Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Síða 21

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Síða 21
Tómas Helgason form. stjórnar Hússjóðs: Skýrsla Hússjóðs Öryrkjabandalagsins 1996 s Aþessu ári eru liðin 30 ár frá stofnun Hússjóðsins og frá því byrjað var að vinna að byggingu hús- anna við Hátún. A þessum þrjátíu ár- um hafa orðið mikil umskipti í hús- næðismálum öryrkja með því að Hússjóðurinn á nú 502 íbúðir. Raunar eru íbúðirnar taldar 538 vegna þess að 36 íbúðir sem áttu að vera í Hátúni 10 b voru á sínum tíma leigðar Ríkis- spítölum til reksturs öldrunardeildar Landspítalans. Hvort tveggja var að þá kom sér vel fyrir Hússjóðinn vegna fjárskorts að leigja íbúðirnar og fá fyrirframgreiðslu sem notuð var til þess að ljúka við bygginguna í Hátúni 10 b og einnig vantaði húsnæði undir sjúkradeildir aldraðra. Nú hafa að- stæður breyst þannig að Ríkisspít- alarnir hafa sagt upp húsaleigusamn- ingnum vegna þess að ætlunin er að Sjúki'ahús Reykjavíkur taki við rekstri öldrunardeilda og þær verði staðsettar á Landakoti og ekki verði lengur óskað eftir húsnæðinu í Hátúni 10 b. Það verður því verkefni Hússjóðsins á komandi mánuðum að endurhanna þær 36 íbúðir sem þarna áttu upphaf- lega að vera og að því gerðu hefjast handa um framkvæmdir svo að hægt verði að nýta húsnæðið í upphaflegum tilgangi. Á þeim 30 árum sem liðin eru síðan Hússjóðurinn tók til starfa hafa kröfur um húsnæði aukist mjög verulega þannig að húsnæði sem þótti fullboðlegt hverjum sem var fyrir 30 árum þykir nú of þröngt. Því má gera ráð fyrir að athugaðir verði möguleik- ar á að stækka íbúðirnar í Hátúni 10 b og um leið að fækka þeim. ✓ Asíðari árum hefur verið lögð vaxandi áhersla á öflun íbúða utan Reykjavíkur og nágrennis. Til marks um það hélt stjórn Hússjóðsins í fyrsta sinn fund utan Reykjavíkur í september sl., á Akureyri þar sem Hússjóðurinn á nú 23 íbúðir. Auk þess á Hússjóðurinn 40 íbúðir annars staðar á landinu utan Reykjavíkur- Tómas Helgason. svæðisins. Frá síðasta aðalfundi hafa verið keyptar 16 íbúðir og enn er eftir að kaupa nokkrar á þessu ári. Þá var sagt frá viðræðum sem farið höfðu fram milli stjórnar Hússjóðs og stjórna sjálfseignarfélaganna Skjóls og Eirar um aðild Hússjóðs að stækk- un þeirra. Ekki varð af fyrirhuguðum byggingum þeirra í Mjódd, þar eð borgin sleit samstarfi um þær og tók upp samstarf við Rauða krossinn, sem vildi hafa afgerandi áhrif urn stjórn væntanlegs hjúkrunarheimilis. Varþá horfið að því ráði, sem þegar hafði verið rætt um, að breyta húsnæði að Skjóli og að Hússjóðurinn ætti aðild að þeim breytingum, til þess að greiða úr vanda leigjenda sinna, sem þurfa að flytjast úr íbúðum Hússjóðsins vegna þess að þeir eru umönnunar þurfi. Þessum framkvæmdum er nú að ljúka. yrir hálfu öðru ári var lokað fyrir biðlistann hjá Hússjóðnum, en þá voru umsóknir komnar yfir 560, til þess að unnt væri að endurskoða hann. Síðan hefur verið leitað eftir nýjum umsóknum frá þeirn sem þegar áttu umsóknir þar sent væri gerð nánari grein fyrir húsnæðisþörfinni, svo að hægt yrði að koma á einhvers konar forgangsmati. Við það fækkaði veru- lega á biðlistanum, en nú hefur verið opnað að nýju fyrir umsóknir og er húsnæðisþörfin áfram mjög mikil. Einnig má geta þess að á undanförnu ári hefur verið talsverð hreyfing á leigjendunum, einkum í Hátúni vegna þess að þar voru margir orðnir aldraðir og þurftu á öðrum úrræðum að halda. Stjórn Hússjóðsins hefur átt góða samvinnu við svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra og félagsmálastofn- anir víða um land til þess að tryggja að þeir sem hefðu brýnustu þörfina gengju fyrir um úthlutun húsnæðis. Eg gat þess í síðustu ársskýrslu að þá hefði verið unnt að leysa vanda um 70 einstaklinga. Á þessu ári hefur tekist að leysa vanda álíka margra, en samt eru um 250 á biðlistanum, flestir í brýnni þörf. Að undanförnu hefur verið lögð áhersla á að leysa húsnæðis- vanda geðfatlaðra og þroskaheftra. Hlutur hinna fyrrnefndu í húsnæði Öryrkjabandalagsins er nokkurn veg- inn í samræmi við hluta þeirra af fjölda örorkulífeyrisþega. Hins vegar eru þroskaheftir tjölmennasti íbúða- hópurinn í íbúðum Hússjóðsins, enda má segja að starfsemi hans hafi verið ein af forsendum fyrir þeim breyt- ingum sem orðið hafa á húsnæðis- aðstöðu þeirra. Lausn á húsnæðis- vanda beggja þessara hópa er að veru- legu leyti háð því að félagsmálayfir- völd sjá fyrir mannafla til liðveislu þeirra og húshjálpar. Ekki er hægt að ljúka ársskýrslu Hússjóðs nema minna enn og aftur á nauðsyn þess að Öryrkjabandalagið haldi að fullu hlut sínum í lottótekjum eins og verið hefur. Helmingur þeirra rúmlega fimm hundruð íbúða, sem Hússjóð- urinn á nú, hefur verið keyptur á síð- ustu 10 árum eftir að Öryrkjabanda- lagið fékk hlut í lottótekjunum. En betur má ef duga skal. Mikilvægt er að öll félög Öryrkjabandalagsins fylki sér þétt saman til að halda utan um lottótekjurnar þannig að áfram verði gætt sanngirni og jafnræðis um lausn á íbúðavanda fatlaðra. Að lokum ber að þakka framkvæmdastjóra og starfs- mönnum Hússjóðsins fyrir mikið og gott starf í þágu hans. Tómas Helgason. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 21

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.