Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Síða 18
3. DESEMBER ALÞJÓÐA-
DAGUR FATLAÐRA
Tveir ágætir atburðir
Þriðji desember er, eins og fólk
örugglega veit, alþjóðadagur
fatlaðra, ákveðinn svo af Sam-
einuðu þjóðunum. Hér á landi voru
tveir ágætir atburðir þennan dag og
vel frá þeim í Qölmiðlum greint og
þar með vakin athygli á þessum bar-
áttudegi.
Gísli Helgason ritari Öryrkjabanda-
lags Islands reit hina skeleggustu
grein í Morgunblaðið í tilefni dagsins.
Aðgengisverðlaun Sjálfsbjargar
voru veitt í sjötta sinn en þau eru af
tvennum toga: Fyrir nýtt eða nýlegt
húsnæði sem uppfyllir ítrustu kröfur
úr byggingareglugerð og eldri bygg-
ingar, sem bættar eru verulega með
tilliti til fatlaðra.
Viðurkenningarnar voru veittar í
garði Sjálfsbjargarhússins og var
mikill fjöldi fólks mættur þangað
enda veður ljómandi gott. Þorvaldur
Halldórsson og Margrét Scheving
sungu hin ljúfustu jólalög og sköpuðu
hina skemmtilegustu stemmingu með
fogrum tónum. Varaformaður Sjálfs-
bjargar - landssambands, Pálína
Snorradóttir setti samkomuna. Hún
minnti á þær tvenns konar viðurkenn-
ingar sem veittar væru: nýbyggingar,
eldri hús. Hún lýsti yfir sérstakri
gleði yfir útkomu bókarinnar: Að-
gengi fyrir alla sem út kom í fyrra:
Minntist sér í lagi á hina fjölmörgu
hjálparliða Sjálfsbjargar er sæju bæði
af tíma og ijármunum til styrktar
starfinu. Pálína hvatti til enn frekari
átaka í ferlimálum, þó víða væri vel
að unnið.
Það var svo Ólöf Ríkarðsdóttir sem
viðurkenningarnar veitti og flutti
smátölu af því tilefni. Ólöf kvað
rnikla ábyrgð hvíla á þeim sem ynnu
að því að skipuleggja byggingar,
innra sem ytra. Hún sagði aðeins 23
ár frá fyrstu lagaákvæðum um að-
gengi fatlaðra. Hún færði borgar-
stjórn Reykjavíkur einlægar þakkir
fyrir gott og árangursríkt samstarf um
ferlimál, en aðgengi verið stórbætt í
borginni: gangbrautir, gatnamót sem
torg. Hún kvað Guðmund Magnús-
degi fatlaðra 3. des. 2000. Hópur fólks við hús Sjálfsbjargar 3. des.
son forstöðumann hafa tekið út þær
byggingar er viðurkenningar hefðu
hlotið. Fór síðan nokkrum orðum um
fýrir hvað hver bygging hefði viður-
kenningu fengið en þær voru
Grensáskirkja en þar tók á móti séra
Ólafur Jóhannsson, Listasafn Reykja-
víkur, þar sem Eiríkur Þorláksson tók
við viðurkenningu, Sundlaug Breið-
holts en þar var það Gunnar Hauksson
sem við tók og Þjóðmenningarhúsið
en móti viðurkenningu þar tók
Salóme Þorkelsdóttir. Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir tendraði svo ljós á
fýrsta aðventukertinu, spádómskert-
inu og séra Bjarni Karlsson flutti
hlýja hugvekju og blessunarorð.
Bjargræðistríóið söng af ljúfustu list
nokkur lög og þau Þorvaldur og
Margrét leiddu svo söng í lokin og
allir sungu jólasálminn fagra Heims
um ból. Menn gæddu sér á kakói í
nepjunni og inni í sal Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu var hlutavelta og
kaffisala, þar sem jólastemmingin var
í algleymingi. Athöfn þessi var sem
hinar fyrri einkar hátíðleg og verðugt
er verkefnið til viðurkenningar á þes-
sum ágæta degi.
En fleiri minntu á daginn. Þroska-
hjálp afhenti viðurkenningar sín-
ar - múrbrjótinn - við ljómandi at-
höfn á Hótel Holti. Gerður Steinþórs-
dóttir stýrði samkomunni. Múr-
brjóturinn veittur þeim hverju sinni
sem rutt hefðu braut í málefnum fatl-
aðra - öðru sinni veittur. Vitnaði
Gerður í speki Hávamála um fatlaða:
“Haltur ríður hrossi o.s.frv”. For-
maður samtakanna, Halldór Gunnars-
son minnti á 25 ára afmæli Þroska-
hjálpar á næsta ári.
Kynnti svo múrbijótana nú: Akur-
eyrarbær fyrir áhuga og metnað varð-
andi öll tök á tilraunasveitarfélags-
verkefhi um málefni fatlaðra á Eyja-
fjarðarsvæðinu. A móti viðurkenn-
ingarskjali tók Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri. Morgunblaðið fyrir að
gjöra málefnum fatlaðra einkar góð
skil og svo nú með auðlesinni síðu
sem föstum lið. Margrét Sigurðar-
dóttir markaðsstjóri tók þar á móti.
Nemendafélag Borgarholtsskóla fyrir
viðhorf gagnvart fötluðum nemend-
um, jákvæðni í samskipan allri og
fötluðum nemendum fagnandi tekið.
Það var formaður Nemendafélagsins,
Sigursteinn Sigurðsson sem tók á mót
skjalinu. Allt fordæmi til eftirbreytni.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson óskaði öllum til hamingju
með daginn, múrbrjótunum sér í lagi
sem sýnt hefðu það fordæmi sem
aðrir mættu fylgja. Afhenti svo múr-
brjótunum góða gripi. Margrét Sig-
urðardóttir minnti á frumkvæðið
varðandi auðlesna efnið frá Ástu B.
Þorsteinsdóttur fyrir áratug. Sagði
viðtökur afar góðar og gat sér í lagi
um hinn góða þátt Gerðar Steinþórs-
dóttur sem þarna hefði umsjón. Fé-
lagsmálaráðherra, Páll Pétursson
færði fram hamingjuóskir hlýjar.
Kvaðst hafa fylgst vel með Akureyri
sem tilraunasveitarfélagi og gleddist
mjög yfir árangri þeirra, sannfærði
18