóhannes Ágústsson
Nína Hjaltadóttir
Oddný Fjóla Lárusdóttir
Ólafur H. Sigurjónsson
Ólöf S. Eysteinsdóttir
Ólöf Ríkarðsdóttir
Rafn R. Jónsson
Ragnar R. Magnússon
Sigurður Viggósson
Valgerður Auðunsdóttir
Þórey V. Ólafsdóttir
Þórir Þorvarðarson
Félag heyrnarlausra
Félag nýrnasjúkra
Alnæmissamtökin
Geðverndarfélagið
Gigtarfélagið
Blindravinafélagið
Heyrnarhjálp
Styrktarfélag vangefinna
SÍBS
Foreldrafél.misþroska barna
FAAS
Geðhjálp
Foreldra- og styrktarfél.heyrnard.
Parkinsonsamtökin
MS félagið
Umsjónarfélag einhverfra
MG félagið
Sjálfsbjörg
MND félagið
Blindrafélagið
Samtök sykursiúkra
SPOEX
LAUF
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13