Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 42
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
EVROPUSAMKEPPNI A VEGUM HELIOS
II UM BESTU VERKEFNI SEM FELA í SÉR
ÚRBÆTUR í MÁLEFNUM FATLAÐRA
✓
slendingar hafa að undanförnu
tekið virkan þátt í fram-
kvæmdaáætlun á vegum Evrópu-
sambandsins sem nefnist HELIOS II
og er skammstöfun fyrir eftirfarandi:
“Handicapped people within the Eu-
ropean Community living independ-
ently in an open society”. Island varð
fullgildur aðili að HELIOS áætluninni
þann 1. janúar 1996 á grundvelli 31.
greinar samþykktar Evrópska efna-
hagssvæðisins. í áætluninni er stefnt
að því að ná fram jafnrétti á sem flest-
um sviðum til handa fötluðu fólki.
Einnig eru aðildarríkin hvött til að efla
stuðning við fatlað fólk og hvetja til
nýjunga og framþróunar á ýmsum
sviðum sem stuðlað getur að jöfnurn
tækifærum og sjálfstæðu lífi fatlaðs
fólks í samfélaginu. I þessu sambandi
má nefna blöndun í almenna skóla á
öllum stigum menntakerfisins, endur-
hæfingu, starfsþjálfun, félagslega
aðlögun, ferlimál, íþróttir og ferðamál.
VIÐFANGSEFNI KEPPNINNAR
Einn þáttur HELIOS samstarfs-
áætlunarinnar er samkeppni um áhuga-
verð verkefni sem fjalla um málefni
fatlaðra í samræmi við stefnu verkefn-
isins. Sem fullgildur aðili fékk ísland
tækifæri til að taka þátt í samkeppninni
á þessu ári og var hún auglýst í fjöl-
miðlum af félagsmálaráðuneytinu í
byrjun janúar sl. Margrét Margeirs-
dóttir hefur unnið að þessu verki fyrir
hönd ráðuneytisins. Verkefni sam-
keppninnar voru á eftirtöldum sviðum:
Aðlögun, blöndun fatlaðs fólks í al-
menna skóla, hagnýt endurhæfing,
tækninýjungar í þágu fatlaðs fólks,
þátttaka fatlaðs fólks á almennum
vinnumarkaði, félagsleg aðlögun og
starfsþjálfun.
í reglum um þátttökuskilyrði var
m.a. lögð áhersla á að í verkefnunum
væri sýnt fram á að fatlað fólk eigi
jafna möguleika og njóti virkrar
aðlögunar í samfélaginu og ennfremur
að verkefnin megi nýta í öðrum
aðildarríkjum.
Helgi Hróðmarsson.
GÓÐ ÞÁTTTAKA
Sautján Evrópuríki tóku þátt í sam-
keppninni, þ.e. öll Evrópusambands-
ríkin auk Islands og Noregs og hafði
hvert ríki heimild til að senda sex verk-
efni til keppninnar. Áður hafði farið
fram forval innan hvers lands, en sam-
tals bárust í forval rúmlega 400 verk-
efni. Sérstök dómnefnd skipuð einum
fulltrúa frá hverju aðildarríki fjallaði
um verkefnin og valdi nefndin 18 bestu
verkefnin sem hljóta verðlaun í ár.
Tólf lönd skiptu með sér þessum 18
verðlaunum þar sem fimm ríki komust
ekki í úrslit. Þrenn verðlaun gull, silfur
og bronsverðlaun eru veitt fyrir þrjú
verkefni í hverjum flokki. Fulltrúi
íslands í dómnefndinni er Ólöf Rík-
arðsdóttir formaður Öryrkjabandalags
íslands og hefurhún unnið ötullega að
þessu verkefni. Dómnefndarfólkið
skipti með sér verkefnum til að skoða
og meta. Ólöf fór t.d. til Hollands og
skoðaði framlag Hollendinga í keppn-
inni.
FRAMLAG ÍSLENDINGA
Fjögur verkefni komu frá Islandi og
hljóta tvö þeirra verðlaun, annað gull
og hitt silfur, sem hlýtur að teljast mjög
góður árangur. Gullverðlaun hlýtur
verkefni Ingibjargar Haraldsdóttur
kennara við Lundarskóla á Akureyri,
en það fjallar um nýjar leiðir og að-
ferðir til kennslu og aðlögunar fatlaðs
nemanda í almennum grunnskóla. I
umsögn dómnefndar segir m.a. að
verkefnið sé framúrskarandi dæmi um
góð vinnubrögð og öll aðstaða innan
skólans svo og kennslugögn til fyrir-
myndar. Lögð er mikil áhersla á
hversu samvinna kennara er mikil svo
og samstarf við foreldra. í niðurlags-
orðum dómnefndar er bent á að þetta
verkefni geti orðið mörgum Evrópu-
þjóðum fyrirmynd að stefnu í skóla-
málum og sé vitnisburður um góðan
árangur um blöndun fatlaðra barna í
almenna skóla. Silfurverðlaun hlýtur
verkefni Ágústu Gunnarsdóttur
kennslustjóra við Menntaskólann við
Hamrahlíð, fyrir að opna nýjar leiðir
og veita heyrnarlausum og heyrnar-
skertum nemendum jafna möguleika
til menntunar í almennum framhalds-
skóla. I umsögn dómnefndar segir
m.a. að verkefnið sýni framúrskarandi
vinnubrögð varðandi menntun og að-
lögun heymarlausra og heymarskertra
nemenda í almennum framhaldsskóla
með heyrandi nemendum. Sérstaka
athygli vekur hin mikla einstaklings-
bundna stuðningsþjónusta sem gerir
heymarskertum kleift að stunda nám
á jafnréttisgrundvelli. Að mati dóm-
nefndar er verkefnið talið hafa mikið
gildi fyrir aðrar Evrópuþjóðir varðandi
stefnu í menntunarmálum heyrnar-
lausra.
ÁRANGUR OG ÁVINNINGUR
Á lokafundi dómnefndarinnar sem
haldinn var í Finnlandi þann 6. sept-
ember sl. var tilkynnt opinberlega um
úrslit samkeppninnar. Þar kom fram
að Finnland varð í efsta sæti og fékk
þrenn verðlaun, en í öðru sæti urðu
Island og Svíþjóð með gull- og silfur-
verðlaun. Ákveðið hefur verið að veita
verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Brussel þann 2. desember n.k.
Glæsilegur árangur Islands í þessari
keppni er athygli verður og sýnir
glögglega að þrátt fyrir að okkur finnist
oft hægt ganga við að ná fram úrbótum
í málaflokknum hér á landi, þá standa
Islendingar í þeim efnum framarlega í
samanburði við aðrar Evrópuþjóðir.
Sú athygli sem samkeppni sem
þessi vekur, getur ef rétt er á málum
haldið virkað hvetjandi á þá sem starfa
í málaflokknum til þess að vinna enn
betur að markmiðum samtaka fatlaðs
fólks. Helgi Hróðmarsson
42