Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Qupperneq 15
fornkveðna: Sameinaðir stöndum
vér. Það gildir að vera í breiðfylkingu
þeirra sem starfa að málefnum fatl-
aðra, vera með í baráttunni. Ekki
veitir af þegar saumað er að fötluðum
meir og meir með ákvörðunum
stjórnvalda, þar sem skilningsleysið
virðist alveg ótrúlegt.
Stjórn MND félagsins skipa nú:
Rafn R. Jónsson formaður og
aðrir í stjórn eru: Iris Gústavsdóttir,
Rósa Gunnarsdóttir, Sigríður Gunn-
laugsdóttir og Garðar Sverrisson.
í stjórn Öryrkjabandalags Islands
er tilnefndur Rafn R. Jónsson og til
vara Iris Gústavsdóttir. Eins og áður
kom fram er aðsetur félagsins að
Höfðatúni 12b og þar fer fram allur
daglegur rekstur hjá félaginu. Fastur
skrifstofutími hjá Rafni er á þriðju-
dögum og fimmtudögum frá kl. 14
til kl. 18. Síminn er 562 2004.
Við hér á bæ bjóðum félagið enn
og aftur velkomið til vorra húsa og
árnum því alls hins bezta í erfiðu og
krefjandi félagsstarfi. H.S.
Dagur heymarlausra
Dagur heyrnarlausra var hátíð-
legur haldinn sunnudaginn 29.
sept. sl. Safnast var saman á Hlemmi
og síðan gekk allnokkur fylking fólks
sem leið liggur niður á Ingólfstorg.
Þar var haldin útimessa í glaðasól-
skini. Svo vel vildi nefni-
lega til að eftir allar undan-
gengnar rigningar birti ein-
mitt til um hádegið þennan
sunnudag, en sumir höfðu
einmitt á orði að þeir hefðu
eiginlega verið búnir að
gleyma því hvemig blessuð
sólin liti út. En þarna skein
hún glatt á ný og vermdi
jafnt heyrnarlausa sem
heyrandi. Utimessan var
hátíðleg og býsna fjölsótt en
um athöfnina sá séra
Miyako Þórðarson, hinn
ágæti prestur heymarlausra,
með þeim fagra blæ sem
einkennir athafnir hennar
og táknmálskórinn söng af ærnum
þokka og innlifun sem jafnan áður.
Það var svo Sólrún Birna Snæ-
björnsdóttir sem flutti ávarp í athöfn-
inni. Hún lagði áherzlu á bænina og
hvarf til bernskudaga þegar móðir og
amma kenndu henni bænir. Hverjum
og einum væri mikilvægt sambandið
við almáttugan guð, að fela honum allt
sitt ráð. Eftir messuna var svo komið
saman á Hótel Borg og varð þar sann-
arlega þröng á þingi. Þar fór fram hin
ágætasta dagskrá sem Vilhjálmur
Vilhjálmsson stjómaði.
að var Berglind Stefánsdóttir,
formaður Félags heyrnarlausra
nú og um leið nýráðin skólastjóri
Vesturhlíðarskólans sem ávarpaði
gesti í upphafi. Berglind minnti á
brýnustu baráttumál heyrnarlausra og
hvatti til sem skjótastrar úrlausnar á
þeim. Enn bæri lagalega viðurkenn-
ingu táknmáls sem móðurmáls heyrn-
arlausra hæst. Hún kvað myndbanda-
gerð sem mesta mjög brýna til að
koma á ljósan og lifandi hátt hvers
konar efni fróðleiks sem afþreyingar
á framfæri við heyrnarlausa, tengja þá
um leið betur við það sem væri að
gerast á hverri tíð og færa þeim vitn-
eskju urn möguleika þeirra í lífinu,
hvað þeim stæði til boða. Berglind
sagði atvinnumál heyrnarlausra knýj-
andi til úrlausnar, en mikill fjöldi
heyrnarlausra er atvinnulaus. Nú um
stundir væru svo menntamál á oddinn
sett, því þau væru mikilvægari í dag
en nokkru sinni áður. Þá kom Zorba-
hópurinn næstur fram og við ljúfan
undirleik tveggja karla sungu þær Sif
Ragnhildardóttir og Eyrún Ólafsdóttir
(á táknmáli) lög eftir gríska tónskáldið
Theodorakis við afar góðar undirtekt-
ir, enda hugþekkt mjög.
á talaði Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir sem er í stjórn Félags
heyrnarlausra. Hún minnti á hið sí-
gilda orðtak: Mennt er máttur, en í
flóknu tæknisamfélagi nútímans væri
heyrnarlausum hætt án haldgóðrar
menntunar. Hún lýsti yfir stofnun
menntunarsjóðs fyrir heyrnarlausa
með gjöf Nýherja hf. til félagsins, for-
kunnarfullkominni tölvu sem yrði í
aðalstöðvum félagsins að Laugavegi
26 og færði fyrirtækinu einlægar
þakkir sem og þeim öðrum
sem lagt hefðu menntunar-
sjóðnum sitt góða og dýr-
mæta lið.
enntamálaráðherra,
Björn Bjarnason,
flutti ávarp og lýsti yfir
ánægju með stofnun mennt-
unarsjóðsins og kvað ráðu-
neyti sitt mundu leggja hon-
um eitthvað til. Hann fór
svo yfir stöðu menntunar-
mála heyrnarlausra á grunn-
og framhaldsskólastigi og
minntist m.a. á hina ágætu
viðurkenningu til Agústu U.
Gunnarsdóttur í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, silfurverð-
launin góðu sem frá er glögglega
greint hér í blaðinu. Hann færði heym-
arlausum hlýjar hamingjuóskir í tilefni
dagsins og hét þeim góðu liðsinni sínu,
en sagði að lögleiðing táknmálsins
varðaði alla ríkisstjórnina. Þá var
heldur betur á léttari strengi slegið, því
Skari skrípó var mættur með tól sín
og töfrabrögð snjöll og gladdi hug og
hjörtu gesta sannarlega með uppá-
tækjum sínum og undraverðri leikni.
Berglind Stefánsdóttir sleit svo þessari
fjölsóttu og skemmtilegu hátíð. Degi
heymarlausra voru góð skil gerð í fjöl-
miðlum m.a. með túlkun á táknmáli í
sjónvarpinu sem minnir enn á það að
einmitt þar þarf betur að gera. Eins og
áður var hér vel og myndarlega að
verki staðið hjá þessu ágæta aðildar-
félagi okkar og árnaðaróskir hlýjar eru
héðan sendar.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
15