Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Síða 22
ITILEFNI
TÍUNDA OKTÓBER
Samstarfshópur um 10. október:
Geðhjálp, Geðverndarfélagið,
Vin RKÍ og fleiri boðuðu til
göngu og fundar hinn 10. október og
heppnaðist þessi aðgerð afar vel og
vakti athygli.
Gengið var frá Hlemmi niður að
Ráðhúsi Reykjavíkur en fundurinn
var haldinn í Tjamarsal Ráðhússins og
var þar langt yfir húsfylli. Kjörorð
dagsins voru rifjuð upp af Sveini
Rúnari Haukssyni lækni, sem var
fundarstjóri en þau voru: Ræðum
geðsjúkdóma, þekking hjálpar.
Sveinn Rúnar bauð gesti velkomna og
kvað fundinn einn þátt aðeins í
atburðum dagsins, opnuð hafi verið
myndlistarsýning í Hinu húsinu og
heimilið á Bjargi stóð öllum opið
þennan dag til skoðunar. Hann fagn-
aði því sérstaklega að Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir forsetafrú skyldi velja
þennan vettvang sem þann fyrsta er
hún kæmi fram á sem slík og gaf henni
því næst orðið.
Guðrún Katrín kvað samhjálp í
víðastri merking vera og eiga að vera
aðalsmerki íslenzks samfélags. Hún
minnti á hina mörgu ávinninga sem
fengist hefðu í baráttu við hina ýmsu
sjúkdóma og nefndi baráttuna gegn
berklunum alveg sérstaklega. Stað-
reynd væri hins vegar að geðsjúkir
hefðu nokkuð útundan orðið. Enn
væri viðhorfið viss hindrun, þó for-
dómar væru á undanhaldi. Aðalatriði
væri að geðsjúkir nytu siðferðilegs og
félagslegs réttar síns. Við eigum að
veita geðsjúkum verðugt athvarf og
draga úr félagslegri einangrun þeirra,
sagði Guðrún Katrín.
Heilbrigðisráðherra Ingibjörg
Pálmadóttir kvað slíkan dag
kjörinn til að líta um öxl, skoða stöðu
mála og horfa fram á veginn. Við
eigum gott fagfólk, góðar geðdeildir
og ýmsir ávinningar orðið s.s. sam-
býli, dagdeildir, félagsleg þjónusta
o.fl. Hún gerði samanburð nokkurn
á ástandi nú og fyrir aldarfjórðungi
þegar hún hefði unnið á geðdeild,
ólíkt um margt um að litast. Gera
verður geðsjúklingum kleift að vera
sem virkastir þjóðfélagsþegnar. Þekk-
ingin, skilningurinn hjálpa og til þessa
leiðir opinská umræða. Tvennt sem
framundan væri vildi hún minna á:
Fræðsluátak yrði fyrir starfsfólk
heilsugæzlunnar og starfshópur yrði
á laggir settur um stefnumótun í geð-
heilbrigðismálum. Forsenda fyrir
árangri væri samstarf aðstandenda,
áhugafólks, fagfólks og forstöðu-
manna geðdeilda.
á komu hinir leikandi listamenn:
Gunnar Kvaran og Gísli Magnús-
son og Iéku þeir saman þrjú hrífandi
lög á selló og píanó og hrifu hlustend-
ur með sér í heim tónanna.
Þá flutti erindi Herdís Benedikts-
dóttir læknaritari sem hún nefndi: Líf
með leynigesti.
Hún lýsti ljóslega inn í sjúkdóms-
sögu sína með geðhvörfum: oflæti og
þunglyndi. Lítill svefn, ýktar skynj-
anir, unað væri í heimi ímyndunar. I
uppsveiflunum fólst engin gleði, því
síður sæla heldur vanlíðan og kvöl
þegar verst lét og í kjölfarið kom
örvæntingin.
Hún veiktist fyrst 19 ára eftir ógn-
arreynslu, andlega og líkamlega í
Afríku. Um tíma veiktist hún allt að
einu sinni á ári en var að fullu heil-
brigð í 13 ár. Síðan eftir afarmikið
álag veik á ný, en vonandi nú varan-
legur bati. Benti hún á nauðsyn þess
að aðstandendur átti sig á því hvað er
að gerast og hvemig bregðast skuli við
ranghugmyndum hins sjúka. Versti
fylgifiskurinn eru fordómarnir, ekki
síður inn á við en út á við. Herdís
sagði nauðsyn brýna að sættast við
sjálfa sig, hafa ábyrga afstöðu gagn-
vart sjálfri sér, ytri gildi henti ekki í
baráttunni. Það er hægt að læra á
leynigestinn.
Herdís kvað allt forvarnarstarf
skipta miklu máli. Skoraði á geðfatl-
aða sem og aðstandendur þeirra að
koma fram, skýra frá staðreyndum
sem bezt, upplýsa aðra.
Hallgrímur Hróðmarsson
menntaskólakennari flutti því
næst erindi sem hann nefndi: Var ekki
bara gott að þú klikkaðist? Talaði
hann fyrst um sparnaðarumræðuna og
kvaðst ævinlega hrökkva við þegar
talað væri um að loka geðdeildum eða
hætta rekstri á því sviði. Hann lýsti
sínu þunglyndi og oflæti og þeim
sveillum sem þar urðu á. Þunglyndið
er augljósara, oflætið leynir á sér.
Hallgrímur lýsti inn í þennan heim,
lýsti kennslu sinni á þessum tíma og
loks gerðu nemendur stjórnvöldum
skóla viðvart, þegar hann var farinn
að varpa fram fáránlegum spurning-
um sem enginn gat svarað og allra sízt
hann sjálfur. Hann sem fleiri kenndi
22