Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Qupperneq 34
AF STJORNARVETTVANGI
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalags íslands
fimmtudaginn 3. október og hófst kl.
16.4o í Oddshúsi.
Velflestir stjórnarmenn vom mætt-
ir. Formaður setti fund og bauð fólk
velkomið til síðasta fundar þessa
starfsárs.
1. Yfirlitsræða formanns
Fyrsta mál á dagskrá var yfirlits-
ræða formanns um það sem frá síðasta
stjórnarfundi hefði helzt gerzt. Ólöf
greindi frá því að nefnd dómsmála-
og félagsmálaráðuneytis um lottó-
málin hefði skilað af sér, en skýrslan
væri enn trúnaðarmál svo og niður-
stöður hennar. Fylgzt yrði vel með
framvindu málsins. Minnti á yfir-
standandi endurskoðun laganna um
málefni fatlaðra, en öllum félögum
Öryrkjabandalagsins hefði verið skrif-
að og boðið að senda athugasemdir.
Ólöf sagði frá samráðsnefndinni með
launþegasamtökunum, þar sem meg-
inatriðið nú væri að fá atbeina launa-
manna til að tryggja að ávinningar
kjarasamninga skiluðu sér að fullu
yfir í bætur almannatrygginga. Þá
greindi formaður frá hinum umsvifa-
miklu erlendu samskiptum, ekki sízt
í sambandi við Helios-II verkefnið.
Hún minnti á ráðstefnuna 8.-9. nóv-
ember um ferðamál allra í samvinnu
við Þroskahjálp. Þar yrðu þrír erlendir
fyrirlesarar, enda fengist til ráðstefn-
unnar vænlegur
styrkur frá ESB.
Ólöf sagði og frá
mikilli samkeppni
á vegum Helios-
II, en þar var Ólöf
í dómnefnd af
hálfu félagsmála-
ráðuneytisins. Af
fjórum verkefnum
héðan sendum í
samkeppnina
fengu tvö verð-
laun - gull og silf-
ur. Helgi Hróð-
marsson mun
glögglega greina
hér frá í þessu
blaði.
Ólöf sagði
verðlaunaafhendingu fara fram 2.
desember í Brússel
✓
Olöf sagði nýútkominn bækling
ÖBÍ þegar vera úreltan orðinn
þar sem tvö ný aðildarfélög væru nú
væntanleg. Stytt útgáfa á dönsku og
ensku er fyrirhuguð með nýju félög-
unum innanborðs.
Ólöf lagði áherzlu á það að meg-
inreglur Sameinuðu þjóðanna yrðu
kynntar á Alþingi eins og vera bæri.
Allt yrði gert til að tryggja það.
Greindi að lokum frá fundi í Norður-
landaráði öryrkjafélaga í Finnlandi
þar sem þær Asgerður og hún hefðu
mætt. Ólöfvísaði svo tryggingamál-
um, ærnum að umfangi, til Helga
Seljan síðar.
Haukur Þórðarson sem er fulltrúi
Öryrkjabandalagsins í endurskoðun-
arnefnd laga um málefni fatlaðra
greindi frá gangi starfsins þar. Hann
kvað aðaláherzlu nú beinast að flutn-
ingi málaflokksins til sveitarfélag-
anna, en greinilegt að sveitarfélögin
vilja fá málaflokkinn. Ymsir fram-
kvæmdastjórar svæðisskrifstofa efast
um að flutningur sé tímabær. Haukur
sagði margt benda til að tilflutningur
muni áætlaður 1. janúar 1999. Hann
kvað nefndina tæpast mundu leggja
til afdrifaríkar breytingar aðrar, en
reynt yrði að sníða af ágalla sem hefðu
komið í ljós í framkvæmd. Nokkrar
umræður urðu á eftir og m.a. rætt um
nauðsyn stefnumótunar Öryrkja-
bandalagsins í því meginmáli, hvort
og hvernig skyldi að flutningi staðið.
Þórir Þorvarðarson stjórnarfor-
maður íslenzkrar getspár ræddi lottó-
málin ítarlega. Hann kvað tillögur
nefndarinnar óljósar og mikil spurn-
ing um til hvers leiddu í raun. Hann
fór yfir fyrirkomulagið hér og eins
minnti hann á hina harðnandi sam-
keppni á þessum markaði. Ekki mætti
horfa framhjá því að Islenzk getspá
er sjálfstætt fyrirtæki með eignir sínar,
viðskiptavild o.s.frv. Þangað inn
gengi enginn sjálfkrafa.
2. Aðalfundur Öryrkjabanda-
lagsins 12. október
Asgerður greindi frá og dreifði
dagskráaðalfundarins. Aukaðalfund-
arstarfa mun Karl Steinar Guðnason
forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
flytja erindi og svara fyrirspumum.
Asgerður lagði einnig fram reikninga
bandalagsins, en Hafliði gjaldkeri var
forfallaður. Hún kvað mestu skipta
að reikningarnir væru innan ramma
fjárhagsáætlunar. Ásgerður minnti
félögin á að senda inn tilkynningar um
fulltrúa og stjórnarmenn.
3. Umsóknir nýrra félaga
Tvær umsóknir um aðild höfðu
borizt. Önnur frá Samtökum sykur-
sjúkra, en hin fráMND-félaginu. Lög
beggja félaga
samrýmast regl-
um bandalagsins.
Nokkuð rætt um
meginreglu þá
sem í gildi er um
að félög sjúklinga
þar sem sjúkdóm-
ar leiði ótvírætt til
fötlunar eigi rétt
til aðildar. Rætt
varumfjölgun fé-
laga og henni
fagnað, en jafn-
framt þyrfti að
huga hér að í
framtíðarskipulagi
Öryrkjabandalags-
ins. Báðum þess-
um félögum afar
34