Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1996, Blaðsíða 50
INNLITIÐ
Það er ekki nema eðlilegt að
undirritaður eigi gjarnan
erindi á Laugaveg 26 hér í
borg. Félag heymarlausra er þar með
sínar bækistöðvar á fjórðu hæð og
leigir svo félögum aðstöðu á þriðju
hæðinni ásamt því að leyfa afnot af
sínum rúmgóða fundarsal uppi.
LAUF - Landssamtök
áhugafólks um floga-
veiki eiga þar skjól á
þriðju hæðinni til vinstri,
en athvarf hjá þeim eiga
bæði Tourette - samtökin
og Sorgarsamtökin. Til
hægri á hæðinni eru svo
þrjú félög með sína að-
stöðu en það eru Parkin-
son - samtökin, Félag
heilablóðfallsskaðaðra og
Samtök sykursjúkra.
Þangað er litið inn að
þessu sinni. Samtök syk-
ursjúkra eru með sérað-
stöðu, en Félag heila-
blóðfallsskaðaðra og
Parkinsonssamtökin deila sameigin-
legri aðstöðu. Fyrir framan hina eigin-
legu skrifstofuaðstöðu félaganna er
ágætt rými sem orðið er hið vistleg-
asta. Þetta rými er kjörið til smærri
funda s.s. stjórnarfunda svo og getur
fólk setið þar og látið fara vel um sig
t.d. í notalegu spjalli um landsins gagn
og nauðsynjar. Þegar ritstjóra bar
þama að góðum garði, sat frænka hans
fyrir svörum fyrir Félag heilablóð-
fallsskaðaðra. Erla Guðjónsdóttir er
ritari félagsins og hefur unnið þar
mikið og gott starf sem fleiri þar á bæ.
Formaðurinn Hjalti Ragnarsson var
norðan heiða, en hringdi meðan
ritstjóri staldraði við og hét viðtali
síðar. Erla kvað það markverðast hjá
félaginu að það hefði á liðnu vori
gengið í Sjálfsbjörg - landssamband
fatlaðra og taldi hún að því ótvíræðan
styrk fyrir félagið. Erla hefur unnið
að gerð bækiings fyrir félagið og var
hann vel á veg kominn þegar ritstjóri
leit inn í lokjúlí. Bæklingur þessi mun
greina frá því helzta sem máli skiptir
fyrir félagana og félagið. Kaflarnir eru
um skrifstofuna, um markmið fé-
lagsins, vildarvinina, félagsstarfsem-
ina og tjölskylduna. Þá er merki fé-
lagsins væntanlega fullbúið á
næstunni. Skrifstofa félagsins er opin
á þriðjudögum frá kl. 16-18.30.
Síminn er 552 7878. Þá var komið að
því að líta inn á viðverutíma hjá Park-
inson - samtökunum.
Parkinsonsamtökin voru stofnuð 3.
des. 1983 ogvarJón ÓttarRagn-
Svipmynd frá aðalfundi.
arsson fyrsti formaður samtakanna.
Aslaug Sigurbjörnsdóttir var svo
formaður í 10 ár og heima hjá henni
höfðu samtökin hið bezta skjól enda
þau hjón Aslaug og séra Magnús
Guðmundsson driffjaðrir í góðu starfi
félagsins. Núverandi formaður er
Nína Hjaltadóttir og á þráðinn til
hennar slegið eitt síðdegi til að for-
vitnast frekar um málin. Nína sagði
það hafa heillaráð verið að komast í
aðstöðuna á Laugavegi 26 með öðrum
félögum, en skrifstofuaðstaðan er
einmitt sameiginleg með Félagi
heilablóðfallsskaðaðra, en Samtök
sykursjúkra svo við hliðina. Það er
einmitt Nína sem ríkjum ræður nú á
skrifstofunni og ég innti hana nánar
eftir því hversu gengi. Flún sagði
skrifstofutímann skamman, aðeins frá
kl. 17 - 20 alla miðvikudaga, en það
dygði alveg. Flún kvað mikið um að
fólk hefði samband, hringdi eða kæmi
m.a. til að fá upplýsingar. Nefndi sem
dæmi að nokkrir nemar hefðu komið
til að afla sér efnis í ritgerðir um
sjúkdóminn og samtökin, sem væri
hið bezta mál. Samtökin væru t.d. með
bæklinga sem kæmu sér vel. Nína
kvað meira um það að yngra fólk
kæmi inn í samtökin og ástæða þess
væri að það væri fyrr farið að greina
sjúkdóminn en verið hefði. Nína vildi
sérstaklega koma því að, hve fé-
lagsfundir væru vel sóttir en á síðasta
fund hefðu 70 mætt, en talan 50 - 60
áður algeng. Hún ítrekaði svo opnun-
artímann á miðvikudögum kl. 17 - 20
og síma samtakanna sem er 552 4440.
en utan hins eiginlega
skrifstofutíma er síminn
stilltur heim til gjaldker-
ans, Jóns Jóhannessonar.
Það var svo laugar-
daginn 14. sept. aðfé-
lögin þrjú opnuðu form-
lega húsnæðið og skrif-
stofuaðstöðuna, höfðu
opið hús á milli klukkan 14
og 17 og buðu til sín fjöl-
mörgum gestum sem þágu
hið góða boð. Sigurður
Viggósson form. Samtaka
sykursjúkra hafði orð fyrir
félögunum þrem og fagn-
aði mjög þeirri ágætu sam-
vinnu sem þarna hefði tekizt milli
félaganna svo og hinu ágæta samstarfi
við leigusalann, Félag heymarlausra,
en einmitt í hinum vistlegu salarkynn-
um þess svignuðu borð undan kræs-
ingum lystilegum. Séra Jónas Gísla-
son vígslubiskup kvað samstarf sem
þetta skapa ýmsa möguleika og ný
sóknarfæri fyrir félögin og bað starf-
inu blessunar. Ólafur Ólafsson land-
læknir óskaði félögunum til hamingju
með aðstöðuna um leið og hann fór í
stuttu máli yfir stöðu viðkomandi
sjúkdóma og minnti á nýjungar þar
og nýja möguleika, Ólöf Ríkarðsdóttir
færði hlýjar heillaóskir Öryrkjabanda-
lags íslands og kvað samvinnu félag-
anna fordæmi hið bezta. Það var mikil
bjartsýni og baráttuhugur í fólki sem
horfði fram á veg til virkara starfs og
aukinnar þjónustu við félagana. Ætl-
unin er að ráða starfsmann í hlutastarf
til félaganna með stuðningi Atvinnu-
leysistryggingasjóðs og í góðri og
náinni samvinnu við Félag heymar-
lausra. Þannig ætti að vera unnt að efla
starf og bæta þjónustu við félagana.
Félögunum þrem er alls góðs ámað
og það vonað að þeim verði vel ágengt
í sínum ætlunarverkum. Næg eru
verkin að vinna. H.S.
50