Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 43

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Blaðsíða 43
Frá Landssamtökum hjartasjúklinga Frá aðalfundi LHS. Landssamtök hjartasjúkl- inga, LHS, voru formlega stofnuð 8. október 1983 af230 stofnfélögum. Skrifstofa fé- lagsins að Suðurgötu 10 er opin frá 9-17. Sími 552 5744, fax 562 5744 eða utan skrif- stofutíma í símum 863 2069 og 898 7913. Á skrifstofu LHS starfa þeir Rúrik Kristjánsson, Ásgeir Þór Árnason og Jóhannes Proppé. Netfang: hjarta@sibs.is, Heimasíða: www.lhs.is Fjáröflun Strax á fyrsta ári hófu félagsmenn að safna peningum til að kaupa tæki fyrir hjartadeild Landspítalans. Fljót- lega fóru að berast áheit og gjafir, en efnt var til fyrstu merkjasölunnar árið 1985 og hafa merki síðan verið seld á tveggja ára fresti. Þessu fé hefur verið varið til að styrkja hjartaskurðdeild Landspítala, Endurhæfingarstöð hjartasjúklinga að Reykjalundi, HL- stöðina í Reykjavík, til íbúðarkaupa og margt fleira. LHS hefur gefið ýmis tæki fyrir um 250 millj. kr. á núvirði á þeim 17 árum sem samtökin hafa starfað. Þá hafa samtökin staðið að útgáfu og sölu jólakorta og hefur það fram- tak skilað umtalsverðum tekjum. Þá skilar tímarit LHS, Velferð, dágóðum tekjum vegna örlætis auglýsenda. Helstu markmið samtakanna eru: • Að sameina félagsmenn til baráttu fyrir hagsmunamálum hjartasjúkl- inga og gæta réttar þeirra á öllum sviðum. • Að vinna að úrbótum á sviði heil- brigðisþjónustu og bættri félagslegri aðstöðu hjartasjúklinga. • Að afla íjár, sem varið er til velferð- armála hjartasjúklinga og hrinda í framkvæmd markmiðum samtak- anna. • Að efla rannsóknir og fræðslu varðandi hjartasjúkdóma. • Að bæta aðstöðu og tækjakost á sjúkrastofnunum til rannsókna og lækninga á hjartasjúkdómum og skapa aðstöðu til endurhæfingar. • Að upplýsa hjartasjúklinga um félagslegan rétt sinn, m.a. varðandi skattamál, Ijárhagsaðstoð, trygginga- mál, lífeyrisréttindi, læknismeðferð erlendis o.fl. HL stöðvar - endurhæfing hjartasjúklinga Stjórn LHS ákvað í ársbyrjun 1987 að heija undirbúning að starfrækslu fullkominnar þjálfunar- og heilsu- ræktarstöðvar í Reykjavík. Stofn- endur voru LHS, Hjartavernd og SÍBS. HL-stöðin er sjálfs- eignarstofnun sem veit- ir þríþætta þjónustu: a) Endurhæfingu í framhaldi af dvöl á sjúkrahúsi. b) Aðstöðu til viðhalds- þjálfunar. c) Ráðgjöf, upplýsingar og fræðslu. Að jafnaði eru um 400 hjartasjúklingar að þjálfa í HL stöðinni í Rvík. Þá hafa verið stofnaðar HL stöðvar og HL hópar í Reykjavík, Hafnar- firði, Stykkishólmi, ísafirði, Sauðár- króki, Akureyri, Húsavík, Kópaskeri, Neskaupstað, Hellu, Selfossi, Þor- lákshöfn, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ. Aðild að SÍBS LHS gekk í SÍBS árið 1992 og varð um leið aðili að Öryrkjabandalaginu. Þing annað hvert ár LHS heldur þing á 2ja ára fresti og þar er mörkuð stefna samtakanna. Formenn LHS hafa verið Ingólfur Viktorsson, Sigurður Helgason og Gísli J. Eyland, en núverandi for- maður er Vilhjálmur B. Vilhjálmsson. í stjórn með honum eru Jóhannes Proppé, Rvík, Pálmi Gíslason, Rvík, Valur Stefánsson, Neistanum, Ingibjörg Magn- úsdóttir, Keflavík, Magnús Þorgrímsson, Borgarnesi og Þorbjörn Árnason, Sauðár- króki. Ellefu landsfélög Á aðalfundi LHS í mars 1990 var ákveðið að breyta skipulagi LHS og stofna 10 svæðafélög hjartasjúklinga eftir lands- svæðum. Ellefta félagið, Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, gekk formlega í raðir LHS í sept. 1996. Nú eru liðlega 3500 félagsmenn í LHS. Velferð er málgagn samtakanna og kemur út 2-3 sinnum á ári. Það er sent fé- lagsmönnum og til heilsugæslustöð- va og sjúkrahúsa um land allt endurgjald- slaust. íbúð í eigu LHS og Rauða kross Islands LHS keypti árið 1993 ásamt Rauða krossi íslands 3ja her- bergja íbúð að Loka- stíg 16. íbúðina geta aðstandendur hjarta- sjúklinga utan af landi nýtt sér. Um úthlutun sér hjartadeild Land- spítala v/Hringbraut eða skrifstofa LHS. Kynningarefni Landssamtökin hafa gefið út bækl- inga á eigin vegum eða í samráði við aðra. Þá hafa samtökin styrkt útgáfu á myndbandinu Hjartans mál. Hafið samband við skrifstofuna, ef þið viljið fá bæklinga til dreifingar á námskeiðum eða á heilsugæslu- stöð vum/ sj úkrahúsum. Styrktarsjóðurinn Styrktarsjóður hjartasjúklinga var stofnaður 1991 og var stofnfé sjóðs- ins 2 milljónir kr. Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja efnalitla hjarta- sjúklinga. í sjóðnum eru nú rúmlega 10 milljónir kr. Minningarkort sjóðs- ins eru víða til. Velferð, málgagn samtakanna. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 43

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.